Vikan - 08.12.1960, Blaðsíða 23
Um þessar mundir
mun Hallbjörg Bjarnadóttir vera stödd í Bandaríkj-
unum, og þar kom liún meðal annars fram í hinni
á”legu „Fiesta“ í Quebec. Þar hlaut bún feiknagóða
dóma, og sögðu blöðin eitthvað á þessa leið um hana:
„Eitt atriði enn þá vakti mikinn fögnuð, en það
var söngur miss Hallbjargar. Hún er snillingur í eftir-
bermum, syngur í fjórum röddum, sópran, tenór,
baríton og bassa. Hún getur líkt eftir röddum þrjátíu
manna, — allt frá A1 Jolson til Presleys. Hún söng
sérstakt lag fyrir borgarstjórann, — Parlez-moi d‘
amour (Talaðu við mig um ástina).“
Borgarstjórinn þakkaði fyrir sig með liandabandi,
og þá var myndin tekin.
Elke Sommer
heitir þessi unga stúlka og mun
vera 19 ára (hafi hún ekki átt
afmæli nú rétt í þessu). Hún
er sænsk að ætt og uppruna,
og meira vitum við eiginlega
ekki um hana. Þó sakar ekki
að geta þess, að hún er leik-
kona og hefur nú ráðið sig til
þess að leika i brezkum kvik-
myndum um hríð, en Bretum
líkar afbragðsvel við hana og
segja hana mikla leikkonu.
E'ngan dóm kunnum vér þar
á að leggja, en erum sammála
Bretanum í Því, að hún er
engilfögur. Elke Sommer er
gift tugþrautarkappanum Bob
Matthias.
Engir fætur
hafa hlaupið 1500 metra á jafnskömmum tíma og
þessir. Maðurinn, sem á þá, heitir Herb Elliot og er
heimsmethafi í 1500 metra hlaupi, brezkur að ætt
og uppruna, en á heima í Ástraliu. Hann sést sjálfur
þarna bak við fæturna á sér.
r
Nærri því eins dýrkeypt
og Marlene Dietrich er
Judy Garland, þegar
Skandinavía á að njóta
sönglistar hennar. Þó hef-
ur hún ekki með sér 25
manna hljómsveit frá Ame-
riku eins og Marlene; hún
hefur hara umboðsmann-
inn sinn, en þar sem hann
hefur bann starfa að finna þá 25 hljómlistarmenn,
sem eiga að aðstoða Judy i sönglistinni, veitir
honum ekkert af hýrunni. Og einhvern skilding
fær Judy sjálf.
J
Feg-ursti verkfrœðingur SvíþjóÖar og undrábarn
á sviöi tónlistar er ihún kölluö, þessi laglega stúlka.
Hún er aö sjálfsögöu sænsk, og hún heitir Ingela
Brander. 1 tómstundum sínum las hún til verkfrœöi-
prófs, og nú vinnur hún viö verkfrœöifyrirtceki. önn-
ur tómstundaiöja hjá henni er aö leika á saxófón,
og Jék hún meöal annars á þaö hljóöfæri i sjónvarpi
viö feiknahrifningu áheyrenda og áhorfenda.
Botnlanginn hennar
Grace prinsessu virðist ætla að bjarga
lækninum James A. Leliman, sem hef-
ur svikið sem svarar um 15 milljón-
um islenzkra króna undan skatti.
Henni líkuðu handtök hans svó vel,
þegar hann sneið úr henni botnlang-
ann í fyrra, að lnin hefur lagt inn gott
orð fyrir honum við bandaríska dóm-
stólinn, sem um málið fjallaði. Dóm-
stólnum varð svo við, að hann komst
ekki að neinni niðurstöðu og fór þess
á leit, að Fíladelfíudómstóllinn tæki
við málinu. Maðurinn hefur verið lát-
inn laus — fyrst um sinn.
Dirch Passer,
mesti gamanleikari Dan-
merkur, að því er sagt er,
á nú að fá tækifæri til að
sýna, hvað hann getur í al-
varlegri leik. Erik Popher
heitir á, sem ritar handrit-
ið að þeirri kvikmynd, sem
fjallar um hugsjónamann,
sem er á kafi í stjórnmál-
um (hvernig sem Það fer
saman). Aftan í þessa frétt er því hnýtt, að það sé
ekki aiveg víst, að bíógestunum stökkvi ekki bros,
þegar þeir sjá stjórnmálahugsjónamanninn á tjaldinu.
I pínulitlu Parísarblaði
(upplagið er eittbvað um 20.000 eintök) var ör-
lítil neðanmálsgrein, þar sem sagt var frá þvi,
að binn marghrjáði eiginmaður Birgittu Bardóttur
befði ákveðið að sofa i heilan mánuð samflevtt
til þess að mótmæla þvi, að konan hans er alltaf
að kvssa aðra karlmenn og klapna i kvikmynd-
um. Til þess að ná þessu markmiði birgði hann
sig unp að svefnlyfjum, sem hann ætlar siðan
að taka inn, ef hann skyldi bregða blundi fyrir
mánaðamót.
