Vikan


Vikan - 01.09.1960, Blaðsíða 3

Vikan - 01.09.1960, Blaðsíða 3
meiri árstekjur en forseti fslands, öll ríkis- stjórnin og allir alþingismennirnir saman- lagt, og meiri tekjur af einni grammófón- plötu, þegar vel gengur, en nemur Nóbels- verðlaununum. Og svo kalla menn þetta plágu, og hafa jafnvei við orð að stofna landssamband gegn Gaulverjum ... HVAÐ ÞÝÐIR ORÐIÐ „SKVÍSA“? Kæra Vika. Getur þú sagt okkur hvað orðið „SKVfSA“ þýðir, og hvernig það er upprunnið? Okkur er sagt að það sé afbökun á amerísku orði, sem sé bæði ljótt og gróft, en þó láta stúlkur hérna kalla sig þvi mótmælalaust, jafnvel í blöðun- um. Getur þú sagt okkur þetta? Vinsamlegast. Alla og Dedda. Það mun rétt vera, að orðið, sem „skvísan" er dregið af, hafi ekki sem fallegasta merk- ingu í munni amerískra. Það mun dregið af orðinu „squaw“, sem er runnið úr máli Indíána, og hefur þar merkinguna „kona“, en í munni bandarískra landnema merkti það Indíánakonu, sem hvítir tóku frillutaki, eins og komist er að orði í fornsögum, og síðan hefur það, einkum í munni bandarískra her- manna erlendis, verið fyrirlitningarheiti á „innfæddum“ kvenmönnum, sem þeir hafa bundið við skynditrúss, þar sem þeir hafa dvalist. „Squaws“ eru sem sagt stúlkur, sem standa þeim skör lægra vegna þjóðernis síns, og sem þeir hafa ekki neinar skyldur við, en mega leika eins og þeir vilja. Sómaheiti getur það því varla kallast, eða til stolts í máli okkar. TIL HVERS ERU SJOPPURNAR? Kæri póstur. Hvernig stendur á þvi, að ýmisskonar fýlu- pokar eru alltaf að'rifast og skammast út af því að unga fólkið eyði tímanum á sjoppunum? Eru sjoppurnar ekki einmitt til þess að unga fólkið sitji þar og eyði þar peningum sinum, og er það ekki fullorðna fólkið, sem hefur byggt þær og rekur þær í þeim tilgangi? Eða eru þær til annars? Ef þær eru aftur á mþti taldar hættulegar fyrir unga fólkið, hvers vegna lokar fullorðna fólkið þeim þá ekki? Eða er kannski til þess ætlast að unga fólkið hafi vit fyrir því eldra? Vill fullorðna fólkið ekki einmitt hafa okkur að féþúfu, og yfir hverju er það þá að skammast? Eða kannski að þeir ,sem eru að skamma okkur, eigi ekki sjoppur sjálfir, og sjái ofsjónum yfir að aðrir skuli geta grætt á okk- ur, en ekki þeir? Með beztu kveðjum. Ungur sjóari. Svo mörg eru þau orð. Jú, það eru víst þeir eldri menuirnir, sem eiga sjoppurnar og reyna að græða á yngra fólkinu, og setur því illa á þeim að vera að atyrða unga fólkið fyrir sjoppudvöl. En — ef unga fólkið sér fram á að eldra fólkið vill hafa það fyrir féþúfu, fyndist mér mannslegra af því að spyrna við fótum og hafa ráð fyrir sér. Óneitanlega hefur unga fólkið sína afsökun gagnvart því eldra, en hinsvegar er spurn- ing hvort sú afsökun dugi því til algerrar sýknu. Annars er bréf unga sjómannsins mjög athyglisvert og tilefni alvarlegra eftir- þanka. KÓNGAR OG DROTTNINGAR Á HVERRI ÞÚFU. Kæri póstur. Það er eins og mig minni, að við séum stund- um að stæra okkur af því að við séum mikil lýðræðisþjóð. Þó munu ekki fyrirfinnast fleiri kóngar og drottningar í nokkru riki í víðri ver- öld en hérna, og það eins þótt ekki sé tekið tillit til fólksfjölda —: sunddrottningar og sund- kóngar, taflkóngar, glímukóngar, fegurðar- drottningar og hver veit hvað. í mínu ungdæmi, þegar maður varð að sætta sig við Danakóng, hafði þetta heiti niðrandi merkingu yfirleitt, — þá var talað um fjallkónga í glensi og gamni, og horkónga i fyrirlitningartón, og hégómlegar og tilhaldssamar piur kallaðar „stássdrottning- ar“ og voru ekki taldar gæfuleg konuefni. Nú er þetta breytt, að þvi er bezt verður séð — nema öll þessi kónga- og drottningaruppnefni séu gefin i háði, og satt að segja hef ég lúmskan grun um að svo sé ... Með beztu kveðjum. Gosi. Bréfið er lengra. Ég er Gosa ekki alveg sam- mála um það, að þessir titlar séu veittir í háði, heldur er þetta kónga- og drottninga- stand okkar eins konar drægrastytting og gaman, og ætti ekki að vera neinum ofgott — sízt þeim, sem titilinn hljóta ... Nýtt umboð Við höfum tekiS við aðalumboði fyrir hin þekktu ELECTROLUX heimilistæki og mun- um kappkosta að hafa þau á lager eftir því sem unnt er, ennfremur varahluti í ELECROLUX heimilis- tæki. — Kiitun? Laugavegi 176. Sími 36200

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.