Vikan


Vikan - 30.06.1960, Síða 33

Vikan - 30.06.1960, Síða 33
Án efa heíur hann gefið vinum sinum á Stokka- nesi merki af ströndinni, er hann bauð til veizlu. Slátur, ost og súrmjólk hefur hann aldrei skort á bæ sínum, en miklu fremur korn og malt, ef skip komust ekki til hans að heiman fyrir ísum. Sagan segir, að einu sinni hafi hann lagzt i þunglyndi fyrir þá sök, að hann gat ekki brugg- að jólaöl. Nafnið Brattahlíð er ekki notað lengur. Nú heitir staðurinn Kagsíarsúk. Bandaríkjamenn af stöðinni hafa ekki leyfi til að heimsækja bæinn. Þeir fáu, sem yfir fjörðinn komast, halda, að þeir séu lentir aftur í steinöld. Munurinn á þeirra eigin menningu og hinu frumstæða bændalífi er líka mikill. En Kagsíarsúk stendur ekki langt að baki, ef borið er saman við afskekktustu smáþorp í Dan- mörku. Fyrir einum mannsaldri þekktust þar ekki heldur bifreiðar, talsími eða rafljós. Og enn í dag eiga þau hvorki aflstöðvar, vatnssalerni né kvik- myndahús. En að einu leyti eru þau á undan Kagsíarsúk. Þau hafa daglegar póstsamgöngur og gefa út dagblöð. Ef litið er inn í eitt af þeim 20 eða 25 íbúðar- húsum, sem eru í þessu litla sveitarfélagi, kemur í ljós, að það er búið óbrotnum húsgögnum á borð við miðlungsheimili manna í Danmörku. Á túnum ganga kindur, kýr og hestar sjálfala. Allar eru þessar skepnur í góðum holdum og fallegar I hárfari. Smábörn, sem eru nýfarin að ganga, ríða hestunum i harðaspretti, konur þvo flíkur sínar í fossandi ánni .. . Allt i einu nem ég staðar uppi við bæjarrúst- irnar, og um leið er sem ég gangi þúsund ár aftur í tímann. Það er sem hin virðulega, æva- forna saga Grænlands opni fyrir mér hinn merk- asta og stórfenglegasta kafla sinn. Það var fyrir atbeina Eiriks rauða, sem svo hefur skipazt, að landið er nú hluti af Danmörk. Saga Eiríks rauða hefur oft verið sögð og skal ekki endurtekin hér. Þegar hann var útlægur ger af Islandi i þrjú ár, fór hann að leita lands þess, er gamlar sagnir hermdu, að væri langt til norð-vesturs. Hann fann landið og kannaði það rækilega þau Þrjú ár, sem hann varð að vera fjarri heimalandi sínu. Rannsóknarferð hans stendur fyllilega jafnfætis mestu afrekum, er djarfir landkönnuðir hafa leyst af höndum, hvar á jörðu sem er, — og meir en það: Þegar hann kemur heim úr útlegð sinni, fær hann talið milli sjö hundruð og þúsund manna á að fylgja sér sem reglulegir útflytjendur til hins nýja lands. Það hefðu engir aðrir getað en sönn stórmenni. Til þess manns hlaut að vera borið mikið traust og trúað á dómgreind hans í blindni. TUTTUGU og fimm skip sigla af stað, — aðeins fjórtán komast á leiðarenda! Sum rak aftur, og sum týndust. Einn góðan veðurdag er komið að vesturströnd Grænlands, sem liggur þar og bíður með opnum fjarðamynnum. Utan fyrir strönd að sjá eru allar þessar fjarðabyggðir berar og hrjóstr- ugar. En Eiríkur hefur gist þær áður. Hann þekk- ir þær og veit, hvar hver einstakur af þátttak- endum leiðangursins á að taka sér bóifestu. Flotinn leysist sundur. Hinir mikillátu, jarð- hungruðu stórbændur stefna hver inn á sinn fjörð til að hefja landná.n. Hér er allt, sem hugur eins landsdrottins girnist: endalaust jarðrými, marg- Svipmynd frá Græníandi: Tvö andlit gægjast út um rúðu í torfkofa. Þetta gæti verið mynd frá liðnum tíma á Islandi. ar míiur vegar tii næsta nágranna, engin lögboðin yfirvöld í neinni mynd. Þeir eru sem ölvaðir. Það felst dulið sigurhrós í hinni fáorðu lýsingu sög- unnar: „Herjólfur nam Herjólfsfjörð og bjó á Herjólfsnesi, Ketill Ketilsfjörð, Hrafn Hrafns- fjörð, Sölvi Sölvadal ...