Vikan


Vikan - 01.09.1960, Blaðsíða 25

Vikan - 01.09.1960, Blaðsíða 25
muiímí99sfiii DÆGURLOG al unglingaiuia, enda eingöngu hagað laga- vali sinu samkvæmt Berti. smekk og óskum Þeirra. Við gengum á fund þeirra Falcon-manna kvöld eitt, er þeir höfðu lokið leik sínum í Sjálf- stæðishúsinu, og spurðum eftir höfuðpaurnum. Reyndist hann heita Berti Möller. —■ Þú ert ekki danskur, er það? — Nei, ég er enskur í aðra ættina, en íslenzkur í hina. —- Hefurðu verið með Falcon-sextettinum frá upphafi? — Fyrir tveimur árum spilaði ég um tíma með nokkrum af þessum strákum, trompetleikaranum, píanóieikaranum og trommuleikaranum. Nefnd- um við okkur þá Júpíter-kvartettinn. Seinna lék ég með Plúdó, eða Lúdó, eins og hljómsveitin heitir núna, og s.l. sumar. í mai eða júní, byrjaði ég svo í þessari hljómsveit. — Og var þetta Þá skírt Falcon? — Nei, Falcon-sextettinn var búinn að vera til í dálítinn tíma áður en ég kom inn í ... — ... og hrifsaðir völdin i þinar hendur? — Já, það má kannski segja það. — Hafið þið spilað mikið núna í sumar? — Svona tvö eða þrjú kvöld i viku. — Og hvar helzt? — 1 Vetrargarðinum, hér í Sjálfstæðishúsinu og stundum fyrir utan bæinn. •—• Hafið þið umboðsmann til að sjá ykkur fyrir vinnu og sjá um auglýsingar og annað sem með þarf ? — Nei, við gerum þetta allt sjálfir í samein- ingu, og eins að útsetja og æfa lögin. — Og gengur vel að hafa nýjustu lögin tilbúin nógu snemma? — Það gengur alveg furðanlega. — E'r ekki saxófónn heppilegra blásturshljóð- færi i svona músík heldur en trompet? — Jú, það er víst — en mér finnst trompet ágætur, og gefur hljómsveitinni annan blæ en tíðkast hér hjá fle6tum hljómsveitum. — Þið eruð allir undir tvítugu, er það ekki? — Við erum frá sextán til átján ára gamlir. Bassaleikarinn er yngstur. — Þið vinnið auðvitað eitthvað á daginn líka? — Já, ég held það. Ég hef unnið hjá Vegagerð ríkisins i sumar, en hef hugsað mér að byrja prentnám i haust. — Prentarastéttin eignast þá einn músikantinn ennþá. Hvers vegna velurðu prentiðnina? — Er það nokkuð verra en eitthvað annað? Ég hef kynnt mér málið lítilsháttar og mér lízt bara vel á prentið. — Hafið þið von um fasta vinnu einhvers staðar núna i vetur? — Við höfum litið hugsað um það, enda getum við ekki með góðu móti spilað nema tvö eða þrjú kvöld vikunnar. 1 Falcon-sextettinum leika: Berti Möller og Gissur Hölgason, sem leika á gítara og syngja, Eyjólfur Melsted, trompet, Geir Vilhjálmsson, píanó, Artúr R. Moon, bassa og Sigurjón Fjeldsted, trommur. BRÉFAVIÐSKIPTI Bergþóra Loftsdóttir, Arnórsstöðum, Jökuldal, N.-Múl., óskar eftir bréfaviðskiptum við pilta á Seyðisfirði, Norðfirði og Akureyri á aldrinum 14—1? ára. Anne Lund, Bakkevej 18, Köbenhavn F, Danmark, við pilta og stúlkur 15—16 ára. Judith Pooi, 164, Ashiawn Road, Rugby, War- wickshire, England, við pilta og stúlkur 16—17 ára. Jörgen Lindsten, Holma Köbmandshandel, Bone, Mön, Danmark, við stúlkur 18—19 ára. KVIKMYNDIR Laugarásbíó sýnir í TODD-AO: OKLAHOMA Kvikmyndin er gerð eftir samnefndum söngleik eftir Rodgers og Hammerstein, sem farið hefur sigurför um allan heim. Aðalhlutverkin leika: Gordon MacRae, Shirley Jones, Rod Steiger, G'har- lotte Greenwood, Gloria Graliam, Gene Nelson, Eddie Albert og James Wliitmore. Myndin hefst á því að ungur efnismaður byggð- arinnar er einn á ferð með hest sinn og mal einn morgunfagran dag. Hann syngur um morgunfeg- urðina og er léttur í skapi, því lifið leikpir við þessum unga manni. Hann er á leið heim til stúlk unnar, sem hann hefir kosið að bjóða á sumarhátíð