Vikan - 08.09.1960, Page 31
Draumar
Kæri draumráðninganjaður.
Ég ætla að biðja yður að ráða þennan draum.
Það var l'yrir nokkru, að mig dreymdi blóð,
lækni og kirkju. Mér fannst blóðið vera eitthvað
i sanibandi við mig. Svo dreimir mig, að faðir
minn kæmi til mín í heimsókn til væntanlegra
tengdaforeldra minna (en ég var þar þá, er
mig dreymdi þetta). Ég vildi alls ekki tala við
hann. (Hann býr í öðrum kaupstað.) Svo næstú
»»tt dreymir mig aftur blóð. (Stuttu á eftir
Ifomst ég að því, að ég var vanfær.) Hveð merk-
1» fc*tta?
Með fyrir fram þakklæti,
Mónika.
Svar til Móniku.
Eins og draumurinn er fram settur, merkir
hann, að þér eigið nokkrar líkamlegar þján-
ingar í vændum, en sigur yðar er vís að þeim
afstöðnum.
(
Kæri draumráðningamaður.
Mig dreymdi þennan draum fyrir tveimur ár-
um. Við bróðir minn og fleiri krakkar vorurn
að labba niður götu eina. Þá sjáum við mann,
sem við vorum hrædd við, og ætluðum að hlaupa
burtu. Þá komum við að brekku. Fannst mér
strákur, sem lieitir Kristinn, komast fyrstur
upp. Bað ég hann að taka í bróðir minn og toga
hann upp, og gerði hann það. Mér fannst ég
vera seinust og karlinn ná i mig, og fór ég þá
að öskra. Lét maðurinn mig inn i skúr og
geymdi mig þar. Svo vaknaði ég við það, að
klukkan hringdi og ég átti að fara í skólann.
Fýrir hverju er þessi draumur?
Eitt barn.
Svar til eins barns.
Draumar sem þessir merkja venjulega, að
dreymandinn verður fundinn sekur um að
skrökva upp á náungann.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi mjög einkennilegan draum.
Hann var svona: Ég var úti á túni. Þar var allt
fullt af köttum og rottum, sem töluðu manna-
mál. Kettirnir báðu mig að hjálpa þeim að veiða
rotturnar, en mér var svo vel við rotturnar.
Ég tók þær og liéll þeim, þar til að kettirnir
voru að því komnir að nú þeim. Þá sleppti ég
rottunum og sagði köttunum, að ég hefði misst
af þeim. Og við það vaknaði ég.
Ninna.
Svar til Ninnu.
Þú munt eiga vini, sem eru það aðeins á
yfirborðinu. Farðu því varlega í öllum sam-
skiptum við fólk, því að loftið er lævi blandið.
Kæra Vika.
Fyrir ári eða svo dreymdi systur mína draum,
sem mig langar til að biðja þig að ráða fyrir
mig. Henni fannst við vera einhvers staðar úti
saman. Sér hún þá, livar fugl kemur fljúgandi
með tvo unga, og teygir hún upp hendurnar til
að fá þá, en fuglinn lætur þá í kjöltu mér. Fyrir
hverju er draumurinn?
Sóley.
Svar til Sóleyjar.
Þessi draumur merkir, að þú hreppir þann
karlmann, sem systir þín ætlaði sér, og getur
með honum tvö börn.
Til draumráðandans.
Mig dreymdi nýlega, að ég fór í göngutúr með
dóttur mína, sem mér fannst vera 12 ára. (Hún
er nú 18 ára.) Við fórum niður að höfn og ætl-
uðum að skoða bátaflotann. Þegar þangað kom,
fannst mér við sfanda þar uppi á liáu bergi (sem
er þar alls ekki), og leit .ég yfir höfnina og varð
mjög svo undrandi. Þar sást enginn bátur og all-
ar bryggjur á kafi í sjó. Sá ég aðeins þrjá stólpa
standa upp úr, þar sem bryggjuendar höfðu náð
út. Þá segir dóttir mín: „Mamma, þarna sé ég
eitt skip,“ — og lít ég þá við og sé þá togara
sigla undri berginu. Var hann ljósrauður á lit
og sjórinn svo fagurblár og smábylgjóltur.
Þetta var mjög fögur sjón.
Hver er ráðningin?
Svala.
Svar til Svölu.
Merking draumsins er sú, að nú sé þess
ekki langt að bíða, að hentugt mannsefni
bjóðist dótturinni, þar sem tíminn er nú
fullnaður. Henni mun vegna mjög vel í hjóna-
bandi.
Sv,ar til SBV.
Augljóst er af draumnum, að amma þín
mun eiga í vændum erfiðleika, þar eð afi
þinn sækir svona að henni og amma þín vill
láta skíra í höfuðið á sér.
Svar til Sjómanns.
Þótt horfur séu ef til vill góðar nú fyrst
um sinn, verð ég að segja, að þær eru hreint
ekki svo góðar, ef marka má drauminn, þeg-
ar fram í sækir.
Kæri draumráðandi.
