Vikan - 21.07.1960, Blaðsíða 2
I
I
1
I
I
• Bréf frá Dagverðará
• Not fyrir eyðibýlin
• Nestispakkar
• Fallegar sumarstúlkur
ÉG ÞAKKA BIÍÉF, SEM ÉG
FÉKK í GÆR ...
Dagverðará, 18. júní 1960.
Ég þakka bréf, sem ég fékk í gær. Ég skil vel
nauðsyn þess að hækka áskriftargjald „Vikunn-
ar“ og jiess vegna ætla ég að kaupa hana áfrain
þótt verðið /hækki.
Ég tes ailt sem í „Vikunni" stendur, nema
stjörnuspána, og draumaráðningarnar er ég líka
liætt að lesa — en úr því „Vikan“ vill færa
öllum eitthvað, verður hún líka að hugsa um
þá hjátrúuðu eins og hina- Reyndar les ég
draumana. En getur „Vikan“ ekki alltaf birt
eitt gott kvæði handa þeim Ijóðelsku, annað-
hvort nýtt eða gamalt, en umfram allt ekki
„atómljóð“? Ég hef verið lesandi „Vikunnar“
frá upphafi, og hún hefur átt sína blóma- og
visnunartíma, en aldrei hefur hún verið fjöl-
breyttari en nú. Því meira innlenl efni, því vin-
sælli verður hún.
Ég óska ykkur, sem að „Vikunni“ standið,
alls góðs.
Helga Halldórsdóttir.
Við þökkum þetta vingjarnlega bréf. Hclga
virðist ekki hafa trú á stjörnuspám eða
draumaráðninguni — hún um það. Því virðist
fara fjarri að allir séu sama sinnis — þeir
um það, hvort sem það er nú hjátrú eða hjá-
trú ekki. Uppástungan um ljóðaflutning er
ágæt, og fróðlegt og gaman að vita, að enn
skuli fyrirfinnast ljóðelskt fólk á Iandinu,
og það upp á gamla móðinn. Þessi uppá-
stunga Helgu verður áreiðanlega athuguð
nánar, hvað svo sem úr verður. Það skal að
lokum tekið fram, að Helga Halldórsdóttir
er ekki ein um að skilja nauðsyn þess að
hækka áskriftargjaldið; það virðast yfirleitt
allir áskrifendur „Vikunnar“ gera og halda
því tryggð við hana eins fyrir það
EYÐIBÝLI — SUMARHEIMILI.
Kæra Vika.
Ég hef ekki ferðast ýkja mikið um sveilir
landsins, en samt nógu víða til þess að sjá þar
vel hýst bændabýli I eyði; sumstaðar góð stein-
hús, sem ábúendur sýnast hafa verið nýbúnir
að koma upp þegar þeir kvöddu kóng og prest,
og mér hefur fundist það sárgrætilegt að vita
þessar byggingar verða smáinsaman eyðilegg-
ingunni að bráð fyrir það, að enginn hirti um
þær og koma eikki neinum að notum. Og þá hef-
ur mér á stundum doltið í hug, hvorl einhver
samtök innan hrepps, sýslu eða jafnvel í nær-
liggjandi kaupstöðum gætu ekki haft forgöngu
um að halda þessum byggingum eitthvað við og
leigja þær til sumarleyfisdvalar. Þessi býli eru
yfirleitt til fjalla eða innst í dölum, þar sem
einmitt er fallegast yfir sumarmánuðina, og
mörg þeirra eru í símasamhandi — ég er viss
um, að fjöldamargir borgarbúar vildu dveljast
þar lengri eða skemmri tima og greiða vel fyrir,
ef öllu væri sæmilega við haldið. Það er hæði
til skaða og skannnar að nota svona dýr og góð
húsakynni ekki til neinna hluta.
Vinsamlegast.
Ferðalangur.
Þetta finnst mér einnig góð uppástunga. Að
sjálfsögðu kostar það verulegt fé að halda
við slíkum byggingum, þótt góðar séu, þegar
þær standa í eyði yfir vetrarmánuðina —
en þarna ætti líka að gefast nokkur peningur
í aðra hönd. Og enn eitt; ef til þess kæmi
V I K A N