“ Nýtt norrænt þjóðfélag er stofnsett. Um fimm alda skeið bjuggu menn þarna að forníslenzkum hætti. En ýmsar nauðsynjavörur gat landið ekki framleitt. Á þeim degi, er sambandið við móður- löndin brast, var dauðadómur þess upp kveðinn. Síðustu hálfa aðra öld tilveru sinnar lifði þetta þjóðfélag síhnignandi lifi. Síðustu áratugirnir hafa verið þessu fólki óslit- ið hörmungatímabil. Það var lamað af langvar- andi fæðuskorti, en í kjölfar hans komu sjúkdóm- ar og úrkynjun. Um Þetta hafa engar skriflegar upplýsingar varðveitzt — og hafa kannski aldrei verið til. En í kirkjugarðinum á Herjólfsnesi, sem er fimmtiu kílómetrum fyrir vestan Hvarf, hafa geymzt minjar um upplausn og endalok þessa fólks — djúpt í frosinni moldu. Þessi kirkjugarður var grafinn upp árið 1921, og hinn þögli vitnisburður hans er áhrifameiri en menn hefðu fyrir fram getað ímyndað sér. TUTTUGU og fimm beinagrindur voru dregnar fram i dagsljósið, og voru þær allar af fólki, er látizt hafði innan við þrítugsaldur. Nú er með- alaldur Grænlendinga fjörutíu ár. Bein þeirra voru vansköpuð, heilabúið mjög lítið og meðalhæðin lág. Engin kvennanna hefur verið hærri en 146 sentímetrar, mjaðmagrind þeirra hefur verið af- mynduð, svo að margar þeirra hafa verið ófærar um að fæða lifandi börn. Þessi urðu þá endalok hins myndarlega bænda- samfélags, er Eiríkur rauði grundvallaði innan við árið 1000. Það lifði hér um bil fimm hundr- uð ár. Nærri því jafnmargar aldir áttu eftir að hverfa í djúp tímans, áður en aftur yrðu reistir fastir bústaðir undir hinum fögru hlíðum inn með Eiríksfirði og Einarsfirði. En það er önnur saga, — hún er frá okkar eigin dögum. Hún er um dugmikla Grænlendinga, er hurfu frá sínu reikula hirðingjalífi, sem for feður þeirra höfðu lifað frá örófi vetra, og gerð- ust traustir, átthagabundnir búendur með fastar rætur í jörðu. Til að kynnast þeirri sögu hef ég siglt út og inn eftir þessum þröngu og djúpu fjörðum á litlum vélbátum. Ég hef setið á búlka í vörubáti með ungum manni, Ezekíasi að nafni, og konu hans, er voru á leið til síns nýja heimilis í litlu hverfi, þar sem aðeins bjuggu þrjár eða fjórar fjölskyld- ur, sem allar stunduðu kvikfjárrækt. Hvarvetna hef ég notið góðs af gestrisni Græn- lendinga, greiðvikni þeirra og alúð. Ég hef borðað heil fjöll af feitum lambahryggjum og drukkið margar skjólur af sterku, svörtu kaffi, og ég hef sofið á grænum flosbekkjum. Og siðast, en ekki sízt, þá hef ég heilsað upp á höfund Kagsíarsúk- þorps. Hann heitir Ottó Frederiksen og varð fyrstur manna til að setja hér upp fjárbú. Hann er nú orðinn efnaður maður og gat keypt sér rándýra dráttarvél í vor, — meira að segja borg- að hana út í hönd! En það er bezt, að hann segi sögu sina sjálfur. Hann er ekki vitund upp með sér og finnst ekkert af sér umtalsvert. „Fyrir þrjátíu árum var hér ekkert nema auðn,“ segir hann. „Þessi fagri og auðugi fjörður var allsendis óbyggður. Auðvitað kom fólk hingað öðru hverju og sló tjöldum við árósana. Þar dvald- ist það svo hálfsmánaðartíma við að veiða lax. Sjálfur var ég trésmiður í Júlíönuvon, en ég kom oft á sauðfjárræktarstöðina, sem þar var. Og með mér vaknaði áliugi á að stunda skepnur. Og svo kom að því einn góðan veðurdag, að ég gat gengið frá þrjú þúsund króna láni, hvorki meira né minna, og loforði fyrir hundrað og fjöru- tíu kinda stofni til að byrja með. Þær áttu að endurborgast í sama, eftir því sem þeim fjölgaði. Og mér heppnaðist að greiða þær allar á þremur til fjórum árum.“ „Heppnaðist, segir þú. Er það þá heppni, sem hefur tryggt framgang þinn?“ HANN samþykkir það, með semingi þó, að heppni og dugnaður haldist mjög oft í hendur. Hugsun- arsamur fjárbóndi gætir þess vel að afla vetrar- fóðurs yfir sumarið. Hann gætir þess að þurrka heyið vel, að það sé vel verkað, er það kemur í hús, svo að það haldi fóðurgildi sínu. Það fé eitt, sem fær góða gjöf i innistöðu, heldur fullum viðnámsþrótti gegn vorkuldanum og fæðir hraust og heilbrigð lömb. Bóndi, sem er óheppinn með lömb sín, gleymir því oft, að það getur verið hon- um sjálfum að kenna. „Allt þetta þykir dönskum bændum sjálfsagður hlutur," hélt Ottó Frederiksen áfram. „En þess ber að gæta, að við Grænlendingar byrjum alveg á berum grunni. Engir af forfeðrum okkar hafa nokkurn tíma haft önnur húsdýr en hunda.“ „Hvers vegna valdir þú einmitt Kagsíarsúk til aðseturs? Önotuð beitilönd voru þó nóg til nær Júlíönuvon í þá tíð.