Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 42

Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 42
26 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR Enska úrvalsdeildin Aston Villa - Tottenham 1-1 1-0 Gabriel Agbonlahor (9.), 1-1 Michael Dawson (76.). Fulham - Bolton 1-1 0-1 Ivan Klasnic (34.), 1-1 Damien Duff (74.). Manchester City - Hull 1-1 1-0 Shaun Wright-Phillips (45.), 1-1 Jimmy Bullard (81.). Portsmouth - Manchester United 1-4 0-1 Wayne Rooney (24.), 1-1 Kevin Boateng (31.), 1-2 Wayne Rooney (47.), 1-3 Wayne Rooney (53.), 1-4 Ryan Giggs (86.). West Ham - Burnley 5-3 1-0 Jack Collison (17.), 2-0 Junior Stanislas (33.), 3-0 Carlton Cole (42.), 4-0 Guillermo Franco (50.), 5-0 Luis Jimenez (63.), 5-1 Steven Fletcher (67.), 5-2 Steven Fletcher (73.), 5-3 Chris Eagles (94.). Wigan - Sunderland 1-0 1-0 Hugo Rodallega (75.) Arsenal - Chelsea 0-3 0-1 Didier Drogba (40.), 0-2 Thomas Vermaelen, sjálfsmark (45.), 0-3 Didier Drogba (85.). Everton - Liverpool 0-2 0-1 Javier Mascherano (11.), 0-2 Dirk Kuyt (79.). Wolves - Birmingham 0-1 0-1 Lee Bowyer (2.) STAÐAN Chelsea 14 12 0 2 36-8 36 Man. United 14 10 1 3 30-13 31 Tottenham 14 8 2 4 33-19 26 Arsenal 13 8 1 4 36-18 25 Liverpool 14 7 2 5 31-20 23 Aston Villa 14 6 5 3 22-14 23 Man. City 13 5 7 1 24-17 22 Sunderland 14 6 2 6 21-20 20 Stoke City 14 5 5 4 13-15 20 Fulham 14 5 4 5 18-16 19 Birmingham 14 5 3 6 12-14 18 Burnley 14 5 2 7 19-31 17 Blackburn 14 5 2 7 16-28 17 Wigan 14 5 2 7 15-31 17 Hull City 15 4 4 7 17-31 16 Everton 14 4 3 7 17-25 15 West Ham 14 3 5 6 24-26 14 Bolton 13 3 3 7 16-27 12 Wolves 14 2 4 8 12-27 10 Portsmouth 14 2 1 11 11-23 7 Spænska úrvalsdeildin Barcelona - Real Madrid 1-0 1-0 Zlatan Ibrahimovic (56.) ÚRSLIT FÓTBOLTI Chelsea er í góðum málum á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 útivallarsigur á Arsenal í Lundúnaslag í gær. Fyrr um dag- inn vann Liverpool sigur á Evert- on, 2-0, í öðrum borgarslag og er nú komið upp í fimmta sæti deild- arinnar. Sigur Chelsea í gær var glæsi- legur. Liðið skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og innsiglaði svo sigurinn með marki í lok leiksins. Didier Drogba skoraði tvö mark- anna en þar að auki varð varna- maðurinn Thomas Vermaelen fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Það var fátt um færi þar til mörkin komu en þau komu með skömmu milli- bili og bæði eftir fyrirgjöf Ashley Cole. Fyrst stýrði Drogba boltanum upp í markhornið og svo gerði Vermaelen það nákvæm- lega sama örfáum mín- útum síðar. Arsenal náði reyndar að koma k net t i num í netið í seinni há lf leik en markið var dæmt af þar sem Eduardo þótti brjóta á Petr Cech, markverði Chelsea. Drog- ba skoraði svo glæsi- legt mark bei nt ú r aukaspyrnu undir lok leiksins en hann hefur alls skorað tíu mörk í níu leikjum gegn Arsenal. Þrátt fyrir góða stöðu liðsins sagði John Terry, fyrirliði Chel- sea, að leikmenn þyrftu að halda ró sinni. „Við höfum verið í þessari stöðu áður,“ sagði Terry. „Við þurfum fyrst og fremst að halda einbeit- ingunni en það er frábært að sjá hversu duglegir við erum að berj- ast hverjir fyrir aðra. Við erum að spila virkilega vel, erum með mikið sjálfstraust og góðan lið- sanda. Við þurfum að halda áfram á þessari braut.“ Arsene Wenger fannst sínir menn óheppnir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik eftir ágæta frammistöðu. En hann skildi ekki ákvörðun dómarans að dæma markið sem Andrei Arshavin skor- aði ógilt. „Það skilur enginn hvað dómarinn var að hugsa. Ég hef séð upptöku af þessu fimm sinnum og það kemur enginn við Cech. Hann missir bolt- ann og við skorum. En þá dæmir dómar- inn markið ógilt.