Vikan - 12.11.1959, Side 23
Hér 6jáum við Frank Sinatra með
hinni frægu slúðursagna-blaðakonu
Heddu Hopper. Enda þótt Hedda hafi
áreiðanlega margt misjafnt heyrt um
dagana, virðist hún eiga fullt í fangi
með að „gleypa“ söguna, sem Frank
er að trúa henni fyrir þarna.
Aníta Ekberg þykir góður blaðamat-
ur. Hún býr í Róm sem stendur, og ekki
virðist skilnaðurinn við Anthony Steel
hafa tekið sérlega á hana, því að hérna
á dögunum bar svo við, er hún gekk
fram hjá manni, sem lék á gítar úti á
götu, að hún lét hrífast af músíkkinni
og steig cha-cha-dansspor af lyst og
gleði, eins og hún væri ein á strætinu.
FEVON ver hendur yðar
FEVON ilmar þægilega
FEVON er frábært fyrir barnafötin
FEVON þvær allan þvott
Þlð hafið ef til vill heyrt getið um
stórsjarmörinn og margmilljónerann
Baby Pignatari frá Brasilíu. Það hef-
ur mikið verið rætt um hann á prenti
og þá aðallega í sambandi við allar
þœr mörgu konur, sem orðaðar hafa
verið við hann eða alið þær vonir í
brjósti að verða eiginkonur hans. Ein
þessara kvenna er Linda Christian,
sem eitt sinn var gift Tyrone Power.
Er sagt, að Linda hafi verið mjög ó-
hamingjusöm í ástamálum, en hún hef-
ur sennilega talið sig mundu höndla
hamingjuna, ef hún næði í Pignatari,
þvf að hún elti hann á röndum yfir
hálfan heiminn með hugann fullan af
hjónabandshugleiðingum. En Baby
var ekki á þeim buxunum að láta
hremma sig svo auðveldlega, — hann
kvað hafa mestan áhuga á að leika
lausum hala, — og frá því að upp úr
slitnaði með þeim Lindu, hefur hann
sézt f fylgd margra fagurra kvenna.
Meðal þeirra er ung, ensk stúlka, sem
gengur með kvikmyndaleik í maganum
og heitir Jackie Lane. Hún mun hafa
verið sú nýjasta í kvennasafni Babys,
þegar síðast fréttist. Myndin til vinstri
sýnir Baby og Lindu, en hér undir er
mynd af Jackie.
KVIKMYNDIR