sveitarinnar. Þegar Curly, sem leikinn er af Gordon MacRae, kemur heim á búgarð Laurey, en svo heitir stúlkan sem leikin er af Shirley Jones, kemst hann að því að hún er þver og móðguð, vegna þess hve seint hann kemur til að tilkynna henni boðið. Hún hefnir sín á honum með því að segja honum að hún hafi ákveðið að fara til samkom- unnar með vinnumanni sinum, Jud, sem leikinn er af Rod Steiger. Hefir hann fátt það til að bera sem gerir menn eftirsóknarverða í augum kvenna og verður þessi ráðstöfun Laurey, þvi Curly um- hugsunarefni. Hann snýr frá við svo búið og lætur á engu bera. Ungfrú Laurey líður heldur ekki vel. Hún sér mjög eftir þessari framkomu við Curly og vill nú breyta ákvörðun sinni og hætta við að fara með vinnumanninum til samkomunnar, til þess að geta farið með Curly. En það er um sein- an. Þegar nágrannarnir koma akandi í góðu skapi á leið til samkomuhalds koma þeir við á heimili Laurey og hefir Curly þá boðið með sér ungri stúlku sem hvergi nærri firinur náð fyrir augum Laurey, sem harmar nú mjög hlutskipti sitt. Skömmu áður en halda skal til samkomunnar sofnar Laurey og dreymir draum. sem veldur henni miklum áhyggjum og umhugsun. Hún sér glæsilegt brúðkaup sitt og Curly, en þegar brúðarslörinu er lyft er það ekki Curly, heldur Jud sem stendur frammi fyrir heitorði hennar. Fleira gerist í heimi draumanna og heimasætan vaknar til þess að halda af stað til samkomunnar — með Jud. E'kki höfðu þau langt farið tvö saman í vagninum er Jud reynir að fá hana kyssta með valdi. Við þau átök fatast. honum stjórn á hestunum og þeir fælast og hlaupa allt hvað af tekur með vagninn i eftirdragi, um skóga og akra og ófærur. Farþegunum er búinn mikill háski og er oft skammt bilið milli liís og dauða meðan sá leikur stendur. Að lokum stöðv- ast þó hestarnir og tekur Laurey þá til sinna ráða og hrekur frá sér fylgdarmann og kemst ein í vagni sínum til sumarhátíðarinnar. Rétt í þann mund er hefja skal böglauppboð til styrktar skóla- byggingu sveitarinnar kemur Jud og er þungt í skapi. Hverjum böggli fylgir kona í kaupbæti, eða réttara sagt, óskadans þeirrar stúlku er pakkanum fylgdi. Nú hefst hörð keppni milli Jud og Curly hvor þeirra skuli hreppa pakka Laurey. Leggja þeir báðir undir aleigu sína og hefir Curly betur. Hafði hann þá selt hest sinn og hnakk og kúreka- byssu sína til geta hækkað boðið. Jud verður æfur yfir þessum málalokum. Hefir í hótunum við Laurey og ætlar að beita hana valdi. Hún flýr þá á náðir Curly og játar honum ást sína, en segist jVtj aðeins hafa boðið Jud til þess að erta þann semtíi hún elskaði. En skemmst frá því að segja, að þarna verður skilningsgóður fundur sem endar með lang- þráðu vopnahléi, þannig að L^aurey og Curl ákveða að eigast. En brúðkaup þeirra síðan haldið með miklum glæsibrag heima á sveitasetrinu. Vinir þeirra og kunningjar undirbúa fornan brúðkaupsleik amer- ískan og reka brúðhjónin út á tún og upp í hey- sæti, sem stendur á túninu við bæinn. Allt í einu fara þau heysætin sem fjærst eru bænum að loga og hlaupa þá allir til að slökkva eldinn. Brúð- hjónin standa ein og yfirgefin eftir uppi í einu sætinu. Þá hleypur Jud til og leggur eld í sætið til þess þannig að búa keppinaut sínum þau örlög, sem bundið gæti endi á hamingju hans. Brúðhjón- unum tekst að stökkva niður af sætinu og mæta þá Jud í fullkomnum vígahug ... Myndirnar hér til hægri eru af Gordon MacRae, Shirley Jones, Rod Steiger, Charl.otte Greenwood. &6*Iuhii iifit luqfáffq VI K A N ' *

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.