Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 6

Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 6
6 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR eftir Lionel Bart ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ EINN VINSÆLASTI SÖNGLEIKUR ALLRA TÍMA. FRUMSÝNING 26. DES. 1.500 kr. 3.300 kr. 3.000 kr. 7.500 kr. GJAFAKORT ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Á EINSTÖKU TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA! Er jólaundirbúningur hafinn á þínu heimili? JÁ 58,7% NEI 41,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Styður þú áform ríkisstjórn- arinnar um afnám sjómanna- afsláttarins? Segðu þína skoðun á visir.is AP, ÍRAN Stjórnvöld í Teheran sam- þykktu í gær áætlun um að koma á fót tíu kjarnorkuverum í Íran. Tilkynningin kemur í kjölfar sam- þykktar nefndar Alþjóðlegu kjarn- orkumálastofnunarinnar frá því á föstudag, en þá var þess krafist að öllum framkvæmdum við verk- smiðju til auðgunar úrans, nærri hinnar heilögu borgar Qom, yrði hætt. Ríkisstjórnin samþykkti að fram- kvæmdir skyldu hafnar á fimm stöðum sem alþjóðasamfélagið hafði áður kannað. Þar að auki yrðu verk- smiðjur reistar á fimm nýjum stöð- um. Verksmiðjurnar yrðu af sömu stærð og sú sem er þegar tekin til starfa í Natanz. Þar eru nú um 8.600 skilvindur til auðgunar úrans, um 4.000 þeirra eru þegar í gangi. Fulltrúar Alþjóða kjarnorku- málastofnunarinnar vildu ekki gefa frá sér yfirlýsingu í gær og formlegra viðbragða Bandaríkja- stjórnar er enn beðið. Fulltrúi stjórnvalda sagði þó við alþjóð- legu fréttaveituna Associate Press, að áætlanirnar væru enn eitt brot Íransstjórnar á samþykktum alþjóðasamfélagsins. Íranir hefðu skuldbundið sig til að hætta öllum framkvæmdum við verksmiðjur til auðgunar úrans. „Það er enn möguleiki á því að írönsk stjórnvöld taki höndum saman með alþjóðasamfélaginu, ef þau kjósa svo að gera,“ sagði emb- ættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið þar sem formlegr- ar yfirlýsingar var beðið. Í verksmiðjunum er úrangas sett í skilvindur til að hreinsa það. Það er kælt niður og til verður eldsneyti fyrir kjarnakljúfa. Með því segist Íransstjórn ætla að framleiða 20 þúsund megavött af orku. Sé úran- ið auðgað enn frekar er hægt að nota það til að búa til kjarnaodda. Í samþykkt Alþjóða kjarnorku- málastofnunarinnar frá því á föstudag var friðsamur tilgangur Írana með framleiðslunni dreginn í efa og alvarlegum áhyggjum yfir því að ætlunin væri að framleiða sprengjur lýst yfir. Forseti Írans, Mahmoud Ahmad- inejad, tilkynnti ríkisstjórninni að koma þyrfti upp hálfri milljón skil- vinda í verksmiðjunum til að hægt yrði að framleiða 250 til 300 tonn af eldsneyti árlega. kolbeinn@frettabladid.is Tíu kjarnorkuver á teikniborðinu í Íran Írönsk stjórnvöld hafa tilkynnt um áætlun um byggingu tíu nýrra kjarnorku- vera. Bandaríkjamenn segja það skýrt brot á alþjóðlegum samþykktum. Talið er að um viðbrögð við samþykktum alþjóðasamfélagsins fyrir helgi sé að ræða. FUNDAÐ UM KJARNORKU Utanríkisráðherra Írans, Manoucherh Mottaki, fundaði með rússneska orkumálaráðherranum, Sergei Shmatko, í Teheran í gær. Rússar hafa lofað Írönum stuðningi til að ljúka fyrsta kjarnorkuverinu sem á að taka til starfa snemma á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAIÐNAÐUR Meðlimir nýstofn- aðra Samtaka um fuglatengda ferðaþjónustu telja mikla mögu- leika á þessu sviði hérlendis. „Með samtökunum er ætlunin að koma Íslandi almennilega á kortið hjá erlendum fuglaskoðurum sem áfangastað til fuglaskoðunar,“ segir Hrafn Svavarsson, formað- ur nýju samtakanna, í Útherja, blaði Útflutningsráðs Íslands. Þar kemur einnig fram að sex íslensk félög og fyrirtæki hafi nýlega sótt árlega ráðstefnu fuglaskoðun- armanna í Englandi til að vekja athygli á einstæðum möguleikum á Íslandi. Þá segir að um tuttugu milljónir Bandaríkjamanna fari árlega í fuglaskoðunarferðir. - gar Ný samtök reyna að efla ferðaþjónustu fyrir tugi milljóna fuglaáhugamanna: Ísland á kort fuglaskoðunar HAFÖRN Konungur íslenskra fugla er tilkomumikil sjón. Hér sést haförn í fangi Hildibrands Bjarnasonar á Bjarnarhöfn. MYND/RÓBERT A. STEFÁNSSON FÉLAGSMÁL Atvinnulaust fólk getur misst bótarétt hafni það störfum sem bjóðast í tvígang verði nýtt frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar að lögum. Frumvarpið hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og verður lagt fram á Alþingi í dag. Helsta breytingin felst í því að fólk sem hafnar vinnu í fyrsta skipti mun missa bætur í tvo mán- uði. Hafni það vinnu öðru sinni mun það missa allan bótarétt, og ekki öðlast hann á ný fyrr en það hefur verið í launaðri vinnu í sex mánuði, segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra. Einnig verða gerðar breytingar á bótum sem fólk getur fengið sé það ekki í fullu starfi. Ekki verð- ur hægt að fá hlutabætur nema starfsskerðing nái 20 prósent- um, en auk þess verður hámarks- greiðsla rúmlega 521 þúsund krónur. Það þýðir að sé einstakl- ingur með 500 þúsund króna laun fyrir 50 prósenta starfshlutfall fær hann í mesta lagi um 21 þús- und krónur í atvinnuleysisbætur til viðbótar. Með þessum breytingum er ætl- unin að spara um 800 milljónir króna á fyrri helmingi næsta árs, segir Árni Páll. Þeirri upphæð á að verja í ný vinnumarkaðsúrræði fyrir ungt fólk. - bj Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp um hertar reglur um atvinnuleysisbætur: Fólk missir bótarétt hafni það vinnu ÚRRÆÐI Árni Páll Árnason félagsmála- ráðherra segir það fé sem sparist fara í ný vinnumarkaðsúrræði fyrir ungt fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Sigríður Ingibjörg Inga- dóttir, þingmaður Samfylkingar- innar, hefur óskað eftir að lagðir verði fram á Alþingi listar yfir það fólk sem skilanefndir gömlu bank- anna og nýju ríkisbankarnir hafa skipað í stjórnir fyrirtækja sem hafa verið yfirtekin. Þingmaðurinn biður um að fram komi í hvaða stjórnir bankar og skilanefndir hafi skipað og hverj- ir séu stjórnarmenn og stjórnar- formenn í umboði banka og skila- nefnda. Einnig hvort bankar og skilanefndir hafi sett sér reglur um hvernig skipa eigi í stjórnir af þessu tagi og hvort þær reglur taki þá mið af jafnréttislögum. - pg Bankar og skilanefndir: Vill upplýsingar um stjórnendur KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.