Vikan - 08.09.1960, Qupperneq 12
Hann þyrfti
aðeins að
gefa merki
þeir myndu
tilbúnir að drepa
lögreglumanninn rétt eins og þeir
höfðu drepið hreindýrin
Skörp brúnin, sem snerti varir Crawfords, gaf
honum til kynna, að hann drakk úr blikkkrús.
Drykkurinn var heitur og lyktaði eins og blautur
pappi. Höfuðverkurinn og óskiljanlegur ótti hans
blönduðust kæfandi olíulykt. "Þegar hann komst
aftur til meðvitundar, heyrði hann storminn. Ýlf-
ur hans lét honum i eyrum eins og stöðugur niður
hafsins, og honum fannst það svo nærri sér, að
hann opnaði augun. Fyrir ofan hann var hvolf-
þak, sótsvart af reyk, sem sveið í augum, svo að
hann varð að loka þeim aftur.
Dögum, jafnvel vikum saman, hafði hann verið
milli svefns og vöku. Stundum kom drengur til
hans. Hann var klæddur loðkápu, með skinn-
vettlinga og í skinnsokkum, og andlitið, sem gægð-
ist undan hettunni, var kringlótt með svörtum
hárflygsum. Um leið og hann kom inn, kraup
hann á kné og starði á Crawford tinnusvörtum
augum, og þegar hann sá, að hann var vakandi,
hrópaöi hann: „Takuvok, Anavrark, Takuvok," —
og hló. Þá kom inn kona með súpu handa honum.
Maður nokkur vandi einnig komur sínar til
hans, er dimma tók. Hann var hár vexti borið
saman við aðra Eskimóa og þrekvaxinn, kinn-
beinahár og með samankipruð augu' eins og til
varnar snjóbirtunni. Hann tók ljósker og hélt því
fast upp að kinnfiskasognu andliti Crawfords og
starði á hann.
„Allt i lagi?“ spurði hann á ensku, „þú talá
núna?“ Það glampaði á hvítar og sterklegar tenn-
ur hans í ljósinu. Klígjukennd lyktin af hrein-
dýrafeitinni, sem á ljóskerinu var, neyddi Craw-
ford til að loka augunum. Er hann svaraði ekki,
setti maðurinn ljósið frá sér, dró af sér þykka
skinnvettlinga, tróð sér í pípu, meðan hann rann-
sakaði hann gaumgæfilega með áhyggjusvip.
Crawford sá allt þetta sem í draumi, heyrði
næturstorminn og grát barnsins, sem hvildi innan
klæða konunnar þétt við barm hennar. 1 meðvit-
und hans blandaðist þetta allt vælinu í úlfunum,
sem voru á vakki í kringum kofana, og gjamm-
inu í hundunum. Ef ég aðeins gæti munað, hver
ég er, hugsaði hann.
Dag nokkurn fann Crawford til sultar. Og Þá
vissi hann, að hann mundi ekki deyja. Úti fyrir
hvein í storminum. Konan var að skafa snjóinn
af gagnsærri íshellunni, sem kom í stað glugga-
rúðu. Crawford sagði hátt og greinilega: „Mat!“
Konan sneri sér snöggt við, hljóp til dyra og
kallaði ákaflega. Andartaki síðar kom drengur-
inn þjótandi inn í kofann, fleygði sér við hlið
Crawfords og hló. „Þú tala?“ hrópaði hann ákaf-
ur. „Þú tala?“
„Já,“ svaraði Crawford þreytulega. „Ég er
svangur.“ Drengurinn hætti skyndilega að hlæja.
Hann sagði eitthvað við konuna. Hún leit tómlát-
lega á hann, gekk að leirpottinum og tók hand-
fylli sína af notuðum teblöðum.
„Enginn matur,“ sagði drengurinn. „Aðeins te.“
„Það er lika gott,“ hvíslaði Crawford.
Konan hellti teinu í kalt vatn og kveikti dá-
lítinn eld á flötum steini.
„Allir svelta, fólkið svelta," sagði drengurinn
til útskýringar. „Slæmur stormur; við ekki geta
séð dýrasporin. Engin caribou (hreindýr). Slæmt.
Mjornarpoq."
Crawford vætti varirnar og kreppti sóttheita
fingurna í skinnvettlingnum. Hann spurði: „Hvar
er ég?“
Drengurinn pírði augun og hló: „Hvar? 1 snjó-
húsi Kikogarks, föður míns.“
„En hvar? Hvaða bær er næstur héðan? Hvaða
kaupstaður er hér nálægt?" Áreynslan var hon-
um um megn.
Drengurinn leit skilningsvana á hann og sagði
eitthvað við konuna.
„Chichill," sagði konan.
Chichill? Nú, auðvitað Shichill. Hann kannað-
ist við nafn bæjarins, en það sagði honum ekkert.
Drengurinn óð elginn: „Ég er Uk. Ég læra ensku
í trúboðsskólanum. Ég veiða ref. Ég veiða mink.
Bráðum hjálpa ég pabba við hreindýraveiðarnar.
Faðir minn á Winehester-riffil. Hundar föður
míns fundu þig í snjónum. Svona." Hann fleygði
sér endilöngum á gólfið og lá grafkyrr.
Crawford þreif í drenginn: „Hvar fundu þeir
mig?“
Drengurinn bandaði eitthvað með höfðinu, en
það gaf manninum ekkert til kynna, og hann
stundi.
Sárin á höndum og fótum Crawfords greru seint.
Það var aldrei nógan mat að hafa, og stormurinn
hvein fyrir utan, stundum samfara stórhríð. Þeg-
ar hann loks gat farið að taka til höndum, gerði
hann mikilsverða uppgötvun: Koddinn undir
höfði hans var fatadyngja. Anavrark var úti við
að afla eldiviðar. Skjálfandi af æsingi dreifði
hann fötunum á gólfið.
