Vikan - 27.04.1961, Blaðsíða 20
,R Ú S S L A N D.
ÞAÐ er frekar sjaldgæft, að birtar séu fjölskyidumyndir og
frásögur af fjölskyldum æðstu manna austan tjalds. En Waletr
nokkur Carone fékk að taka þessa mynd af Krústjoff og fjölskyldu,
og birtist hún í Paris-iMatch. Og þeir, sem eru á myndinni, eru
þessir: Fremst Krúsi og Nína, kona hans, ásamt barnabörnum
sinum, Aleksei og Nikíta. í aftari röð frá vinstri: tengdasonur
Krúsa, faðir drengjanna, næst honum Júlia, dóttir þeirra, dóttur-
dóttir þeirra, sem líka heitir Júlía, dóttir þeirra, Lena, og sonur
þeirra, Sergei, og fyrir framan hann dóttir hjóna, Rada.
PARÍS.
1 París er til húsa stofnun, sem mörg lönd eru aðilar að. Það er
svokallað fnterpoi, sem er skammstöfun úr international og police,
polis eða öðrum evrópskum lögregluheitum. Margir halda að þessi
lögregla sé sífellt á ferðinni með rjúkandi skammbyssur, en sann-
leikurinn er sá, að hlutverk þeirra er í því fólgið að samræma upp-
lýsingar, sem lögregla þátttökulandana gefur þeim upp um ýmsa
alþjóðlega glæpamenn. Síðan framkvæma hlutaðeigandi lönd þær
handtökur og svo framvegis, sem með þarf.
f
MOSKVA FRAM OG TIL BAKA.
Ungfrú Veronika Green heitir yngismey á Bretlandi. Hún varð sigurvegari í
einhverri fegurðarsamkepninni og átti að fá ferð til Parísar að launum. En
þar sem hún gerði ráð fyrir að það væri nóg af fallegum stúlkum fyrir, þá tók
hún það ráð að fara til Moskvu. Þar var hún hérumbil lent í keppninni —Ungfrú
Traktor —, en þótti það ekki mjög eftirsóknarvert, enda virðist hún vera frekar
illa löguð til slíks starfa.
AMERICANA.
Mikið er rætt og margt skrafað um nauðsyn þess, að hér á landi risi upp
þau gistihús, sem verði erlendum ferðalöngum samboðin. Og kannski verður
eitthvað úr þvi. Þessi gistihús eiga að laða ferðamenn til landsins. Þetta
hefur verið gert í Evrópu að tslandi undanskildu. Þeir ferðamenn — auk hins
venjulega ferðamannahóps Evrópulandanna í milli, — sem mest er sótzt eftir,
koma frá Bandaríkjunum og Kanada. En þeim, sem eiga afkomu sina undir
ferðamönnum þar vestra, líkar vitaskuld illa þessi stóraukni straumur austur
um haf. Því hafa þeir á seinustu árum hafið mikla herferð til þess að halda
sínum löndum í heimahögum. Og þar er ekki verið að horfa I peninginn.
Glæsilegustu gistihús I heimi er vafalaust að finna á vesturhveli jarðar, og
við birtum þeirri skoðun til stuðnings imyndir af tveimur gistihúsum, sem
bandaríski verkfræðingurinn Bill Tabler er höfundur að. Annað er á Puerto
Rico, sem er orðið mikið ferðamannaland, siðan Kúba skrúfaði fyrir hjá sér.
Hitt er Hilton-gistihúsið í San Francisco.
20 ViXAN