Veðrið - 01.04.1969, Síða 3
VEÐRIÐ
TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI
KEMUR ÚT TVISVAR Á ARI - VERÐ ÁRG. KR. 100.00
1. HEFTI 1969 14. ÁRGANGUR
RITNEFND: JÓNAS JAKOBSSON
FLOSI H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
HLYNUR SIGTRYGGSSON
AFGREIÐSLUSTJÓRI:
GEIR ÓLAFSSON
DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131
Ur ýmsum áttum
Húsnœðismál Veðurstofun nar.
Veðurstofa íslands hefur lengi átt við mikla húsnæðiserfiðleika að stríða, og
hafa íslenzkir veðurfræðingar nú þungar áhyggjur af þeim málum, eins og eftir-
farandi ályktun ber með sér:
„Aðalfundur Félags íslenzkra veðurfræðinga, haldinn 22. marz 1969, vekur
athygli á sívaxandi húsnæðiserfiðleikum Veðurstofu íslands, en fullyrða má, að
húsnæðisskortur torveldi nú þegar starfsemi stofnunarinnar og hindri nauðyn-
lega þróun. Vill fundurinn sérstaklega vekja atliygli á, að Veðurstofan mun ekki
geta notfært sér þær framfarir í veðurspám, sem fyrirsjáanlegar eru á næstu ár-
um, sökum lélegrar slarfsaðstöðu. Er þeirri eindregnu áskorun beint til viðkonr-
andi stjórnvalda, að þau geri nú þegar ráðstalanir til, að hafnar verði fram-
kvæmdir við fyrirhugaða Veðurstofubyggingu. Minnir fundurinn á, að Veður-
stofa Islands á hálfrar aldar starfsafmæli í janúarmánuði næstkomandi, og telur,
að þessa merka afmælis verði ekki betur minnzt en með ríflegri l járveitingu til
byggingarframkvæmda."
í framlialdi af þessari ályktun Félags íslenzkra veðurfræðinga má geta þess,
að í lögum þeim, sem sett voru um Veðurstofuna árið 1920, var í 7. gr. kveðið
svo á, að „svo fljótt sem ástæður leyfa skal reist sjerstök bygging fyrir veður-
stofuna á stað, sem er hentugur fyrir störf þau, sem hún hefur með höndum
eða henni kunna að verða falin". Lögin voru endurskoðuð árið 1958 og var
þetta senn 43 ára fyrirheit þá ítrekað, þótt með ciðru orðalagi væri.
Langt er þannig liðið frá því að Alþingi gerði sér ljóst og samþykkti, að reisa
þyrfti sérstaka byggingu fyrir Veðurstofuna, þótt því miður hafi ekki orðið af
framkvæmdum enn, að öðru leyti en því, að gerðar hafa verið frumteiknirigar
af Veðurstofubyggingu og fengið hefur verið vilyrði Reykjavíkurborgar fyrir
byggingarlóð og mælingasvæði á Golfskálahæð norðan Bústaðavegar og vestan
Kringlumýrarbrautar.
Mál þetta er nú komið á það stig, að framkvæmdir mega undir engum kring-
umstæðum dragast lengur. Hér er ekki aðeins um Jrað að ræða, að starfsskilyrði
Veðurstofunnar séu að dómi veðurstofustjóra og veðurl'ræðinga orðin lítt við-
VEÐRIÐ — 3