Vikan


Vikan - 08.12.1960, Blaðsíða 28

Vikan - 08.12.1960, Blaðsíða 28
SANDBLÁSIÐ GLER Mynztur þessi eru eftir Ragnar og fást hjá Málmhúðun og ryðhreinsun, Ragnar Lárusson í' ffiW ' J&L. W ■•■ Sandblásið gler gegnir orðið tals- verðu hlutverki í húsbúnaði samtím- ans. Það er ekki algerlega nýtt fyrir- brigði, en mynztrin hafa breytzt eins og listformið yfirleitt. Fyrst þegar sandblásnar rúður sáust í hurðum eða innréttingum, þá voru þar róman- tísk mótív, svo sem svanir á vötnum og blóm. Margir hafa haft orð á því, að rómantíkin sé heldur leiðigjörn til lengdar, og nú er hún fágæt, — að minnsta kosti í sandblásnu gleri. Við höfum átt tal við ungan lista- mann, sem vinnur að Þvi um þessar mundir að teikna út mynztur og skera út dúk fyrir sandblástur. Hann heitir Ragnar Lárusson og starfar hjá Glerdeild Málmhúðunar og ryð- hreinsunar h.f., sem er þróttmikið fyrirtæki og hreinsar ryð og húðar með málmi, eins og nafnið bendir til. Gleirdeildin er nýr sproti á meiðin- um, og Ragnar ætlar að beita list- rænum hæfileikum sínum til gagns fyrir hana. Hann gerir teikningar á pappír, og síðan eru þær þrykktar á dúk, sem límdur er ofan á glerið. Þegar Ragnar hefur þrykkt myndina á dúk- inn, sker hann úr dúknum, þar sem rúðuna á að sandblása. Dúkurinn er svo seigur, að sandurinn vinnur ekki á honum. Við sáum heilt safn af teikningum, sem Ragnar hefur á staðnum, og hann ætlar að auka við það með tímanum. Sumir koma með eigin tejkningar, og þá er unnið eftir þeim. Fyrirtækið er staðsett heldur ut- arlega í bænum, á svonefndum Gelgjutanga, sem skagar út í Elliða- árvog. Það er- helzti afskekktur stað- ur fyrir slíkt fyrirtæki, en Ragnar taldi líklegt, að þeir kæmu upp sýn- ingarglugga niðri í bæ og þar gæfist fólki einnig kostur á að panta og velja teikningar. — Hvaða mynztur eru vinsælust, Ragnar? —- Það er óhætt að segja, að non- fígúratív mynztur eru langvinsælust, en við höfum hvort tveggja á boð- stólum. Ég get sagt ykkur til dæmis, að um daginn kom miðaldra kona og vildi fá nýja rúðu í stað gamall- ar, sem hafði brotnað. Það hafði ver- ið mynd af kríu í rúðunni, en konan sagðist vera orðin leið á kríunni og vildi fá eitthvað óhlutlægt. -— Kemur það ekki fyrir, að þú sért beðinn að teikna eitthvað sér- stakt? — Jú, og þá geri ég það. Hins vegar kostar það eitthvað um 200 krónur aukalega, en venjulega kostar teikningin ekki neitt sérstaklega. — Hvað kostar sandblásin rúða í meðalstóra hurð, miðað við að hún sé um það bil 50 cm frá gólfi? — Algengasta verðið á slíkri rúðu væri um 300 krónur, en það væri hægt að fá hana fyrir 150—200 krón- ur allra ódýrast. — Ætlarðu að snúa þér eingöngu að þessu, Ragnar, og leggja myndlist á hilluna að öðru leyti? — Nei, alls ekki. Ég mun halda áfram að fást við myndlist jafnframt þessari vinnu. Einkum ætla ég að leggja stund á svartlist. — Þú hefur fengizt talsvert við línóleumskurð, og það hefur auðvitað orðið þér góð undirstaða fyrir þetta starf. — Það er rétt. Svo vann ég í nokkra mánuði hjá Ársæli steinsmið, og þar lærði ég flest i sambandi við sandblástur. — Hvar hefur þú annars lært, Ragnar ? — Ég var í Handíða- og myndlist- arskólanum og lærði þar teikningu og málaralist. Síðar lærði ég leirmót- un hjá Tove Ólafsson og Ásmundi Sveinssyni og loks auglýsingateikn- ingar hjá Halldóri Péturssyni og Atla Má. — Þú ættir þá að hafa víðtæka undirstöðu. Hefurðu teiknað eitthvað af auglýsingum? — Það er lítið. Ég hef fengizt við leirinn og olíulitina, en þó fyrst og fremst línóleumskurð og teikningar. Ég var blaðamaður við Þjóðviljann um tíma og teiknaði í blaðið. Svo hætti ég þar, þegar ég byrjaði í glerinu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.