Þetta voru aðeins venjuleg föt: stakkur, buxur,
ullarskyrta og þung stígvél af þeirri gerð, er skóg-
arhöggsmenn nota. Þetta virtist allt tiltölulega
nýtt og sagði honum svo sem ekkert. Á vörumerki
skyrtunnar stóð Winnipeg. Hann tæmdi vasana.
Þar var pípa, og var hausinn á henni mjög
brunninn. Honum fannst hann kannast við hana
og stakk henni upp í sig. Tannförin á henni féllu
við tennur hans. Eins og ósjálfrátt leitaði hann
að tóbaki og fann eitthvað Þungt, — skammbyssu,
hlaupvídd 38.
Hann tók hana upp. Hún fór vel í hendi, og
aftur fannst honum hann kannast við hana. Ósjálf-
rátt opnaði hann byssuna, og öll sex skotin voru
á sínum stað. i
I ákafa sínum að finna eitthvað, sem gæti veitt
honum vitneskju um. hver hann væri, tæmdi hann
einnig hina vasana, hálfhræddur við það, sem þar
væri að finna. Hann fann aðeins þrjá hótelreikn-
inga og saman vafða dollaraseðla. Það voru
fimmtán dollarar. Hann hafði þá næstum verið
peningalaus! Hótelin voru í Chicago, Minneapolis
og Winnipeg. Slóðin lá sem sagt til norðurs og
endaði hér í ísauðninni. Ef til vill var þetta flótti.
Tóbakið hans var búið.
Það olli honum óróa að handfjatla þessi for-
tíðarbrot án þess að mun nokkurn skapaðan hlut.
Hann varð vonsvikinn, einmana og reiður sjálfum
sér vegna minnisleysis síns.
Það voru skot í beltinu, og hann spennti það
utan um sig undir. óhreinni loðkápu Kikogarks,
stakk skammbyssunni í beltið og reis á fætur með
erfiðismunum. Hann studdist við isvegginn og
staulaðist fram að dyrunum, sem voru göng. Þau
lágu upp á við, og þrep höfðu verið höggvin í
snjóinn. Crawford skreið upp Þrepin og út undir
bert loft.
Nístandi stormurinn þaut yfir auðnina og þyrlaði
snjónum upp í andlit honum, svo að hann sveið
undan. Hann verkjaði í augun undan snjóbirt-
unni, og skyggndi hendi fyrir þau, setti höfuðið
í vindinn og litaðist um.
Gegnum skafrenninginn glytti í nokkrar ávalar
hæðir. Á einni þeirra sá hann benzíntunnu, sem .
notuð var sem reykháfur. Þetta voru önnur snjó-
hús. '
Hvernig í ósköpunum hafði hann komizt hingað ?
hugsaði hann. Hvernig? Hann hlaut að hafa reik-
að hundruð kílómetra gegnum snjóauðnina. En
hvers vegna?
„Guð minn góður, hvers vegna?" hrópaði hann
og reikaði aftur niður þrepin. Hann fleygði sér
á grúfu milli óhreinna skinnanna og reif sem
óður í hár sér. Hann þreifaði á augum sínum,
innföllnum kinnunum, eyrnasneplunum, þunnum
samanbitnum vörunum, skegginu ...
Stormurinn hélzt, en með hverjum deginum,
sem leið, varð Crawford styrkari. Dag nokkurn,
er Anavrark gekk út að afla eldiviðar, fór hann
með henni.
Hann gladdist af að komast út í hreint loftið,
burt frá reyknum og svælunni í snjóhúsinu. Það
marraði i snjónum undir fótum þeirra, og storm-
urinn þreif þau með sér. Hann fylgdist með
Anavrark yfir snjóauðnina. Hún stanzaði annað
slagið og boraði stafnum niður. Þegar þau höfðu
gengið spölkorn, stanzaði hún skyndilega. E’r þau
höfðu mokað snjónum frá, kom í ljós dálítill biti
■af hreindýrakjöti. Þau sneru baki í vindinn, og
Crawford leit ósjálfrátt um öxl annað slagið.
Hvers vegna lít ég við? spurði hann sjálfan sig.
■Hann fann óttann læsast um sig eins og kalt
vatn rynni honum milli skinns og hörunds. Hann
tók pípu sína, beit í hana og reyndi að hafa hug-
;ann við verkið.
Dagarnir, sem i hönd fóru, voru harðir og erf-
'iðir. Birgðir ættbálksins af frosnu hreindýrakjöti
gengu fljótt til þurrðar vegna lítillar veiði. Þá
sjaldan eitthvað veiddist, var því bróðurlega skipt
milli allra, en veiðimennirnir sjálíir íengu minnst
af þvi.
Loks rann upp sá dagur, er storminn lægði.
Crawford og Uk sátu inni í snjóhúsinu og neru
refaskinnin með viðartösku, þegar Uk lyfti hend-
inni skyndilega. Ekkert hljóð heyrðist. 'Þeir
stukku á fætur og hlupu út. Himinninn var heið-
skir, og bjart var i lofti.
Þá heyrðu þeir hundgá í fjarska og sáu sleða
koma þjótandi úr suðvestri. „Caribou!" hrópaði
Uk til Crawfords. „Þetta er Amanook. Hann gefur
merki um hreindýr!"
anna, sem hlupu af stað til þess að ná í óþreytta
upunq nJ ddn jiujunqi Jiqu n;nq ^jpun nuios j
og fóta. Kikogark hrópaði fyrirskipanir til kvenn-