Vikan


Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 35

Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 35
boð. Nú er það vissa. Gúllí fór með mér til læknisins — Húrra ... nú skal þó aldeilis haldið partí ... — Nei, Jón ... láttu mig vera. Og ekkert partí á næstunni. Ég verð að hafa ró og næði. — Fyrirgefðu, góða. Ég er hálf- fullur enn, og svo þegar þetta kemur nú í ofanálag. Heyrðu, — hvað sagði Gúllí? Þótti henni karlinn bara ekki déskotans ári kræfur? — Jú, hún sagðist bara ekki trúa þessu, fyrr en hún tæki á. Ég held næstum þvi, að hún hafi haft mig grunaðan um ... — Þig ... haft þig grunaða um vixl- spor. Nei, hættu nú .. . Hún ætti að skammast sín. gálan sú arna . .. Hefði hún séð mig hjá þeim í Hamborg, þá hefði hún varla orðið hissa á þessu. Ja, það var eins gott, að maður tók úr sér nábítinn þar ... Nei, annars ... Fyrirgefðu, góða ... Flugfreyjan var alltaf að nudda sér utan í mig með kokkteilana. Þær eru ekki lengi að finna það á sér, að við karlmann sé að eiga ... Karlmenni, skilurðu . . . karlmenni ... — Ég skil. Mig undrar ekki, þótt þú sért dálítið hreykinn Ég er sjálf ... '— Hreykin af mér. — Á, var ekki svo, kelli mín. Og nú ... nú, sko ... nú breytist þetta allt ... — Já ... nú breytist þetta allt ... Og einu verður þú að lofa mér, — að ég megi ráða nafninu, ef það verð- ur telpa ... Fyrstt mnsteris riddarinn Framhald af bls. 9. hússins góð, þegar tekið er tillit til allrar aðstöðu, og þó að leikritaval hafi oft verið gagnrýnt, þá hefur Guðlaugur ráðizt í margvislegar nýjungar, rutl brautir, sem okkur dreymdi ekki um fyrir tiu árum, að við gætum farið fyrst um sinn. Honum hefur tekizt að setja niður deilur i leikhúsinu, sem á fárra annarra færi hefði verið að leysa. Þetta er vottur þess, að Guðlaugi Rósinkranz má treysta. III. Guðlaugur Rósinkranz er nett- menni og snyrtimenni. Hann er hroshýr og liðlegur í umgengni. Hann á það til að vera dálitið barnalegur, en sakleysi og hrekk- leysi fær þá nafngift stundum. Hann er sagður mismæla sig of oft, — og hafa þeir það helzt á orði, sem telja, að embælti þjóð- leikhússtjóra eigi að vera skipað öðrum en þeim, sem koma úr röð- um alþýðumanna, sem brotizt hafa fram af eigin rammleik. Það er rétt, að áður en þjóðleikhússtjóri tók við embætti sínu, hafði liann lítið les- ið leikbókmenntir, og þó að hann kunni að hafa sótt nokkrum sinn- um Dramaten í Stokkhólmi — og Iðnó gömlu, þá mun hann aldrei hafa dreymt um það, að hann ætti eftir að verða forstjóri Þjóðleik- liúss íslendinga. Er það grunur margra, að á þeim tíma, sem það var afráðið, hafi hann látið til leið- ast fyrir áróður félaga sinna í Framsóknarflokknum að sækja um stöðuna. Guðlaugur lagði nótt við dag, þegar eftir að hann tók við starfi sinu. Það þurfti að semja við fjöl- marga aðila um vörukaup til leik- hússins, — og þessi samningar tókust vel að þeirra dómi, sem bezt þekkja til. Málið vandaðist fyrir hann, þegar hann átti að fara að stjórna leikritavali fyrir leikhúsið, en hann var ekki einn um það, og þó að hann eigi kannski oft tillögurnar um valið, þá leitar hann alltaf umsagnar leikstjóra og leikara — og þjóðleikhússráðs. Hann er því ekki einráður. Það er hans hlutverk að framkvæma það, sem samþykkt er, og þegar Guðlaugur Rósinkranz byrjar að vinna að framkvæmdum, er ekki að sökum að spyrja. Guðlaugur Rósinkranz beið ósig- ur sem formaður Norræna félags- ins, en þó að hann liafi orðið að hætta við að efna til dansiballs fyrir heldrimenn 17. júní í ár, hefur hann enn ekki beðið ó- sigur í málefnum þjóðleikhússins. Þar stendur liann keikur og ber höfuðið hátt, bæði á götunni, þegar hann gengur þar með hattinn í liendinni á góðviðrisdögum, — og eins þegar hann heldur látlausar ræður af sviði leikhússins. Hann kemur alltaf til dyranna eins og hann er klæddur, enda eðlilegt, þvi að Guðlaugur Rósinkranz er ekki leikari, — og þó hlær enginn eins og hann. -fc LÆKNIRINN SEGIR. Framhald af bls. 17. SOKKAR OG HÁLFSOKKAIÍ. Ef ekki er hægt aö nota sokka af venjulegri lengd við sokkabandabeltið, verður að notast við hálfsokka. Ef einhvers staðar er þrengt að, þannig að blóðið geti eklci streymt eðlilega, er meiri hætta á æðahnútum, og það veit ég, að þér viljið forðast. Að þeim er mikil óprýði og óþægindi. ★ BROSANDI ASNINN. Framhald af bls. 27. ar um leið kolli hrosandi. Síðan er haldið af stað til kaupstaðarins. Angelo gcngur fyrstur og fer sér að engu óðslega. Þegar sólin er hæst á lofti, æja þeir í skugga trjáa, og Angelo gefur bónda að éta ný- sprottinn, ilmandi smára. Það er ekki fyrr en jjreytan hefur liðið úr þeim og skuggana tekur að lengja, að þeir gera sig líklega til að halda áfram ferðinni. Morguninn eftir fór bóndi inn í liersthúsið hrörlega og lagði hand- leggina um háls asnamömmu ... síðan um háls asnapabba og tár hans féllu niður á gráfeldi þeirra. Hann klappaði þeim langa stund og strauk og kyssti. Augun i asna- pahba uppljómuðust. Það var eins og liljómaði lúðra- blástur frá himnum ... langur og hljómmikill tónn. Það var Angelo, sem hneggjaði. Á bæ nokkrum í Suður-Portúgal hýr bóndi einn. Hann er fjarska góður við dýr og lemur þau hvorki né ber, og þau fá allt það að borða, sem þau vilja. Asnarnir hans hafa ekki sorgmæddan svip. ★ ftjb&ky&junnáh feœ£ísteópur 125 tw H.f. Raftækjaverksmiðjan HAFNARFIRÐI — SÍMAR: 50022 OG 50023 V I K A N 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.