Veðrið - 01.04.1958, Síða 16

Veðrið - 01.04.1958, Síða 16
III. mynd. Daglegar sveiflur hitans i hitabeltis- lofti norðan lands og sunnan i júli- mánuði 1955. ar það fyrst um 1° C pr. 100 m, þar dl rakinn í því þéttist, en úr því er kólnunin 0.5° C pr. 100 m. Uppi á hálendinu (1000 m) ætti því lofthitinn að vera nálægt 2 stigum. Hlémegin leitar nú loftið niður á við og hitnar þá um 1° C pr. 100 m. Er þá gert ráð fyrir, að rakinn hafi að mestu fallið úr loftinu. Við sjávarmál nyrðra ætti því lofthitinn að vera 12° C. Öðru máli gegnir með hitabeltisloftið, þar er hitafallið lítið fyrstu 1000 metrana og loftið því í stöðugu jafnvægi. Þarf því mikla orku til að lyfta því yfir fjöllin. Er ekki ósennilegt, að loftið við yfirborð og í neðstu loftlögum leiti meðfram fjöllum og umhverfis landið, en ofar, 1 1000 metra hæð, leiti loftið norður yfir fjöllin. Benda athuganir á hita- og daggarmarksbreytingum til þess, að þessu sé á þann veg farið, og skal liér tilfært lítið dærni um það. í júlí 1955 var meðalhitinn í hitabeltislofti 9° C í 1000 m hæð yfir Keflavíkur- flugvelli. Þegar þetta loft leitar niður hlémegin, hitnar það um 1° C pr. 100 m og ætti því liitinn að vera 19° C við sjávarmál þar nyrðra. Það er 1° hærri liiti en þegar um lieimskautsloft var að ræða og niðurstaðan kemur vel heim við meðaltölin í töflu II. Ekki er þó alltaf hægt að búast við svona góðu samræmi. í fyrsta lagi er meðalliiti sólarhringsins á hverjum stað háður mörgum þáttum veðráttunnar og ýmsum aðstæðum og kann að orka tvímælis að nota hann við athuganir sem þessar. í öðru lagi höfum við lltið tillit tekið til rakans í loftinu, en þátt- ur hans er veigamikill, þegar um innrænar hitabreytingar er að ræða. Hins vegar höfum við gert okkur örlitla grein fyrir þeim mismunandi áhrifum, sem hálendið getur haft á lofthitann eftir því, hvernig eðli loftmassanna er háttað, þegar þeir koma upp að ströndum landsins. 14

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.