Vikan - 08.12.1960, Qupperneq 42
Framhald af bls. 3.
samt gaman af og vonumst til, að úrslitin verði
birt í Vikunni í nóvemberlok.
Þakka svo Vikunni allar ánœgjustundirnar.
Ein úti á landi.
Ég tók mér það bessaleyfi að birta bréf
þitt og vona, að þú fyrtist ekki við það.
Urslitin í keppninni: Hvað gerðist á þessum
stað? — munu hafa birzt í 45. tbl., en ekki
á eins fróðlegan hátt og þú vildir. Ég skal
nú reyna að bæta úr því fyrir þig: í fyrsta
blaðinu var mynd af Biskupsbrekku á Uxa-
bryggjaleið, og þar í brekkunni, sem blasir
við á myndinni, lézt Jón biskup Vídalín. í
öðru blaðinu er mynd úr Þjórsárdal af safni
á leið til rétta, og í baksýn eru Bringur.
Myndin er tekin af Gaukshöfða, en þar var
Gaukur Trandilsson veginn, að því er sagan
hermir. í þriðja blaðinu er mynd frá Hvít
árnesi, en þar voru gamlar rústir eftir fjöl-
skyldu, sum flúði byggð, er svarti dauði geis-
aði 1402. Þessi Iiður getraunarinnar reyndist
flestum fótakefli. Fjórða myndin er frá
Laugarvatni, en í þeirri laug var lík Jóns
Arasonar þvegið eftir aftökuna. Fimmta
myndin er frá Borg á Mýrum, en þar átti
Snorri Sturluson bú. — Nú vona ég, að þú
sért sátt við okkur vegna þessarar getraun-
ar, en úrslit í listaverkagetrauninni eru
ekki kunn, en verða birt í næstu blöðum.
Öll opnuð, — en ekki öll
birt
Kæra Vika-
Opnið þið öll bréf, sem pósturinn fær?
Tortrygginn.
Já, og það er af því, að tortryggni er líka
til hérna megin. Það hefur sem sé komið í
ljós, að sum bréfin eru alls ekki prenthæf.
— Þau kunna að vísu að vera allra skemmti-
legasta lestrarefni, en við megum ekki mis-
bjóða lesendunum.
Góða Vika.
Er hundsbit hættulegra á hundadögunum en
öðrum dögum? Af hverju heita þeir hunda-
dagar? Er það eftir Jörundi hundadagakon-
un3i? Snati.
Ég trúi, að hundsbit séu álíka hættuleg ár-
iýl um kring. Hundadagarnir eru nefndir
eftir Hundastjörnunni (Síríus) og eru frá
því 23/24 júlí til 23/24 ágúst. Það var einmitt
tíminn, sem Jörundur hundadagakonungur
„ríkti“ hér á landi.
Draumar
Framhald af bls. 16.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi eina nóttina að mér fannst ég
vera á balli og ég ráfa um allan salinn, því
mér fannst ég vera búin að týna veskinu mínu
og það er svart að lit og ég var alltaf að leita
að því ,svo kom ég auga á stelpu, sem ég þekki
lítið og hún var reykjandi og ég var svo undr-
andi yfir því, svo fannst mér vera kominn þarna
prestur og rétt á eftir þá fannst mér að ég ætti
að giftast þessum presti, en hvaða prestur það
er veit ég ekki en ég man það svo vel, að þetta
var prestur. Kvenmaðurinn, sem var reykjandi
heitir Berglind og ég rétt kannast við hana.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
Lilla Jóns.
Svar til Lillu Jóns.
Höfuð einkenni darumsins eru fyrst og
fremst missir veskisins, sem mundi merkja
mjög mikla erfiðleika en síðar mun rætast
úr því þar eð giftingin með prestinum er
tákn um velgengni. Það er ávallt ills viti
að vera kærulaus og það kemur fram þótt
síðar verði.
:iiiiiit::r:iiniiriiiÍiiiifiiiiilJ:ntlii:ilír-ini:^i.1 j : j . .
heimilistækin ‘hafa staðist
dóm reynslunnar
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
H.F. RAFTÆKJAVERKSMiÐJAN, HAFNARFIRÐI
111 I I T >11
i1 tu nii t ti rtiiti i
i mitf
9|Pr
líifc:-
42 YIJÍAM