Vikan - 21.07.1960, Blaðsíða 23
hérlendis og þar á meðal upplýsingar um nöfn
þeirra, sem hafa forustu á hendi o. s. frv.
Kærar þakkir.
Rita.
Svar til Ritu:
Varðandi fyrirspurn þína vegna yoga-kerfis-
ins þá ætti vinkona þín að skrifa draumráðn-
ingarþættinum bréf það, sem tilgreint væri
fullt nafn hennar og heimilisfang. Henni
verða þá samstundis sendar allar þær upp-
lýsingar, sem hún þarfnast, bréflega.
Ilerra Drauinráðningarmaður.
Mig dreymdi að það átti að fara að ferma mig
og ég var í rauðum stakk og í rauðum kjólgarmi,
sem allur var rifinn og ég var í grænum sjó-
stigvélum, með grænan sjóhatt. Út frá því vakn-
aði ég. Geturðu ráðið þennan draum fyrir mig.
(Það á að ferma mig eftir tæpan mánuð).
Þyrnirós.
Svar til Þyrnirósar.
Draumur þessi er aðvörun til þín um að
hegða þér vel á næstunni, því annars er hætt
við að þú verðir fyrir of miklu andstreymi
vegna gagnrýni þinna nánustu. Stundum er
fólki hættara við að vera gagnrýnt heldur en
venjulega, en það mun stafa af ótta þess við
gagnrýni, sem hins vegar dregur gagnrýnina
:að. Þetta mun reynast þér og flestum öðrum
torskilið, en austurlandavitringar telja að
hugsanir okkar séu segulmagnaðar og þess
vegna dragi óttinn við slys, ófarir, sjúkdóma
og margt fleira að sér þessa atburði. Þeir
telja að hugsanirnar noti nokkurskonar raf-
magnstraum. 1930 fann dr. George Crite það
út að lifandi plöntur, dýr og jmenn eru raf-
mögnuð en dáið fólk ekkert segulmagnað.
Enda virðist manni harla fávíslegt að manns-
líkaminn sé eingöngu eitt hrúgald af efni.
Talið er að hugsana heimurinn starfi á vissri
sveiflutíðni ljóssins, sem er öflugri en ljós-
tíðnir efnisheimsins. Til munu vera menn £
dag sem geta holdgað eða með öðrum orð-
um skapað í efnisheiminum þær hugmyndir,
sem þeir vilja. Þetta er gert með nægilegri
einbeitni. Ef til vill varpar ofanritað ein-
hverju ljósi á allt það sem nefnt er „krafta-
verk“ í ritningunni. Á þessu byggist ýmislegt,
sem kallað er galdrar og yfirnáttúrulegt. f
rauninni eru engin slík fyrirbrigði til, þetta
eru aðeins hlutir, sem fólk hefur sem betur
fer ekki vald á.
Kæra Vika.
Ég sendi þér draum sem ég vil fá ráðinn. Mig
dreymir að ég væri á ferSalagi í landrover jeppa-
bíl, sem ég hafði fengið lánaðan hjá manni sem
ég þeklci. Mér fannst ég sitja við stýrið, en óljóst
var livort ég var ein í bílnum. Vegurinn var
mjög vondur og þröngur og lá upp á við. Þétt-
ur laufskógur var á báðar hliðar. Allt i einu sá
ég háa og granna konu vel klædda i þykkri kápu
með loðskinni, koma út úr skóginum hægra meg-
in og gengur hún þvert yfir veginn og hverfur
í skógarþylcknið. Mér fannst ég ekki þekkja
hana, en einhvern veginn vissi ég þó að ekki
þýddi að halda áfram ferðinni. Lengri var
draumurinn ekki.
Fyrirfram þakkir.
Dulrún.
Svar til Dulrúnar:
Þú ert í tygjum við pilt úr sveitinni, en munt
ekki ná f hann þar eð önnur er komin í ból
Bjarnar. Varaðu þig á sumum vinum þínum,
þeir eru ekki þér það, sem þú álítur. Athug-
aðu vel gang þinn £ fjármálunum.
