Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 28

Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 28
2. mynd sýnir háloftaspákort fyrir 6 km hœð. Á því sjást vindátt og vindhraði (linurnar með örvunum), flugleið (beina linu) og hita- og kuldaskil við yfirborðið en skýjafar samfara þessum skilum sést á 3. mynd. Að síðustu kemur flugstjórinn á veðurstofuna og fær lýsingu á veðrinu á flugleiðinni, vindum á leiðinni og veðri á áfangastað. Sérstaklega er tekið fram, ef búast má við ísingu, kviku, þrumuveðri eða öðrum slíkum veðurfyrirbærum, sem ber að varast. Síðan stíga farþegar og áhöfn um borð og flugið hefst, en veðurfræðingurinn býr sig undir að taka á móti næstu áhöfn, um leið og hann hefur vakandi auga á öllum þeim upplýsingum, sem honum berast, því að stundum getur eitthvað komið í ljós, sem ekki var gert ráð fyrir i flugspánni, og þá verður að senda skeyti til flugstjórans um þetta atriði. Þessari fluggæzlu lýkur fyrst, þegar flug- vélin er komin út úr fluggæzlusvæði viðkomandi veðurstofu, en þá tekur annar veðurfræðingur á annari veðurstofu við fluggæzlunni, og henni lýkur, þegar flugvélin er lent á áfangastað. 26

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.