Veðrið - 01.04.1969, Blaðsíða 9

Veðrið - 01.04.1969, Blaðsíða 9
ber þá ckki, er ekki annað fyrir liendi en i'alla til jarðar. Þetta er raunar nokk- uð einföld mynd af því, sent á sér stað. En livað er það svo, sem gerir þrumu- skýið frábrugðið venjulegu skúraskýi? Margt af því, sem gerist í þrumuskýi, er mönnum ekki fullljóst ennþá, og ýrnsar kenningar í umferð varðandi það elni. A árunum 1946—47 gerðu Bandaríkjamenn stórátak í því að rannsaka þrumu- skýin, eðli þeirra og orsakir. Enda valda þrumuveður milljónatjóni þar i landi á ári hverju, og talið er, að einn maður farist á degi hverjum til jafnaðar af völdum þrumuveðurs. Fjölmargar veðurathugunarstöðvar, radarstöðvar og sérstak- lega útbúnar flugvélar rannsökuðu skýin í allt að því minnstu smáatriðum. Ef við skyggnumst inn í þrumuský, fer ekki á milli mála að uppstreymið er lífæð þess, og hér er ekki um neina gjólu að ræða, — lóðrétt fárviðri, ef svo má að orði komast, — hraðinn hefur mælzt 30 m/sek. Straumur þessi er ekki sér- lega stór um sig — mætti jafnvel líkja honum við myndarlegan reykháf. Hlýtt og rakt loft streymir upp, eimurinn þéttist, regndropar myndast og síðan ís- krystallar, sem stækka ört og taka að falla, en uppstreymið þrífur þá mcð sér upp og niður, hvað eftir annað. Þeir stækka ört í sambýlinu við undirkælda regndropa í rakamettuðu loftinu. Loks taka þeir að falla lyrir alvöru, gjarnan í útjaðri skýsins, og kæla um leið loftið umhverfis, sem einnig fer að síga niður á við (undan sínum eigin þunga). Og nú kastar Þór hamri sinum til jarðar, elding leiftrar og Þórdrunúr þjóta um loftið, og innan stundar skellur á hellidemba eða haglél, og napur fallvindurinn er jafnvel hressandi eftir logn- molluna, sem á undan fór. En þrumurnar deyja smám saman út, Þór lieldur áfram ferð sinni um himinhvolfið, vagnskröltið verður sem þungar drunur í fjarska — eða svo sögðu forfeður vorir, og létu sér nægja þá skýringu á orsökum þrumuveðursins. Það var fyrst Benjamín Franklín, sem uppi var á árunum 1706—1790, sem kom með skýringu á fyrirbærinu, sem nær stóð raunveruleikanum en sú, sem goðsögnin geymir. Hann komst að raun um, að eldingin er raffræðilegt fyrir- bæri, og færði sönnur á tilveru rafsviðs í andrúmsloftinu og að eldingin er í rauninni ekki annað en risastór neisti, sem leitast við að jafna út spennumis- mun, sem á sér stað hverju sinni. Á heiðríkum degi umlykur jörðina rafsvið, þar sem spennan er að jafnaði nokkur hundruð volt pr. metra. Þetta getum við sannfært okkur eftirminnilega um með því að láta belg svífa upp í loftið með málmþræði, sem ekki er jarðtengdur. I þeim darraðardansi, sem á sér stað í þrumuskýi, verða auðveldlega mismun- andi svæði í skýinu hlaðin andstæðu rafmagni. Menn eru að vísu ekki á eitt sáttir með það, hvernig þessi rafsvið myndast, en í meginatriðum ber hinum ýmsu kenningum saman. Þegar ískrystallar í cfri hluta skýsins rekast á, leiðir það til þess að loftið verður lilaðið jákvæðu rafmagni, en ísinn neikvæðu. ískrystallarnir falla sfðan niður á við, og verður þannig efri hluti skýsins hlaðinn jákvæðu rafmagni, en neðri hlutinn neikvæðu. í neðsta hluta skýsins, þar sem stórir regndropar eru á niðurleið, tætast þeir í sundur vegna loftmótstöðunnar og fá stærstu droparnir jákvæða hleðslu, en VEÐRIÐ — 9

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.