Vikan


Vikan - 07.07.1960, Side 26

Vikan - 07.07.1960, Side 26
MEÐAL JÖTNA. Barnið fæðist inn í heim, sem þvi er lítt við hæfi. Hver hlutur í umhverfi þess, sem mannshöndin hefur gert, er sniðinn við hæfi fullvaxinna manna. Fyrir barnið er allt of stórt. Þess vegna verður það að klifra upp á stólinn, sem faðirinn lætur fallast þægilega á, teygja sig upp á borðröndina, láta leiða sig upp og niður stigann. Ungi dýrsins, t. d. lamb eða folald, fæðist inn í umhverfi, sem hæfir honum. í því finnur hann hæfilega fæðu og aðstöðu til leikja og vex þannig smám saman inn í lífsvenj- ur tegundar sinnar. Mannsbarnið er ekki vaxið kröfum umhverfis síns á sama hátt. Nýfætt getur það ekki einu sinni skriðið lengd sína að nærandi brjósti móðurinn- ar. Það finnur ekki næringu í um- hverfi sínu eins og lambið I góð- gresi hagans, enda nær það engu ætilegu af eigin rammleik. Það á viðgang sinn undir velviljaðri um- önnun annarra. I augum smábarnsins er um- hverfið jötunheimur, sem það hvorki skilur né ræður við. Honum samsvarar vöxtur foreldranna og þau ráða við margbrotin lögmál og risavaxna hluti hans. Barnið fær jafnvel beinlinis að kenna á yfirburðum þeirra. Hvað sem það aðhefst, er hinn fullorðni ávallt reiðubúinn að grípa inn í athafnir þess, bjóða þvi og banna og jafn- vel að beita risaafli sínu til þess að hindra atferli, sem því er hug- ieikið, eða þvinga það til verkn- aðar ,sem því er ógeðfelldur. Barnið þekkir jötuninn í tvenn- um ham: blíðan og góðan, svo að undursælt er að hjúfra sig að hon- um, en líka hastan og ægilegan, t. d. þegar hann sviptir Því í háa- loft, skekur það reiðilega og slær það jafnvel með þunguni hramm- inum. SMÁSMUGUNÖLDUR OG VILJAÞRÓUN. Mörgu foreldri gleymist, hvilík- ur jötunn það er, séð frá sjónar- hól barnsins, — ekki að það neyti aflsmunar beinlínis og að staðaldri í viðskiptum sínum við barnið, en oft gefur það yfirráðatilhneigingu sinni lausari taum en samræmist velferð barnsins. Margir foreldrar venja sig á sífellt nöldur við börn- in, þó að tilefnin séu óveruleg og engin alvarleg viðvörun felist í nöldrinu. Menn gætu haldið, að slíkir foreldrar litu á sinn eigin vilja sem eins konar sporbraut, sem verknaður barnsins mætti hvergi fará út af. E’n vilji barnsins er ekki til þess ætlaður að láta alltaf undan. Hann þarf að fá tækifæri til að eflast og stæiast í viðfangi við hið erfiða umhverfi sitt. Því þarf barnið nokkurt sjálfræði til þess að þreiía fyrir sér, reka sig á og taka þeirri leiðbeiningu, sem hlutirnir sjálfir veita. Það hiýtur því oft að fara sina eigin leið, stundum án þess að vita vilja foreldranna i hverju einstöku tilviki, stundum i blóra við hann. Þessa nauðsyn verða for- eldrar að .skilja og virða hana inn- an skynsamlegra takmarka. Ef foreldrar hafa atferli barnsins allt of mikið undir smásjá og fjarg- viðrast út af hvers konar smámun- um, þá gerist annað af tvennu illu: Vilji barnsins guggnar, það verð- ur hrætt og beygjulegt, þorir sjald- an að taka ákvarðanir og fara sínu fram, því að það býst stöðugt við, að framandi vilji gripi fram fyrir hendur þess. Á ytra borði er barnið auðsveipt, og í fljótu bragði getur þróun þess sýnzt i góðu lagi, en í raun er það komið út á ranga og hættulega braut. Á unglings- árunum g’etur festuleysi þess leitt til hins mesta ófarnaðar. En barnið getur líka skellt skollaeyrunum 2), íai laó s/onuáion Barnið undir smásjánni við smásmugulegu nöldri og tilefnis- iitliim áminningum foreldranna og jafnvel haft sér það að ljótri skemmt- un að æsa upp nöldursemi foreldris- ins. Þá er hætt við, að barnið verði um leið ónæmt fyrir viðvörum og áminningu, þar sem þeirra væri brýn þörf. Uppeldisleg umhyggja er ekki fólg- in í því, að foreldrar áminni barnið fyrir hverja smáyfirsjón. Þvert á móti þarf foreldrum að vera töm sú list að láta smáyfirsjónir afskiptalausar og unna vilja barnsins þess frjáls- ræðis, sem hann þarfnast til þess að stælast og skírast i reynslunni. Hitt varðar aftur á móti miklu, að for- eldrar kunni að greina milli smávægi- legra atvika, sem bezt fer á að láta afskiptalaus. og djúpstæðra hegðun- artilhneiginga, sem orðið geta ákvarð- andi fyrir siðgæðisskilning barns og unglings. HIN TRAUSTA TAUG. Hið margbrotna og stórskorna inn- hverfi vekur hjá barninu nokkurn ugg. Flestir hlutir, sem foreldrar þess ráða auðveldlega við, eru því ofurefli, og það stendur daglega frammi fyrir óleysanlegum ráðgátum. Barnið er þvi i stöðugri spennu, likt og við fullorðnir, þegar við glímum við flókiö vandamál. Hins vegar get- ur barninu sýnzt sem við séum aldrei i neinum vanda, og megum allt, sem við getum. I augum þess erum við jötnar, ekki aðeins að afli og vexti, heldur einnig að andlegum yfirburð- um og völdum, Þess vegna tekur það viðvaranir okkar og leiðbeiningar al- varlega, ef við misbeitum þeim ekki þannig, að við ruglum það beinlínis. En ef við gætum ekki hófs í aðfinnsl- um okkar og áminningum, finnst barninu við snúast gegn Þvi og ganga í lið með hinum andhverfa raunveru- leika, sem það á fullt í fangi með. Þá getur afstaða barnsins til foreldra sinna ruglazt, svo að þau sjái fremur hina kaldranalegu hlið jötunsins en hina hlýju og ástúðlegu. Einmitt vegna þeirra erfiðleika, sem barnið á við að etja í umhverfi sínu, er því ástúð foreldranna svo mikilvæg. Hún er sú líftaug, sem sjálfstraust og sálrænt jafnvægi barnsins nærist af. Því ber okkur að gæta þess vel, að smámunalegt nöld- ur um hegðun barnanna verði okkur ekki að vana, sem skyggi á ást okk- ar. Einnig ástin hefur sinn mynd- ugleika, í krafti hennar má oftast ná þeim árangri í uppeldi barnsins, sem nöldur og aðfinnslur megna aldrei, nöldur og tilgangslausar að- finnslur spretta oft af því, að þau ráða ekki við sína eigin erfiðleika, en geta leitt til þess, að barnið verði ónæmt á ástúð þeirra. Þá er slitin hin sterka líftaug sið- ferðilegrar og andlegrar grózku og barnið i hættu statt.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.