Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 39

Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 39
MÁNUDAGUR 30. nóvember 2009 23 Ljóta andarunga-saga hinnar 48 ára Susan Boyle heldur áfram. Fyrsta plata Britain’s Got Talent- stjörnunnar fer beint á topp sölu- listans í Bretlandi. Fyrsta sólar- hringinn seldust 134.000 eintök af plötunni, I dreamed a dream, en 400.000 eintök eru talin munu seljast fyrstu vikuna. Susan tekur alla keppinauta rækilega í nefið. Ný plata strákabandsins JLS, sem kom út á sama tíma og er helsti keppinautur Susan, seld- ist ekki nema í 29.000 eintökum. Susan beint á toppinn VINSÆL Susan Boyle virðist hafa sitthvað til brunns að bera. Dómur féll í máli móður leikkon- unnar Tori Spelling gegn þjón- ustustúlku sinni. Forsaga málsins er sú að þjónustustúlkan sagði Candy Spelling sérstaklega nísk- an vinnuveitanda og að verslun- arkeðjan Wal-Mart hafi meira að segja fundað með Spelling til að fá ráðleggingar um hvernig megi spara útgjöld enn frekar. Spell- ing var ósátt við ummælin og fór í mál við stúlkuna en endaði þó með því að semja við hana og greiða henni fjárhæð, sem Spell- ing þótti augljóslega ekki sérlega há ef dæma má þessi orð hennar: „Hún fékk ekki háa fjárhæð, en kannski er þetta mikil summa í þernupeningum.“ Nísk kona NÍSK Candy Spelling giftist framleið- andanum Aron Spelling og hefur aldrei unnið handtak, hún er þó með eindæmum nísk. Kjartan Halldórsson í Sægreifanum á Geirsgötu hefur vakið heimsathygli með humarsúpunni sinni. Í dag kynnir hann til sögunnar nýja súpu, sem hann kallar Sæagra. „Þetta er orkurík hamingjusúpa. Í henni eru sæbjúgu og ýmislegt annað sem ég gef ekki upp hvað er,“ segir Kjartan. Hann segir Austurlandabúa óða í sæbjúgu og að vissu leyti sé fyrirbærið van- nýtt á Íslandi. Sæbjúga telst til skrápdýra, það er að segja, það er hvorki fiskur né gróður. Sæbjúgu eru talin heilnæm, meðal annars góð fyrir húð, augu og þvagfærakerfi. Síðast en ekki síst eru sæbjúgun sögð hafa jákvæð áhrif á kynorku og þaðan kemur nafn súpunnar, Sæagra. „Dauðir fuglar lifna ekki við þótt þeir fái sér súpu, en ef eitthvað er í gangi á annað borð þá getur sumt farið af stað,“ segir Kjartan og dregur augað í pung. Hin heimsfræga humarsúpa Sægreifans hefur selst í óhemju magni í gegnum tíðina og verður að sjálfsögðu áfram á boðstólum. Sæagrað er bara við- bót. „Hún verður nokkrum hundraðköllum ódýr- ari en humarsúpan og ég á fastlega von á að hróð- ur hennar berist jafn víða. Enda er hún svakalega bragðgóð,“ segir Kjartan. - drg Sæagra á boðstólum Sægreifans SUMT AÐ FARA AF STAÐ? Kjartan mataður af Sæagra. Til stendur að færa hinn væntan- lega tölvuleik Dark Void yfir á hvíta tjaldið. Indverski framleiðandinn Reliance BIG Entertainment og Plan B, sem er í eigu Brads Pitt, hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að leiknum. Hugsanlega mun Pitt fara með aðalhlutverkið. Dark Void er þriðju persónu skotleikur sem fjallar um flugmanninn Will sem brotlendir flutningavél í Bermúda-þrí- hyrningnum. Þar hverfur hann inn í aðra veröld þar sem hópur manna þarf að berjast við brjálaðar geimver- ur. Tölvuleikurinn er væntanlegur í janúar. Kvikmyndar tölvuleik BRAD PITT Kvik- myndafyrirtæki Pitt ætlar að færa tölvu- leikinn Dark Void yfir á hvíta tjaldið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Jólako rt og jólafr ímerk i Ætting jar vil ja sjá myndi r. Nú ge tur þú hann að þín eigin jólako rt og j ólafrím erki á www. postu r.is 

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.