Veðrið - 01.04.1958, Page 33
f-----------------------------------------------------—“—\
H.í. Eimsltipafélaá íslatids
ASalfunduí
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 7. júní 1958 og hefst kl. 1.30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurð-
ar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des 1957 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjómarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
, varaendurskoðanda.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 3.-5. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félags-
ins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir
eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til
skráningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi sið-
ar en 28. maí 1958.
Reykjavík, 10. janúar 1958.
STJÓRNIN.
__________________________________________________________/
31