Ég hef verið mjög hrifinn af stúlku í vetur,
en ég veit samt ekki hug hennar til mín. En
nú dreyindi mig draum: Ég þóttist vera að
synda með skólafélögum mínum, og var vatnið
iskalt. Þá kom stúlkan ú laugarbakkann. Ég fer
upp úr og heilsa henni. Hún stingur sér af bakk-
anum út í laugina. Bakkinn var þó nokkuð hár,
en vatnið lætur ekki uijdan, og hún veltur
ofan á því og liggur siðan kyrr. Ég hika, en
sting mér siðan á eftir henni, og undir inér var
vatnið eðlilegt. Éig bjarga stúlkunni á þurrt og
fæ hana í hendur hjúkrunarkonu, sem er nær-
stödd. Mér fannst stúlkan vera dáin.
Ég geng út á eftir skólafélögum mínum og
er alveg eyðilagður, og mér dettur i hug að
fyrirfara mér. Þá kemur stúlkan hlaupandi i
fullu fjöri út úr laúgarhúsinu, en hefur misst
annan handlegginn vúð öxlina. Hún brosir til
min, en skyndilega breytist hún í bezta vin
minn, en aðeins augnablik. Hún hleypur síðan
til vinkonu sinnar. Svo er hún lögð á spítala.
Ég heimsæki hana á hverjum degi og færi henni
alltaf blóm. En nú er hún búin að fá handlegg-
inn aftur. Hún brosir alltaf mjög góðlega og
vingjarnlega til min. Þarna endar draumurinn.
Ég lief aldrei munað nokkurn draum jafnvel
og þennan og vildi því gjarnan fá ráðningu á
lionum. Með fyrir fram þökk.
Birgir Þ.
Svar til Birgis Þ.
Mér virðist draumur þessi vera fyrir ein-
hverjum smáveikindum þínum og félaga
þinna, en umrædda ctúlku muntu komast í
nánari kynn^við á næstunni, og þannig munu
hugardraumar þínir rætast.
Herra draumráðandi.
Mig dreymdi, að ég væri að koma heim og
i'æri beint inn í stofu. Þar var allt fullt af blóm-
um. Gluggarnir voru fullir af blómum.
Það var sama, hvert litið var, alls staðar
voru blóm. Mér fannst stofan vera helmingi
stærri en hún er. Sum blómin voru stór *g hin
litil. Svo finnst mér ég fara inn i baðherbergið
og mamma með mér. Þá var svo mikið af blóm-
um þar, að ég gat ekki komizt inn nema stlga
á þau, svo að mér fannst ég klippa nokkur blóm
burtu, svo að ég kæmist fyrir, en vildi samt
ekki láta mömmu sjá það. Mér leið svo dásam-
lega vel í draumnum.
1 Sísi.
Svar til Sísíar.
Draumur þessi er fyrir hinni mestu ham-
ingju í ástamálum á næstunni. Síðari draum-
ur Sísíar er á þessa leið:
Mér fannst ég vera að koma innan úr Blesu-
gróf í strætisvagni. Þá finnst mér vagninn breyt-
ast í tvo hesta, — ég held brúna. Ég sat á öðr-
um, en strætisvagnsstjórinn á hinum. Við riðum
hlið við hlið og geysilega hratt, og það var ein-
tómur sandur allt i kring. Mér fannst ég vera
með sjóhatt á höfði og hann vera að detta. Fyrst
reyndi ég að halda í hann, en svo hugsaði ég,
að það væri allt i lagi, þó að hann færi, því að
það væri ekki fínt að vera með svona liatt í
Reykjavík. En maðurinn, sem var við hliðina
á mér, tók alltaf i hattinn, þegar hann ætlaði
að detta, svo a'ð ég varð að hafa hann. Mér
fannst það skritið, hvað manninum var annt
um, að ég væri með þennan hest, vegna þess að
ég þekki þennan mann ekki neitt.
Með fyrir fram þökk.
Sísf.
Svar við síðari draum Sísíar.
Þessi draumur táknar efnahagsörðugleika,
þrátt fyrir það að ráðstafanir þínar gegn
þeim séu gerðar af einlægni. Þessu til við-
hótar fylgdu alls konar erfiðleikar, sem þá
var afstýrt. En þetta mun allt hafa stafað
af vanhugsuðum aðgerðum. Það er ágætt
boðorð að hugsa fyrst og hefjast siðan handa.
En sú hugsun þarf að mótast af hugarjafn-
vægi eða góðvild. Ákvarðanir, sem gerðar
eru, þegar fólk er í æstu skapi, eru jafnan
til sárra leiðinda og eftirsjár fyrir alla hlut-
aðeigendur. Þetta væri mörgum hollt að taka
til nánari athugunar, þar eð allar tegundir
neikvæðra geðshræringa hafa slæm áhrif á
heilsufarið.
Herra draumráðandi.
Mig dreymdi, að ég væri stödd, þar serm hraun
var. Þar kom til mín maður, sem bað mig að
hjálpa sér. Hann ætlaði að stela sér 20 kindum.
Ég færðist undan, en þá sagðist hann skyldu
bara taka mig og kindurnar líka, svo að ég lét
undan að fara með honum. Þar var fyrir kinda-
r^
©
II
VIKAN