— Hvern á Birgitta litla að kyssa og klappa
á meðan?
FÓLK A FORNUM VEGI
Pólska skáldið Stanislav Jerzylec
hefur látið hafa þetta eftir sér:
— Ef samtalslistin væri á hærra stigi
á vorum dögum, væri fólksfjölgunin
ekki svona ör.
________________________________________________I'
Lífstykkið
LífstykkiS var helmingi of litið, og þess
vegna fékk afgreiðslustúlkan Betty Owens
1000 dollara skaðabætur fyrir skaða i baki,
sem hún varð fyrir, er hún var að reyra
lífstykkið utan um „kúnnann“. „Kúnninn",
— sem alltaf hefur rétt fyrir sér, — vildi
ekki heyra annað en hann kæmist í lifstykk-
ið og skipaði Betty litlu að toga sem fast-
ast i reimarnar — með þeim árangri, að
Betty tognaði i baki. Hún krafðist skaðabóta
og fékk þær vegna þess, að það sannaðist,
að lffstykkið var mörgum númerum of litið.
Þessa dömu rákumst við á i sumar. — Ja, sumar, segið
þið eflaust, — hvað er það? En það var, þegar við sáum
sólina öðru hverju og gengum yfirhafnarlaus um göturnar.
Ég vona, að þið fáið ekki hroll við tilhugsunina, þetta á
alls ekki að vera nein hrollvekja. Þetta er sagan um ungu
dömuna, sem við sáum í sumar i sólbaði, og hún lét sér
nægja að fara rétt út fyrir dyrnar heima hjá sér I staðinn
fyrir að þeytast í Nauthólsvík. Hún gleymdi vist líka sól-
olíu og teppi, en það gerir ekkert til, hún hefur nóg með
það að gera að verða brún, því að eins og þið sjáið. er
hún ekki orðin brún alls staðar. Við vorum að hugsa um
að lána henni sólgleraugu og Vikuna svona til afþreying-
ar, en hættum við Það, þar sem hún var svo upptekin
af því að verða brún á maganum. En eitt megið þið, stúlk-
ur mínar, taka ykkur til fyrirmyndar hjá þessari „Viku-
fyrirsætu", — hún notar engin brúnkumeðul, eins og við
höfum grun um, að „Alþýðublaðsfyrirsæturnar" úr Naut-
hólsvikinni geri.
Það steinleið yfir hana
Barböru Powers, konu bandariska
flugmannsins Francis Powers, sem nú
er fangi Krústjoffs, vegna þess að
forsætisráðherra Ráðstjórnarríkjanna
mislíkaði, að hann skyldi stýra flug-
vél sinni inn yfir rússneskt land. —
Hvenær leið yfir hana? Jú, það var,
þegar hún kom aftur til Bandaríkj-
anna, eftir að hún hafði verið við rétt-
arhöldin i Moskvu. Hún var ekki fyrr
komin út úr flugvélinni á Idlewild-
flugvelli í New York en hún datt nið-
ur sem dauð væri. En hún lifnaði fljót-
lega við og hélt þegar fund með blaða-
mönnum varðandi réttarhöldin. Á
myndinni er verið að reisa hana við
úr yfirliðinu.
Rainier prins er
góður sundmaður, að
því er sagt er, og
einkum klókur í að
synda í kafi. Einnig
munu honum fleiri
íþróttir til lista lagð-
ar, og svo mikið er
vist, að hann fylgist
vel með því, sem
fram íer á Ólýmpíu-
leikvanginum í Róm,
ef marka má þessa
mynd, sem þar er
tekin. Hins vegar fer
engum sögum af
íþróttagetu eða áhuga
Grace prinsessu og
þess eins getið um
hana í sambandi við
þessa mynd, að hit-
inn hafi verið svo
mikill, að fötin límd-
ust við hana, Aum-
ingja konan!
Ung og falleg
stúlka, aðeins íklædd hvitum náttlcjól, komst út á götu i fjöl-
menninu London (það er í Englandi), barst nokkurn spöl með
mannfjöldanum, en síðan hefur bvorki sézt af henni: tangur né
tetur. Scotland Yard vill meir en gjarnan fá að vita, hvernig bún
fór að því og livað af henni varð, því að bún var nefnilega í varð-
haldi, vegna þess að hún liafði ráðizt á aðra konu og leikið hana
grátt. Yfirlæknirinn á Middlesex-sjúkrahúsi hefur líka fullan liug
á að finna stúlkuna aftur, þvi að hún var fangi á spítalanum hjá
honum. Hún Iiafði nefnile; a kjálkabrotnað i viðureigninni við
hina konuna og getur hvorki etið né talað, fyrr en kjálkabrotið
er gróið.
Hún heitir Josey May Holton, er 25 ára, ung og falleg, sem
fyrr segir. Þegar hún réðst á konuna, gekk hún berserksgang,
en nú er hún einhvers staðar á náttserksgangi. Og nú auglýsir
Scotland Yard eftir ungri stúlku ó hvítum nælon-náttkjól.
22 VIKAK
vucam 23