Vikan - 27.04.1961, Qupperneq 2
KLÚeeURTNN
Lreftjarteig 2
ÞAR BÝÐUR
YÐAR
FULLKOMIN
ÞJÓNUSTA
OG
ÞÆGINDI.
/lusturlentkur Bar
ítalskwe Bar
Cocktail Lounge
SÉRKENNILEG
HÚSAKYNNI
FAGURT ÚTSÝNI
BORÐIÐ í
Klúbbnum
Klúbburinn LEIGIR ÚT VEIZLUSALI
FYRIR 10-50 MANNS.
Látið Klúbbinn annast allar veizlur fyrir yður.
NJÓTIÐ KALDA
BORÐSINS í
Klúbbnum
SEM ER FRAM-
REITT ALLA
DAGA SEM
OPIÐ ER.
Klúbburinn er opinn fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga í hádegi og um kvöldið.
VERIÐ ÖLL VELKOMIN í
- KLÚBBINN -
Fullkomin og örugg þjonusta.
Arinn í setustofunni.
Líkþornaplága.
Kæra Vika!
Undanfarið hef ég verið að fá likþorn á báð-
ar litlu tærnar, en mig langar til að losna við
þann ósóma. Ég hef reynt að skafa, klippa og
nota öll hugsanleg ráð, en ekkert dugar. Ég
fór til læknis og bað hann að skera þau burtu,
en hann sagði að það dygði ekkert, þau kæmu
jarðharðan aftur. Nú iangar mig til að vita
hvort það eru ekki einhverjar snyrtistofur liér,
sem treysta sér til að taka iíkþorn af karlmönn-
um. Mér liggur mjög mikið á svari, því ég
keypti nýja skó um daginn og ég vil ekki fara
í þá fyrr en ég er laus við líkþornin.
„Breiðfótur".
P.s. Hvernig er skriftin?
Hér í bænum eru til nokkrar fótaaðgerðar-
• konur, og má trúlega sjá nöfn þeirra í síma-
skrám. En einn, sem í svipuðum kröggum
hefur lent, benti mér á Sigurbjörgu Hansen,
Bárugötu 38, Rvík. Kvað hún vera hin mesta
töframanneskja við að ná svona ófögnuði af
tám manna. Vona ég svo, að þú náir þessum
slæma gróðri fljótt og vel af fótum þér, og
getir farið í nýja skó án harmkvæla.
Skriftin er nokkuð áferðarfalleg og ein-
stakir stafir vel og jafnt mótaðir, en ekki
er gott að lesa eftir þig, því orðin renna um
of saman. Þú skalt tileinka þér það, sem í
vísunni stendur, að „orðin standa eiga þétt,
en Þ Ó bil á milli“. Eins mátt þú tæpast
skrifa þéttar en í aðra hverja línu, vegna
þess hve stórir stafirnir eru.
Allt ómálað!
Siglufirði, marz.
Eftir því sem við höfum frétt fer i vor fram
fegurðarsamkeppni hér á landinu, eins og und-
anfarin ár hafa átt sér stað og eru misjafnir
dómar manna um hvernig þeim er háttað. Að
okkar áliti og margra annarra, (sem eflaust er
rétt) er það ekki eiginleg fegurð, sem þar
birtist. Háralitur er óeðlilegur, „make up“ dreift
yfir misfellur á andlitinu, litaðar augnabrúnir
og skuggar. Sem sagt, eins og illa málað ollu-
málverk, stjarfar og sviplausar. Og þar sem
allt mæiir á móti að nokkur fegurð sé i þessu
fólgin mælum við eindregið með, að gyðjurnar
birtist okkur eðlilegar í framkomu og ómálað-
ar, svo fært sé að dæma um þeirra eigin andlit.
Og til þess að koma í veg fyrir að sem minnst
verði hulið sjónum dómenda ættu þær aðeins
að koma fram í tvískiptum sundbolum.
Hér með biðjum við yður, „heiðraði póstur“,
að koma þessu á framfæri.
Pollý, Dollý og Hollý.
Ég hefði alveg látið það ógert að svara
þessu bréfi ykkar, Pollý, Dollý og Hollý
(hvað heitið þið annars, strákar, í raun og
veru?), hefðu ekki verið svona dásamlegar
ambögur í því. Til dæmis undir lokin, þar
sem þið segið, að fegurðardísirnar ættu að
koma fram í tvískiptum sundbolum til þess
að koma í veg fyrir að sem minnst verði
hulið sjónum dómenda! Sjáið þið nú ekki
sjálfir, hvað þetta er vitlaust? Viljið þið ekki
hafa sem mest nakið? Ef þær væru þannig
klæddar, væri mjög lítið hulið sjónum. —
Og ekki stendur á sjálfstraustinu, þar sem
þið segið ykkar álit efláust vera rétt!
Svo við snúum okkur að efni bréfsins, er
það frekleg móðgun við þær fallegu stúlkur,
2 VIKAN