“ Sigur Liverpool í gær var afar mikilvægur og þó svo að liðið hafi ekki sýnt allar sínu bestu hliðar skipti öllu máli að ná í stigin þrjú. Liverpool féll í vikunni úr leik í Meistaradeild Evrópu þrátt fyrir sigur gegn ungverska liðinu Debrecen. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði sigurinn í gær því afar mikilvægan. „Við unnum Debrecen í vikunni og við vissum að við þurftum að halda áfram að vinna leiki,“ sagði Benitez. „Grannaslagir sem þess- ir eru ávallt mjög erfiðir og sigur í þessum leik gæti gefið tóninn fyrir síðari hluta tímabilsins. Við erum nú ofar í stigatöflunni, allir eru ánægðir og við ætlum því að reyna að halda okkur á þessari braut.“ Manchester United vann á laug- ardaginn 4-1 sigur á Portsmouth á útivelli þar sem Wayne Rooney skoraði þrennu. Ryan Giggs skor- aði fjórða markið en hann hélt svo upp á 36 ára afmælið sitt í gær. „Til hamingju með afmælið,“ sagði Alex Ferguson, stjóri Unit- ed, eftir leikinn. „Hann hefur nú haldið upp á 36 afmæli en bíddu bara þar til hann verður 67 ára. En ætli hann verði ekki hættur að spila þá,“ bætti Ferguson við. „En hann er einstakur leikmað- ur og sjaldgæft að sjá menn eins og hann. Hann getur spilað í tvö ár til viðbótar.“ eirikur@frettabladid.is Chelsea virðist algerlega óstöðvandi Chelsea hélt fimm stiga forystu sinni á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 3-0 sigri á Arsenal á útivelli. Liðið er ellefu stigum á undan Arsenal og hefur nú unnið öll hin þrjú „stórlið“ deildarinnar á tímabilinu. MASCHERANO Fagnar hér fyrra marki Liverpool í gær. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Varamaðurinn Zlatan Ibrahimovic var hetja Barce- lona í gær er hann tryggði sínum mönnum 1-0 sigur á erkifjendun- um í Real Madrid. Markið skoraði hann á 56. mínútu, aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður fyrir Thierry Henry. Markið var glæsilegt. Dani Alves átti fyrirgjöfina frá hægri kantinum og Zlatan þrumaði knettinum viðstöðulaust í netið á fjarstöng. Cristiano Ronaldo var í byrjun- arliði Real Madrid eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla en hann fékk gott færi um miðjan fyrri hálfleikinn. Victor Valdes, markvörður Barcelona, sá hins vegar við honum. Leikurinn var nokkuð opinn og skemmtilegur en þrátt fyrir það markalaus í fyrri hálfleik. Aðeins sjö mínútum eftir mark Ibrahimovic urðu heimamenn fyrir áfalli. Sergio Busquets hand- lék knöttinn og fékk þar með sína aðra áminningu í leiknum. Real Madrid náði þó ekki að færa sér liðsmuninn í nyt. Ron- aldo fékk annað gott færi er hann skallaði boltann yfir eftir fyrir- gjöf Barcelona en það reyndist hans síðasta snerting í leiknum. Bæði lið fengu ágæt færi á loka- kafla leiksins en Lionel Messi, leikmaður Barcelona, fékk þó besta færið í blálok leiksins. Hann var kominn einn gegn Iker Cas- illas markverði en lét verja frá sér af stuttu færi. Lassana Diarra, leikmaður Real, fékk svo að líta rauða spjald- ið eftir að hann fékk sitt annað gula spjald í uppbótartíma. Með sigrinum endurheimti Bar- celona toppsæti deildarinnar og er nú með tveggja stiga forystu á Real Madrid. - esá Barca hafði betur í „El Clasico“ á heimavelli í gær: Zlatan sá um Real DROGBA HAFÐI BETUR Didier Drogba skoraði tvö mörk í gær. Hér er hann í baráttu við landa sinn frá Frakklandi, William Gallas. NORDIC PHOTOS/AFP HETJAN Zlatan Ibrahimovic er sjálfsagt kominn í guðatölu stuðningsmanna Barcelona eftir að hann skoraði sigurmarkið gegn Real Madrid í gær. NORDIC PHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.