Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 27

Veðrið - 01.04.1958, Blaðsíða 27
1. mynd. Helztu jlugleiðir frá Keflavikurfluguelli til: 1. Oslo 2. Kaupmannahafnar 3. Lundúna 4. Prestvikur 5. Gander 6. Goose Bay 7. New York. Svörtu punkt- arnir sýna helztu háloftsstöðv- arnar á þessu svteði. legur ruglingur, og besta lausnin væri auðvitað að nota metrakerfið eingöngu, en það er annað mál, sem ekki verður rætt að svo stöddu. Á fyrstu myndinni eru sýndar helztu flugleiðir frá Keflavíkurflugvelli til ýmissa staða, svo sem New York, Kaupmannahafnar o. s. frv., en svörtu punkt- arnir sýna háloftaathugunarstöðvar á þessu svæði, en slíkt net háloftastöðva spannar nú allan hnöttinn. Háloftaathuganir eru gerðar 2—4 sinnum á sólar- liring, og síðan eru þær sendar til veðurstofa víðsvegar um heim. Undirbún- ingur að hverri flugveðurspá liefst því mörgum klukkustundunt áður en flugið hefst. Veðurfræðingurinn dregur liálofta-kortin og gerir síðan spákort. Af spá- kortunum sést síðan, hvaða flugleið er bezt, hvaða vindátt og vindhraði ríkir á þeirri leið (sjá 2. mynd). Síðan er athugað, livaða veður muni vera á hinum ýmsu flugleiðum. Til þess að sjá það verður að athuga yfirborðskortið, en á það eru færðar veðurathuganir, sem gerðar eru við yfirborð jarðar. Þar eru tilgreind ský, veður, vindátt og vindhraði, hitastig og rakastig, loftþrýstingur o. fl. Þegar þessu er lokið er gerð þverskurðarmynd af veðrinu, sem flugvélin flýgur í gegnum (sjá 3. mynd). Á þverskurðarmyndinni eru tilgreind ýmis atriði veðursins svo sem vindátt og vindliraði í nokkrum flughæðum, ísing (\k), kvika (_A_), liitastig og skýjamagn. Þverskurðarmyndinni er skipt í belti, sem tekur yfir fimm lengdargráður, eins og sést á þriðju mynd. Þegar þessu er lokið, eru lendingarspár athugaðar fyrir þá staði, sem flugvélin mun liafa viðkomu á, og er þá undirbúningnum lokið. Þvf næst kemur siglingafræðingurinn til sögunnar. Honum er fengið afrit af þverskurðarmyndinni, og samkvæmt henni gerir hann flugáætlun, en í því felst að reikna út flugtíma vélarinnar til ákvörðunarstaðar, hve mikið benzín þarf að hafa um borð o. s. frv. 25

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.