Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 18
„Vikings er bardaga- og herk-
ænskuspil sem er innblásið af
ævintýralegum blæ Íslendinga-
saga, töfrablæ galdrarúna og yfir-
náttúrulegra vætta,“ segir Sölvi
Sturluson Snæfeld, annar höfunda
Víkingaspilsins, en hinn er Svav-
ar Björgvinsson. „Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á Íslendinga-
sögunum og sögum um víkingana
en Svavar er hins meiri kunnáttu-
maður í spilagerð. Við splæstum
þekkingu hvor annars og til varð
á þremur mánuðum, Vikings-spil-
ið. Þetta var svona dæmigerð-
ur íslenskur drifkraftur en spil-
ið er alíslenskt, bæði hönnunin og
hugvitið og svo er það prentað hjá
Odda,“ segir hann.“
Aðalmarkmið spilsins er að
verða landshöfðingi yfir Íslandi
en til þess þarf að berjast um
yfirráð yfir sýslum, ná höfnum
eða berjast um höfuðból andstæð-
inganna með berserkinn í fremst-
an í flokki. „Spilið er fyrir tvo til
fjóra leikmenn, tíu ára og eldri.
Það eru takmörk fyrir því hversu
margir menn geta verið á hverju
landsvæði svo hver hernaðarleið-
angur þarf að vera úthugsaður.
Menn fá skatt af sýslum sínum
sem nota má til þess að kaupa nýja
víkinga, berserki eða greiða fyrir
skipsferðir. Skipareitirnir flýta
nefnilega fyrir ferðum í kring-
um landið,“ segir Sölvi. Líf vík-
inga er ekki alltaf dans á rósum
enda logar Ísland í átökum í spil-
inu og enginn veit hvað næsta ten-
ingakast ber í skauti sér. Stundum
mega leikmenn draga rúnakort,
sem er nokkurs konar örlagakort.
„Örlögin geta leikið víkingana
grátt, rétt eins og í venjulega líf-
inu en stundum færa þau lukku.
Það eru dæmi um að örlögin sendi
berserk í útlegð en þau geta líka
hjálpað honum eins og með skips-
ferðir,“ Víkingaspilið, sem er í
skemmtiegri öskju, kemur bæði
út á íslensku og ensku. „Það eru
fjölmargir útlendingar sem hafa
áhuga á íslenskri sögu og vík-
ingum. Þetta er skemmtileg leið
til þess að lifa sig inn í víkinga-
heima.“ - uhj
Ísland logar í
átökum víkinga
Víkingaspilið er fyrir alla þá sem hafa gaman af spilum þar sem beita
þarf kænsku en ekki síður að biðja örlagadísirnar um slatta af heppni.
Íslandskortið lítur út eins og fyrir nokkr-
um öldum og rúnaspjöldin í sama stíl.
Sölvi og Svavar eru ekki enn búnir að fá nóg af því að spila víkingaspilið.
Elísabet Englandsdrottning,
Karl Bretaprins og konan
hans Camilla, Angela Merk-
el, kanslari Þýskalands, Pútín
Rússlandsforseti, Barack Obama og
Nicholas Sarkozy eru meðal þeirra
sem gætu svamlað um í teboll-
um Íslendinga. Það eina sem þarf að gera
er að fara á vefsíðuna www.donkey-prod-
ucts.com og þá opnast nýr heimur furðu-
legra hluta sem vekja kátínu. Tepokarnir af
bresku konungsfjölskyldunni, stjórnmála-
leiðtogum heimsins og strippurum tækju sig
vafalaust vel út í hvaða tebolla sem er. - sg
Tepokar með karakter
FYRIRTÆKIÐ DONKEY PRODUCTS HEFUR
Á BOÐSTÓLUM FURÐULEG-
USTU NYTJAHLUTI. MEÐAL
ANNARS TEPOKA MEÐ
ANDLITUM FRÆGRA
STJÓRNMÁLAMANNA.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Elísabet Englandsdrottn-
ing lætur fara vel um sig í
bollanum. Angela Merkel,
kanslari Þýskalands,
svamlar í ávaxtatei.
Sarkozy,
stripp-
ari og
Elísabet
II. Góður
félags-
skapur við
tedrykkjuna.
