Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 20
GEIR ÓLAFSSON deildarstjóri:
Loftskeytasamband Veðurstofu íslands
Árið 1925 byrjaði fyrsti loftskeytamaðurinn að vinna á Veðurstofunni við
móttöku erlendra veðurfregna og önnur störf, en ári síðar bættist annar við. Frá
1939 til 1945 voru engin veðurskeyti send út af hernaðarástæðum, en í stríðslok
hófst útsending aftur með svipuðum hætti og áður. En brátt jókst þetta svo, að
um sumarið 1946 voru loftskeytamenn
veðurstofunnar orðnir 8. Hélzt sú tala
óbreytt til 1952, að veðurstofan á Kefla-
víkurflugvelli tók til starfa og loftskeyta-
mönnum var íjölgað upp í 15, þannig að
3 menn voru á verði í einu.
Nokkru síðar er hinni ýmsu starfsemi
Veðurstofunnar var skipt í deildir, var
stofnuð Loftskeytadeild Veðurstofunnar,
sem annast skyldi móttöku erlendra veð-
urfregna fyrir veðurstofurnar í Reykja-
vík og á Keflavíkurflugvelli. Er deildin til
húsa í Flugturninum á Reykjavíkurflug-
velli, á sama stað og Veðurdeild. Alþjóða-
flugmálastofnunin greiðir i/6 hluta aí
kostnaðinum.
Helztu söfnunarstöðvar, sem erlend veð-
urskeyti eru tekin frá, eru: Angmagssalik,
London, París, Frankfurt og New York.
Allar þessar stöðvar senda almenn veður-
skeyti á 3 klst. fresti og háloftaveðurskeyti á 6 og 12 klst. fresti. Meðalmóttaka á
sólarhring er um 25000 orð. Eru loftskeytin tekin eftir heyrn og skrifuð niður,
ýmist á fjarritvélar, sem skrifa samtímis á vinnustað og á veðurstofunni á Kefla-
víkurflugvelli, eða tekin á vélar, sem gata pappírsræmu, sem svo er látin renna
um fjarritvélasendi, sem skrifar á báðum veðurstofunum í einu, enda eru skeytin
notuð samtímis á veðurstofununt í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli. Sparar
þessi móttökuaðferð mikla vinnu. Skeytin eru svo færð inn á veðurkort eða unnið
úr þeim á annan hátt. Fæst þannig þétt net veðurathugana frá Norður-Ameríku,
Norður-Atlantshafi og Evrópu. Síðan 1956 hefur móttaka veðurfregna frá Ame-
ríku verið sjálfvirk fjarritvélamóttaka, sem farið hefur fram í Gufunesi, en skrifast
á fjarritvél Loftskeytadeildarinnar á Reykjavíkurflugvelli, en frá deildinni eru
skeytin send til veðurstofunnar á Keflavíkurflugvelli. Þegar þessi móttaka bregzt,
sem oft kemur fyrir, er hún tekin með loftskeytum í Loftskeytadeild, frá franskri
endurvarpsstöð.
11 loftskeytamenn vinna nú við Loftskeytadeildina, ýmist 2 eða 3 á verði í
einu. Að unnt er að komast af með færri menn nú en áður, er vegna breyttra at-
Geir Ólafsson.
18