Vikan - 21.07.1960, Síða 4
Það skiptast á ,,skin og skúrir“ við spilaborðin í Monte Carlo.
r\ VERGRÍKIÐ MONACO er í skjóli fjalla á sólbakaðri Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands. Jafnvel hér norður á Islandi eru þeir ófáir, sem hafa
átt nokkra dýrlega daga í þessum sælunnar reit og sumir hafa tekið svo
djúpt í árinni að kalla það „himnaríki á jörðu“. Það er einkum tvennt, sem
menn vita um Monaco: Þar búa og ríkja furstahjónin Rainier og Grace
Kelly og þar er spilabankinn Monte Carlo, sem ókunnugir setja jafnan í
samband við hroðaleg örlög, hamslausa spilafíkn og sjálfsmorð í örvænt-
ingu. Sannleikurinn mun þó sá, að ekkert af þessu er höfuðeinkenni í tilveru
spilabankans. Það er stofnun með menningarblæ, þar sem forvitnir ferða-
menn taka sér glas í hönd og ganga á þykkum gólfteppum milli borða og
hætta að gamni sínu nokkrum pundum. Það er nákvæmlega hið sama og
að taka þátt í happdrætti, nema hvað hér færð þú að vita það strax, hvort
þú hreppir vinning eða ekki. Upphæðirnar fara að sjálfsögðu eftir efnahag
manna, og hin sjúklega áfergja í þetta happdrætti, að ekki sé talað um sjálfs-
morð, er undantekning. Slík undantekning skapar að sjálfsögðu umtal og
hefur það orðið til þess að mynda hrollvekjandi þjóðsögur í mikilli fjar-
lægð. Margir hafa látið í ljós furðu yfir því, að hér skuli ekki vera slíkur
spilabanki, þar sem Islendingar munu nú annars hafa sett heimsmet í happ-
drættum. En snúum okkur nú aftur að Monaco og Monte Carlo.
Monaco er vafalaust ríkastia
land jarðar, miðað við stærð. í-
búarnir þurfa svo til enga skatta
að greiða, þeir þurfa ekki að gegna
herþjónustu, fremur en ættu þeir
heima norður á íslandi, og yfir-
leitt þurfa þeir fáar byrðar að
bera, sem þegnar annarra þjóð-
félaga verða að sætta sig við.
íbúarnir borga minna fyrir gas og rafmagn
en það raunverulega kostar og Rainier þarf
hátt á annan tug milljóna til þess að fram-
fleyta fjölskyldu sinni og reka höllina með
öllu sem henni fylgir.
í Monaco er ein auðlind: Spilahöllin stóra,
sem helzt líkist fagurlega skreyttri brúðar-
köku. Eins og kunnugt er hefur griski skipa-
kóngurinn Onassis tryggt sér meiri hluta
allra hlutabréfa í spilabankanum og hann
dvelst oft i Monaco, enda góðvinur furstans.
Hins vegar talar hann ekki mikið um þá hluti
fremur en aðrir auðmenn og kýs fremur að
ræða um óperur, ballett og aðrar lystisemdir.
Rainier fursti býr í glæsilegri höll uppi
á hæð og hann veit það vafalaust manna
bezt, að Monacobúar mundu lifa vesælu lífi,
befðu þeir ekki spilabankann til framflcyt-
ingar.
Monte Carlo er stærsti bærinn i Monaco,
— höfuðborg dvergríkisins. Þar er sp.ia-
bankinn frægi, sem gert hefur nafnið svo
stórt að menn rugla iðuglega saman bank-
anum og bænum. Sumir kalla það spilavít ;
iíklega er það runnið frá þeim, sem ekki
liafa kunnað fótum sínum forráð inuan þcss-
arar stofnunar og þeir eru margir. Rithöf-
undar liafa líka notað spilabankann í Moníe
Carlo lil þess að undirstrika mcinleg örlög
og ekki gert minna úr en efni stóðu til. Nú
á siðari tímum bafa framleiðendur kvik-
mynda gjört hið sama.
Aga Iíhan héitinn
var áræðinn spila-
maður, sem lét sér
hvergi bregða við
spilaborðið.
Farák er hins vegar
gjarn á að missa
bœði stjórn á
sér og peningunum
um leið.