SLÉTTIR DÚKAR geymast vel og taka ekki í sig
brot, ef þeir eru hengdir á slá á tvöföldu herðatré. Auð-
veldlega má hengja tvo til þrjá dúka á hvert herðatré.
Eileen Gray (1878-1976) var
heimsþekktur írskur húsgagna-
hönnuður og arkitekt. Hún
hafði töluverð áhrif á hús-
gagnahönnun á tuttugustu öld.
Meðal þekktra verka eru E1027
sófaborðið og Bibendum stóllinn.
www.wikipedia.org
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 30. nóvember
Miðvikudagur 2. desember
Fimmtudagur 3. desember
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir æfingar sem hjálpa
fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann.
Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng-
um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.00 -14.00.
Þunglyndi – Margrét Arnljótsdóttir sálfræðingur fjallar
um einkenni, orsakir og viðbrögð við þunglyndi.
Tími: 13.30-15.00.
Skiptifatamarkaður - Úti- og spariföt barna -
Tími: 13.30 -17.00.
Baujan sjálfstyrking - Fullt! Tími: 15.00 -16.30.
Reiði og sátt - Fjallað um fyrirgefningu og sátt við
sjálfa sig og aðra. Tími: 15.00-16.30.
Föndur, skrapp-myndaalbúm og jólakort - Nýr
tími! Gott er að hafa skæri meðferðis. Tími: 12.00-14.00.
Uppeldi sem virkar - Agi og viðurlög - Hvaða refs-
ingar og verðlaun eru viðeigandi? Tími: 12.30-13.30.
Saumasmiðjan - Ertu stopp í saumaskapnum? Getur
þú ekki klárað flíkina? Fáðu leiðbeiningar og komdu
með saumavél ef þú getur. Tími: 13.00-15.00.
Umburðarlyndi - Opnar umræður - Viltu tjá þig?
Heyra hvað öðrum finnst? Tími: 14.00-15.00.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Hátíðarís - Ætlar þú að bjóða upp á gamla góða ísinn
um jólin eða viltu prófa eitthvað nýtt? Góð ráð, nýjar
hugmyndir og smökkun í lokin. Tími: 12.30 -13.30.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri! Tími: 12.30 -13.30.
Íslenskuspilið – Viltu læra meiri íslensku? Komdu og
spilaðu með! Allir velkomnir. Tími: 13.00-15.00.
Spurningakeppni – Er þú ein/n af þeim sem veist
alltaf svarið þegar aðrir eru að keppa? Komdu og sannaðu
hvað þú kannt. Tími: 14.00-15.00.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri
og gleði? Tími: 15.30-16.30.
Föstudagur 4. desember
Facebook - Lærðu á samskiptavefinn. Tími: 12.00-14.00.
Psychosocial support - Improve your ability to cope
with crisis and trauma. Tími: 12.30-14.00.
Prjónahópur - Vertu með! Tími: 13.00-15.00.
Kínversk rittákn og matur- Grunnþættir kínverskra
tákna og tilurð þeirra tengdum mat. Tími: 14.00-15.00.
Skákklúbbur - Komdu og tefldu! Tími: 15.30-17.00.
Allir velkomnir!
Skokkhópur - Við skokkum saman og förum svo í heita
pottinn í Laugardalslaug. Tími: 13.00-16.00.
Tölvuaðstoð - Fyrir alla. Tími: 13.30-15.30.
Brids - Lærðu að spila Brids hjá fyrrum heimsmeistara.
Tími: 14.00-16.00.
Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina: Leyndar-
dómur Býflugnanna eftir Sue Monk Kidd.
Tími: 14.00-15.00.
Spænska í daglegu lífi - Lærðu nýtilegar setningar
fyrir almenna tjáningu á spænsku. Tími: 15.00-16.30.
Þriðjudagur 1. desember
Rauðakrosshúsið
CCP á Íslandi - Forsvarsmaður starfsmannadeildar
kynnir fyrirtækið, vörur og framatækifæri bæði í Reykja-
vík og í útlöndum. Tími: 12.00-13.40.
Áhugasviðsgreining - Taktu áhugasviðskönnun og
fáðu einkaráðgjöf í framhaldinu. Skráning nauðsynleg.
Tími: 13.00-15.00.