Kæri Draumráðningarmaður.
Mig dreymdi að ég væri að kaupa mér miða
á bió en þegar ég kem út aftur er þar maður,
sem ég þekkti hér áður fyrr en hef lítil kynni
af núna og er hann með göngustaf og bregður
honum fyrir fætur mér en ekki datt ég nú
samt. Síðan fer ég heim þvi bió átti ekki að
byrja strax, en þá liggur vinkona mín sem er
Ijósmóðir upp i rúmi og finnst mér hún vera
að ala barn og biður mig að senda eftir ljós-
móðir, en áður en hún kemur fæðist barnið og
hélt ég á því þar til hún kom því ekki þorði
ég að klippa naflastrenginn eða lauga það. Þetta
var stór og myndarlegur drengur. Fannst mér
við kenna manninum með göngustafinn um að
barnið fæddist fyrir timann.
Fyrirfram þakkir.
Harpa.
Svar til Hörpu:
Þú ert trúlofuð manni, sem er þér ekki trúr,
en þú þarft ekkert að vera kvíðin þess vegna,
þv£ manninum mun snúast hugur, þegar
hann lærir að þekkja mannkosti þina.
Draumráðandi Vikunnar.
Ég er með stutt hár en það er þykkt. Mig
dreymdi að ég væri með mitt venjulega hár,
nema að aftan var það niður að mitti og mjög
])unnt. Hvað merkir dreumurinn?
Svar til Bryndisar M.:
Draumurinn merkir að þú munt eignast nýja
vini af hinu kyninu.
Svar til einnar £ vandræðum:
Draumar eins og þeir sem þú skýrir frá eru
oftast fyrir niðurlægingu út af ástamálum,
sem stafar af ófullnægjandi hjónalffi. Eng-
inn ætti að ætlast til of mikils af maka sin-
um, en oft koma tímabil hjá öðrum aðilanum,
sem þarfnast meir umönnunar af hendi hins
aðilans. Ef vonbrigði eiga sér stað á slfkum
tfmabilum, þá mun heillavænlegast að sætta
sig við það. Þvi þetta róast allt saman. Lffið
skiptist i skin og skúrir hjá flestu fólki. Vertu
viss um að þetta lagast allt hjá þér von bráð-
ar og hafðu engar áhyggjur út af þfnum
draumi.
Draumráðandi Vikunnar.
Fyrir einu ári dreymdi mig þennan draum.
Ég sióð ein fyrir utan himnarikishliðið, sem
var opið. Fyrir innan það gekk fólk fram og aftur
og langaði mig mikið inn fyrir. Hiti streymdí
þaðan til min, en það var hálfkalt, þar sem ég
stóð. Allt i einu lokaðist hliðið og sá ég þvi
ekki lengur inn, þvi að hliðið var nokkuð hátt,
en við þetta fannst mér verða kaldara. En þegar
ég sneri frá hliðinu sá ég fleiri við hlið mór, sem
ég þekkti. Hvað heldurðu að draumuiinn þýði?
Þökk fyrir ráðninguna.
Dlsa.
Svar til Dfsu:
Draumurinn táknar langt lff, bæði hjá þér
og þvf fólki, sem þér fannst vera með þér.
BERGEN-DIESEL
8 CYl.
BERGEN-ðlESEL
BERGEN-DIESEL,
hin fullkomna fiski-
bátavél með nýjustu
endurbótum á sviði
véltækninnar. Stærð-
ir 250 til 660 HK. —
Skrúfuútbúnaður hin
viðkunna Liaaen gerð.
HARD A-DIESEL
Ljósavélasamstæður, dælur, loftþjöppur og
til hverskonar rafmagnsnotkunar. Ennfremur
smábátavélar i stærðum frá 8 hestöflum til
48 hestafla.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnsson h.í.
Skúlatúni 6. — Sími 15758.
VIKAN
25