Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 14
14 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
Þín undirskrift skiptir máli!
Farðu á www.isci.is
Mænan er ráðgáta –
en saman getum við leyst hana.
Skrifum öll undir samnorræna áskorun
til WHO um að láta til sín taka.
Norðurlöndin skora á WHO!
SKRÚÐGANGA Skrúðganga stórversl-
unarinnar Macy´s í Bandaríkjunum fór
fram fyrir helgi, eins og alltaf á þakk-
argjörðarhátíðinni. Risastórir strumpar
tóku þátt í skrúðgöngunni að þessu
sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ATHAFNAVIKA Valdís Steinarsdóttir
hlaut fyrstu verðlaun í hugmynda-
samkeppni framhaldsskólanna
Snilldarlausn - Marel sem haldin
var samhliða Alþjóðlegu athafna-
vikunni í þarsíðustu viku. Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra
afhenti verðlaunin við hátíðlega
athöfn í menntamálaráðuneytinu
á fimmtudag.
Þátttakendur í keppninni áttu að
auka virði hlutar sem ekkert kost-
aði, taka virðisaukninguna upp á
myndband og senda inn á netsíðu
keppninnar. Myndböndin þóttu
afar haganlega gerð og má sjá þau
bæði á síðu Snilldarlausna og á
YouTube.
Hluturinn var herðatré og bjó
Steinunn til svokallað „Gítar tré“
úr því. Á tréð má setja gítar og
hægt að hengja hann upp hvort
heldur er á vegg eða inn í skáp.
Verðlaunaféð nemur eitt hundrað
þúsund krónum.
Þeir Ari Páll Ísberg og Elís
Rafn Björnsson fengu verðlaun
fyrir frumlegustu hugmyndina en
Kristinn Pálsson fyrir flottasta
myndbandið sem sýndi hvernig
virði herðatrésins var aukið.
Þetta var fyrsta skiptið sem
keppnin var haldin og bárust svo
hugmyndaríkar lausnir að dóm-
nefnd átti erfitt með að úrskurða
um sigurvegarann, samkvæmt
aðstandendum athafnavikunnar.
Þá taldi dómnefnd vinningstil-
lögurnar það góðar að þær kunni
að fara í framleiðslu síðar meir
með örlítilli fínpússun. - jab
FRÁ AFHENDINGU VERÐLAUNA Valdís
Steinarsdóttir ásamt öðrum vinnings-
höfum og aðstandendum Alþjóðlegu
athafnavikunnar.
Valdís Steinarsdóttir hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndakeppni framhaldsskólanna:
Bjó til ókeypis tré fyrir gítara
LJÓSIN TENDRUÐ Oslóartréð eftir að kveikt var á ljósum þess
í fyrsta sinn.
LÚÐRASVEITIN HEILLAR Þessir krakkar horfðu spenntir á félaga
úr Lúðrasveit Reykjavíkur spila vel valin jólalög.
HLÝJA Í KULDANUM Margir yljuðu sér með kaffi eða heitu súkkulaði í kuldanum á Austurvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEL BÚIN Þessi unga stúlka fylgdist með athöfninni á Austur-
velli.
Auglýsingasími
– Mest lesið
FÓLK Ljós voru tendruð á Oslóartrénu við Aust-
urvöll við hátíðlega athöfn í gær, fyrsta sunnu-
dag í aðventu. Fjöldi fólks var á Austurvelli þegar
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykja-
víkur, tók við trénu af Aud Kvalbein, varaborgar-
stjóra Oslóar.
Líkt og undanfarin þrjú ár prýðir jólaórói
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra tréð auk hinna
hefðbundnu ljósa. Vöruhönnuðurinn Hrafnkell
Birgisson hannaði óróann Ketkrók í ár og rithöf-
undurinn Gerður Kristný orti kvæði sem fylgir
honum og frumflutti það við athöfnina í gær. Jóla-
óróinn er seldur í desember til styrktar æfinga-
stöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, þar sem
umfangsmesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á land-
inu fer fram. - þeb
Oslóartréð tendrað
Fjöldi fólks fylgdist með því þegar ljós voru tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli
í gær. Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra prýðir tréð auk ljósanna í ár.
JÓLASVEINAR Í BÆNUM Þrír hressir jólasveinar heilsuðu upp á
börnin á Austurvelli þegar kveikt hafði verið á ljósum trésins.
UTANRÍKISMÁL Samtök hernaðar-
andstæðinga vilja að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild
Íslendinga að Atlantshafsbanda-
laginu. Samtökin ályktuðu þess
efnis á landsráðstefnu um helgina.
Í ályktuninni segir að þjóð-
in hafi aldrei verið spurð með
beinum hætti um afstöðu sína til
aðildarinnar. Nató hafi á síðustu
misserum „varpað grímunni og
kemur nú fram sem hreinræktað
árásarbandalag“. Samtökin skora
á Alþingi að halda slíka kosningu
samhliða sveitarstjórnarkosning-
um, kosningu til stjórnlagaþings
eða mögulegum kosningum um
aðild að Evrópusambandinu. - kóp
Hernaðarandstæðingar:
Vilja Nató fyrir
þjóðaratkvæði