Veðrið - 01.04.1969, Side 18

Veðrið - 01.04.1969, Side 18
Daglegar hitabreytingar i 500 og 1500 m hœð, janúar—marz 1969. Febrúar var rúmum tveim stigum kaldari en í meðalári, bæði við jörð og ofar, enda kom þá kaldasti kaflinn á vetrinum, jrcgar tæp vika var liðin af mánuðinum. Hinn 6. var frostið að meðaltali 17 stig á landinu klukkan 18, og mun þetta hafa verið kaldasti dagur, sem komið hefur hér á landi um áratuga skeið. Nóttina eftir komst frostið í Reykjavík í 17.6 stig, og hefur aldrei orðið jrar meira síðan 1918. Fyrstu þrjár vikur mánaðarins gerði skammvinnar hlákur milli kuldakastanna, en síðustu vikuna var hlýrra. Þá var fyrst austanátt og gerði strax Jríðu á Suðurlandi, og síðustu jnjá dagana þiðnaði einnig fyrir norð- an, cftir að vindur snerist í suðrið. í marz var hitinn rúmu stigi undir meðallagi við jörð, en rétt við j>;\ð, þegar komið var upp í eitt jjúsund metra hæð. Miklar og snöggar hitasveiflur voru í fyrstu vikunni, j>ví að aðsópsmiklar lægðir gengu liratt norðaustur yfir landið. Hinn 5. gerði t. d. fárviðrið, sem tók af jiakið á Lindu á Akureyri og olli þar margs konar tjóni öðru. Upp úr þessum sviptingum komst vindur í norðrið, eins og ætla má af hitaritinu. Við norðausturströndina var |\á hvöss norðvestan- átt, svo að hreyfing komst á ísrekið, sem Jjar var ekki langt undan. Hinn 12. kannaði Landlielgisgæzlan ísinn úr lofti, og var þá komin jakadreif suður með Austfjörðum allt suður að Dalatanga. Næstu daga var vindur sunnanstæður, svo að ísinn hvarf til hals. Við Norðurland hefur sama sagan endurtekið sig hvað eftir annað síðan um áramót. Með norðlægum vindum hefur orðið vart við jakastangl hjá annesjum, en sfðan hefur ]>að horfið frá með landáttinni og hvarflað út undir meginísinn, sem legið liefur tiltölulegá skammt undan. Og jjað, sem liefur forðað því, að ís yrði landfastur í ár, er, að vindur hefur aldrei 18 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.