“ í „Þessi staður átti vel við mig, en Það er alveg rétt, að hann var nokkuð afskekktur fyrst í stað. Það gat stundum verið erfitt að koma matvörum og byggingarefni hingað. Aftur á móti er þetta einhver frjósamasti dalurinn á landinu. Og grasið fellur ekki fyrr en komið er langt fram á haust. Líttu bara á sláturlömibn hérna í réttinni. Stærri og skrokkþyngri skepnur eru ekki til hér nær- lendis. Hitt er aftur á móti höfuðvitleysan, að slátur- húsið miðar við fast verð á kind án tillits til þunga og kjötgæða. Og það hvetur ekki til aukinnar ástundunar við fjárgæzluna. Hærra verð fyrir þyngri kroppa mundi verða til Þess, að gæðin ykj- ust alls staðar." „Heyrðu, Ottó Frederiksen. I Danmörku er svo til orða tekið, að ef blindur maður ætli að kaupa jörð, skuli hann bara þreifa eftir, hvort þistlar séu í heyi. Þeir þrífast einungis þar, sem jarð- vegur sé góður. Hér í Grænlandi getið þið lík- lega farið eftir bæjarústum íslendinga, — að þar sem stærstu býlin hafa verið, þar sé einnig bezta landið." „Það er nokkuð til í þessu. Eiríkur rauði átti fyrstur um að velja, og það er ljóst, að hann hefur valið sér eitthvert allra bezta landíð. Ég átti sama láni að fagna, þegar ég þurfti að kjósa mér land, og þess vegna bý ég sennilega hér nú. Hvorki ég né Tibarak, kona mín, höfum iðrazt þeirrar ákvörðunar, sem við gerðum þá.“ En Ottó Frederiksen hefur ekki öðiazt hamingj- una fyrirhafnarlaust. Fyrsta kastið hefur hann oft rekið sig á erfið vandamál, sem hann hefur orðið að taka afstöðu til á eigin spýtur, sökum þess að enginn var til að ræða þau við Oft hefur hann orðið að róa alla leiðiná til Júlíönuvonar og heim aftur, — en það munu til samans vera um hundrað og fimmtíu kílómetrar, — erfið ferð og hættuleg sigling, ef hann rýkur skyndilega upp á suðaustan í öllu sínu veldi. Og oft hefur hann orðið að fara yfir ísinn til Igalíko, sem er sjö eða átta stunda gangur. ísinn hér á firðinum er svikull og getur brotnað upp hvað eftir annað á vetrum. Á þessum þrjátíu árum hefur heilt þorp risið upp i kringum hann. Börn hans eru orðin full- orðin, og þau eru öll sjálfstætt bændafólk. Fjögur þúsund fjár eru árlega rekin í sláturhúsið í Narsak úr þorpinu, og er það nær helmingi alls þess sláturfjár, sem framleitt er nú á Grænlandi. Kvöldgoluna leggur inn fjörðinn. Nú eins og í fornöld eru kýrnar reknar saman á túninu til mjalta, þótt færri séu Þær nú en þá. Mjalta- stúlkan berfætt, með strítt, svart hár, brúneyg og dökk í andliti. En hún umgengst skepnurnar af sömu nákvæmni og Freydis, hin freknótta og rauðhærða dóttir Eiríks rauða, gerði á sínum tíma í sama hlíðarhjallanum hátt uppi yfir Eiríksfirði. Á ströndinni handan fjarðarins liggur flugstöð- in. Hin mikla merkjastöng lendingarsvæðisins sést greinilega héðan. Þar sem drekar með gín- andi trjónum lögðu inn að Stokkanesi í fornöld, þjóta nú hraðskreiðir vélbátar urn með löðurfalda fyrir stefni. Stór olíuflutningaskip landa við hafnargarðinn. Silfurglitrandi þrýstiloftsflugvélar þjóta yfir höfðum okkar. 1< iutningaflugvél, breið um bóga, varpar niður hermönnum í fallhHfum, og Þyrilvængja úðar flugnaeitri yfir alla sveitina. En bóndinn í Kagsíarsúk iítur varla upp frá vinnu sinni, er þoturnar Iljúga drynjandi fram hjá honum. Hvað eru þær að elta? hugsar hann. Sjálfur á hann annríkt, en méo allt öðrurn hætti. Sveitarfélag hans er fámennt, en það býr við tryggan og öruggan efnahag. Það hefur fundið ró og jafnvægi i stiganda sms eigin liís. Hve glöggur ertu Skýringar á mynd á bls. 22. Eftirfarandi breytingar hafa orðið á neðri myndinni: 1. Áhorfandinn í baksýn hefur ekki bindi. 2. Þrjú grasstrá eru á milli fóta stúikunnar. 3. Merkið á aftasta hlauparanum snýr öfugt. 4. Næstaftasti hlauparinn er kominn í sokka. 5. Bolurinn hans er víðari undir hendinni. 6. Hlauparinn næst trénu er kominn með lið- að hár. 7. Örin á trénu er nær því að vera lárétt. V I K A N 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.