Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 23

Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 23
nm leið kemur upp í hugann sú staðreynd, að úrkoman við sjávarmál er ein- mitt mun meiri sunnanlands en norðan. Væri þvi ekki hugsanlegt, að úrkomu- aukning með hri’ð vœri hvar sem er á landinu ákveðinn hundraðshluti úrkom- unnar við sjávarmál, t. d. nálægt 100% á 330 metrum, eins og úrfellið í Hvera- dölum bendir til? Til þess að færa sönnur á þessa hjálpareglu skulum við at- huga nokkur atriði. í riti um meðallag úrkomunnar í Svíþjóð liefur C. C. Wallén athugað gaunt- gæfilega aukningu úrkomu með hæð á mörgum vatnasvæðum Svíþjóðar. Hefur hann teiknað línurit, þar sem glögglega kemur fram, að hæðaraukning úrkom- unnar er einmitt meiri, þar sem úrkoman sjálf er mikil, í vesturhluta Suður- Svíþjóðar. Ennfremur kemur í Ijós, að úrkoman eykst mest með liæð á þeim árstíma, þegar liún er mest.i Meira að segja er alls ekki fjarri því, að reglan um aukningu, sem nernur 100% af úrkomu við sjávarmál á hverjum 330 m, geti staðizt i Sviþjóð allri. Tökum annað dæmi. Vcstan Mýrdalsjökuls, á Sámsstöðum í Fljótshlíð, er árs- úrkoma um 900. mm, en súnnan jökulsins 2100 í Vík í Mýrdal og 1600 á Loft- 21

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.