Vikan


Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 24

Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 24
NÝTTÁ MARKAÐNUM HLJÓMPLÖTUR Á MARKAÐNUM * Hérna er nokkuð fyrir ykkur, strákar: ómissandi áhöld í útileguna — öxi og hnífur í fallegu leðurhylki. Verð 235,00 k'r. Framabraut Marilynar Monroe er eins og sam- fellt ævintýr. Hún fæddist 10. júní 1926 í Los Angeles og hét upphaflega Norma Jean Baker, — var „uppgötvuð" stuttu eftir stríðslok, er ljós- myndarar komu í heimsókn í flugvélaverksmiðj- una, þar sem hún vann. Hún starfaði lengi sem ljósmyndafyrirsæta fyrri bandarísk vikublöð, lék i einni reynslumynd fyrir Fox-kvikmyndafélagið og var síðan kynnt heiminum sem „stjarna" eftir langa og mikla auglýsingaherferð. En þrátt fyrir þetta alit var aðeins litið á Marilyn sem dægur- flugu. Menn brostu í kampinn, þegar talað var um, að hún gæti leikið gamanhlutverk, — Marilyn Monroe var bara til þess að sýna sig á tjaldinu, sögðu þeir. En Marilyn sneri á þá. Meðan hinar „kynbomburnar" féilu í gleymsku hver af annarri, lék hún í hverri myndinni á fætur annarri — og sífellt með betri og betri árangri. Lengst náði hún í myndinni Prinsinn og kórstúlkan, en þar lék hún á móti hinum þekkta enska leikara, Laurence Oliver. Nýjast myndin með Marilyn er hin óvið- jafnanlega bandaríska gamanmynd Some like it 'hot, þar sem Marilyn leikur jafnframt sönghlut- verk, — kemur fram sem söngkona með hljóm- sveitum. Mikið hefur verið deilt um sönghæfileika þessarar þokkadísar, — sumir tala um hást og eggjandi hvisl, sem ekkert eigi skylt við söng, —- en nú getum við sjálf dæmt um þetta, — nú er hér á markaðnum hljómplata með lögunum úr Some like it hot og auðvitað mörg þeirra sungin af Marilyn. Aðalhlutverkin i myndinni leika auk Marilynar Tony Curtis og Jack Lemmon, en hljóm- sveitunum, sem leika á plötunni, stjórna þeir Adolyh Deutsch og Matty Malneck. SKAK Þegar tveir menn sitja að tafli, þá er það ljótur ósiður og beinlínis brot á skákreglum, þegar annar aðili tekur upp leik. Ef annar leikandinn snert- ir einhvern af mönnunum sin- um, verður hann að færa hann, en ef hann snertir einhvern af mönnum andstæðingsins, verð- ur hann að drepa hann. Reglan er sem sé þessi: Hreyfður mað- ur færður, nema því aðeins að hann hafi áður eða um leið sagt: Ég laga. Einnig ef um greinilegt óviljaverk er að 1 ræða. Ef hmn hreyfði maður verður hvorki færður né drep- inn, þá getur andstæðingurinn krafizt þess, að kónginum sé leikið, en þó ekki hrókfært. Ef ekki er hægt að leika kónginum, þá sleppur hann við re^singu. En hegningar verður mótleikandi að hafa krai'izt, áöur en hann hefur hreyft nokkurn mann til rnótleiks. Nauðsynlegt er fyrir byrjendur að fylgja þessari reglu, því að án hennar verður skákin kák eitt. Og ef menn byrja einu sinni á þessu, getur verið erfitt að brjóta vanann á bak aftur. —O— E'ftiríarandi skák var nýlega tefld í Rússlandi, og sá, sem stýrir hvítu mönnunum, var þá aðeins 5 — fimm — ára gamall. Hvitt: Ernst Kim. Svart: Suworow. 1. e2—e4 e7—e6. 2. Rbl--c3 d7—d5. 3. Rgl—f3 Bf8~b4. 4. e4xd5 Bb4xc3 5. d2xc3 e6xd5. 6. Bfl—e2 Rg8—f6. 7. 0—0 Dd8—e7. (Betra var 7. — 0—0.) 8. Hfl—el Bc8—e6. 9. Bcl—g5 Rb8—d7. 10. Ddl—d4 b7—b6 11. Rf3—e5 c7—c5. 12. Dd4—a4 0—0. 13. Re5xd7 Be6xd7 ? (Betra var 13. — De7xd7.) 14. Bg5xf6 ! g7xf6. 15. Be2—b5 !! De7—d6. (Ef 15. — Bd7xBb5, þá 16. Da4—g4 f Kg8—h8. 17. HelxDe7.) 16. Bb5xd7 Gefið. Hvítur hefur unnið mann á snjall- an hátt. Geri aðrir 5 ára drengir betur! Móníka spjallar viö Nat „King“ Cole. Fyrir um hálfu ári vakti hin þekkta jazz-söng- kona frá Svíþjóð, Monica Zetterlund mikla hrifn- ingu, er hún kom fram á skemmtistöðum i Eng- landi. Nú er hún stödd í Bandaríkjunum, og þar vekur hún ekki minni athygli. Píanóleikarinn heimsfrægi, George Shearing, sagði nýlega um Móníku: — Hún er bezta söngkona, sem ég hef heyrt lengi. Móníka hefur komið fram í sjónvarps- þætti Steve Allens þar vestra og gert samning við hljómplötufyrirtækið Hannover Records um að gera eina „longplaying“-hljómplötu. Næstkomandi sumar verður Móníka á söngferðalagi um Svíþjóð með tríói Jack Norén til aðstoðar. KVIKMYNDIR Kópavogsbíó sýnir: Þetta er áhrifamikil norsk kvikmynd, samin eftir sögu Lillian Sonnings, Rósir til Móníku. Með aðalhlutverkin fara Urda Arneberg, Inger Marie Andersen, Fridtjof Mjöen, Henki Kolstad og Pál Bucher Skjönberg. Leikstjóri er Bjarne Andersen. Cecilía Wenner kemur í íbúðina, sem hún hefur valið handa sér og tilvonahdi eiginmanni sínum, Finn Ek .... Þar hittir hún fyrir unga konu, Móníku Friis, sem segir, að ekkert geti orðið af brúðkaupinu, Finn sé ástfanginn af sér og þau eigi von á barni .... Allir framtíðardraumar Ceciliu verða að engu .... Vonsvikin og niður- brotin fer hún að heiman og ræður sig við lítið sjúkrahús norður á Finnmörk .... Árin líða, og Cecilía, sem virðist vera búin að ná sér eftir áfall- ið, heldur aftur heimleiðis .. .. Á leiðinni kynnist hún Dreyer ritstjóra .... Hann verður hrifinn af henni, en hún á erfitt með að gleyma .... Finn og Móníka eru gift, en sambúðin er vægast sagt mjög slæm .... Finn fer að heiman til að vinna að doktorsritgerð sinni um hið bráðdrepandi örvaeitur, eurare .... en á meðan skemmtir Móníka sér konunglega, vefur karlmönnunum um fingur sér og daðrar við þá hvern af öðrum .... Wenner yfirlæknir heldur veizlu til að fagna heimkomu Cecilíu .... Mónika gerir sig heima- komna í veizlunni og neytir allra bragða til að láta ljós sitt skína, en setja Ceciliu í skuggann .... Dreyer ritstjóri biður Cecilíu, en hún hafnar honum .... Hún talar við Finn, og hann segir 24 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.