Vikan


Vikan - 08.12.1960, Blaðsíða 43

Vikan - 08.12.1960, Blaðsíða 43
Okkar á milli sagt Góða Aldís! Þolinmæði min er á þrotum. Maðurinn minn, sem ég hef verið gift í 6 ár, hefur brugðist mér. Nýlega komst ég að því að hann átti vin- gott við aðra konu. Þau lofuðu bæði að hætta að hittast. Maðurinn minn fullvissaði mig um að það væri ég og börnin okkar tvö sem hann elskaði. Ég veit að hann tilbiður börnin, en hvað á ég að halda um ást hans til mín? Nú hef ég nefnilega komizt að því að hann hefur endurnýjað kunningsskapinn við þessa konu. Hvað get ég gert? Ég held næstum að ég vildi heldur missa hann alveg heldur en að eiga að búa við svona lagað allt mitt líf. Með kveðju, S. J. Svar: Þér finnst þetta skiljanlega lítt þol- anlegt, en ég vil nú samt benda þér á að margt er það til sem erfiðara er að umbera í hjónabandinu heldur en ótrúmennska. T. d. þegar eiginmaðurinn vanrækir að sjá heimilinu farborða, eða ef drykkjuskapur er mikill. Auðvitað er sárt til þess að vita að sá sem maður elskar og treystir er ótrúr, en það er samt heilög skylda að láta tillitið til þess sem er börnunum fyrir beztu ráða, og reyna að halda heimilinu saman. Eitt skulum við íhuga dálítið nánar. — Ef hjón eru fullkomlega hamingjusöm og ánægð í hjónabandinu, þá dettur hvorugu þeirra í hug að leita annað. Það liggur í augum uppi. Þess vegna er það að sú spurning vaknar. — Hvers vegna er svona komið? Af hverju fer hann sínar leiðir? — Trúlega hef- ur óánægja verið farin að gera vart við sig áður en fólk freistast til að taka framhjá. Svo margt er það og margvíslegt í hjóna- bandi sem enginn veit um nema þau tvö. Öll höfum við okkar galla, þótt erfitt sé stundum að finna eða viðurkenna sína eigin galla. Sá eða sú sem brýtur af sér í hjóna- bandinu er ekki endilega alltaf og skilyrðis- laust hinn seki. Hjón eiga að opna sig hvort fyrir öðru og vera hreinskilin hvort við annnð, tala út og reyna að vera sanngjörn. Ofurlítið um- burðarlyndi sakar ekki — en það kemur með árunum — vonandi! Innilegar kveðjur, Aldís. Hann er drykkfelldur! Kæra Aldfs! Ég er eins og það er kallaS, „táningi“, en er mjög ástfangin af manni sem er þó nokkuð eldri en ég og það versta er að hann drekkur of mikið. Þegar hann er edrú tekur hann ekkert eftir mér, þaS er bara þegar hann er undir áhrifum áfengis að hann er vingjarnlegur við mig og vill skipta sér af mér. Heldur þú aS hann sé hrifinn af mér eins og ég af honum? MeS fyrirfram þakklæti, Þín Steina. Svar: Nei, það held ég ekki. Þar sem hann hefur engan áhuga fyrir þér nema undir á- hrifum, er ég hrædd um að það sé vínið en ekki maðurinn sem talar. Auk þess þá er maður sem er svona drykkfelldur alls ekki eftirsóknarvert mannsefni fyrir þig. Vertu skynsöm og líttu í kringum þig meðal unga fólksins, það er árciðanlega miklu skemmti- legra og heilbrigðara. Kær kveðja, frá Aldísi. veitir yður tullkomið permanent og greiðslu að eigin vali—og það er Even-Flo hárliðunarvökvinn, sem leysir allan vandann Hið dásamlega nýja Toni gerir ySur ennþá auSveldara en yður gat áSur grunaS, aS setja permanent í háriS heima og leggja þaS siSan aS eigin vild, — en þaS er Even- Elo hárliSunarvökvinn, sem leysir allan vanda: — þvi hann' hæfir öllu hári og gerir þaS létt og lifandi, sem í raun og veru er aðalatriSi fagurrar hárgreiðslu, varanlegs og endingargóSs permanents. HVAÐ ER AUÐVELDARA? FylgiS aSeins hinum einföldustu leiðbein- ingum, sem eru á íslenzku, og permanent ySar mun vekja aSdáun, vegna þess hve vel hefur tekizt aS gera bylgjurnar léttar og lifandi. GENTLE fyrir auSliSaS hár SUPER fyrir erfitt hár REGULAR fyrir venjulegt hár. VELJIÐ TONI VIÐ YÐAR HÆFI. ■ 'loni—plasispólur hæla bezi hárinu

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.