Vikan - 27.04.1961, Side 33
PÆNH/JkRD
er bíll þeirra, sem hafa vit á að velja
sér bíl - eini bíllinn sem sameinar þægi-
legt rými fullstóru bílanna, sparneytni
smábílanna og aksturskosti sportbíl-
anna. PANHARD er bíllinn sem varð
þrefaldur sigurvegari í Monte Carlo
fyrir árið 1961.
Umboðsmenn:
BJÖRN & INGVAR
P.O. Box 204. Reykjavík.
SAUMAVÉLIN
Framhald af bls. 27.
saumavélin saumaði bæði hraðar og:
jafnara.
En klæðskerar, sem árum saman
höfðu notazt við handsaum, gleyptu
ekki strax við þessari nýjung. Howe
fór til Englands, og þar fullgerði
hann saumavél til að sauma leður.
Þar seldi hann einkarétt á fram-
leiðslu þessara saumavéla, en fór
illa út úr þeim viðskiptum og kom
peningalaus aftur til New York.
Þá fóru amerisk fyrirtæki að
framleiða vélar svipaðar og sauma-
vél Howes. Aðalframleiðandinn var
Isaac M. Singer, sem einnig var vél-
fræðingur. Hann hafði séð frum-
stæða saumavél á viðgerðarverk-
stæði i Boston, en smiðaði fullkomn-
ari vél. Einkarétt á framleiðslu
þeirra fékk hann árið 1851 — fimm
árum eftir að Howe hafði fengið
verðlaun fyrir sína vél.
Howe hélt því fram, að réttur
lians sem uppfinnandi vélarinnar
yæri fyrir borð borinn og fór i mál.
Þegar dómur loks féll i málinu, var
hann á þá lund, að Singer og aðrir
saumavélaframleiðendur skyldu
greiða Howe ákveðna upphæð af
hverri vél, er þeir framleiddu.
Þegar saumavélar voru loks
komnar á markaðinn, óx eftirspurn
eftir þeim óðfluga. Kringum 1860
voru seldar fleiri saumavélar í Ev-
rópu en í Bandarikjunum. Þegar
lcomið var að aldamótum, gengu
flestir karlar í Bandaríkjunum i
vélsaumuðum fötum og um það bil
helmingur kvenna og barna.
Singerfyrirtækið eitt hefúr selt
samtals rúmlega 70 milljónir sauma-
véia austan hafs, og fjöldi annarra
tegunda er framleiddur i a. m. k.
sex öðrum löndum.
Tugir uppfinningamanna hafa
unnið að því að fullkomna sauma-
vélina, svö að hún geti betur gegnt
hlutverki sínu við mennina. Marg-
ar húsmæður munu vera sammála
blaðamanni, sem lifði á síðustu öld,
en hann sagði, að saumavélin væri
„kærkomnasta verkfæri mannkyns-
ins, næst á eftir plógnum“. ★
já!!! auðvitað
fékk ég
eldavélasamstæðuna
AMLMANN
Já! Hún er
Vesturþýzk
og á alveg sér-
staklega hag-
stæðu verði.
Sighvatur Einarsson & Co.
SkÍDholti 15 Símar: 24133 -
14117
VIKAN 33