Vikan


Vikan - 27.04.1961, Page 35

Vikan - 27.04.1961, Page 35
Lj ósmyndasýning. Framhald af bls. 8. þýðingu fyrir endanlegt útlit mynd- arinnar. Þeir höfðu til dæmis eytt öllum millitónum úr allmörgum myndanna, svo að aðeins var hvítt og svart eftir. Mynd af olíubrák í fjöruborði, sem þannig er með- höndluð, verður listrænt furðuverk, sem unun er á að horfa. Ljósmyndir sem þessar fara ein- staklega vel með nútíma húsbúnaði og innréttingum. Það er hægt að stækka þær að vild, jafnvel svo að myndin nái yfir heilan vegg. Með því er hægt að ná áhrifum, sem ekki eru hugsanleg með öðru móti. Ljósmynd getur að visu aldrei kom- ið í stað málverks, enda ekki til þess ætlazt. Erlendis hefur ljós- myndun löngu fengið virðulegan sess meðal nútímalistar, en hér á landi liafa ýmsir „alvarlegir lista- menn“ þverkallazt. Það kann að vera nokkur vorkunn, þar sem frambærilegar ljósmyndir hafa varla sézt á sýningu fyrr en nú. Það getur varla verið neinum vafa und- irorpiö um listrænt gildi hinna beztu ijósmynda. Mismunurinn er aöeins sá, að ljósmyndarinn hefur kosið að vinna með myndavél og stækkara í stað þess, að málarinn vinnur með krít eða pensli. Báðir eiga það sameiginlegt, að þeir taka fyrirmyndir úr lífinu, umhverfinu og náttúrunni og sveigja þær undir listræn lögmál. Ég býzt við því, að þeir, sem sáu sýningu fjórmenning- anna, muni á einu máli um það, að ljósmyndir geti verið hlutgeng list. G. Salt á snjónum. Framhald af bls. 6. verið komnir á fætur? Ef þeir finna inig hér, drepa þeir mig! Kannski eru þeir komnir til að taka mig af lífi! veinaði hann og horfði æðislega í kringum sig. — Eina von mín er að komast undan í myrkrinu, hvisl- aði liann rámur og slökkti á olíu- lampanum. Hljóðlaust, eins og kött- ur, læddist hann út um dyrnar. — Ég vona til guðs, að þeir nái lionum ekki, hugsaði Lena með sjálfri sér. Það er sama hversu ó- geöslegur hann er, það væri hræði- legt að verða til þess, að einhver væri tekinn af lífi. Henni létti, þegar hún heyrði bil- inn aka af stað og fara með ofsa- hraða eftir ósléttum snjóbreiöunum. — Hann ekur i suöurátt, hugsaði liún. — Vonandi stanzar hann ekki fyrr en hann kemur til Texas. En hverjir sem þetta höfðu verið, sem komu hlaupandi niður að hús- inu áðan, þá stóðu þeir líka kyrrir og hlustuðu á vélarhljóðið. Lena gat beinlínis heyrt, hvernig þeir hlustuðu. Hvers vegna stóðu þeir þarna, í stað þess að koma inn? Þeir höfðu enga tilraun gert til að ná i Rusty. Var það kannski ekki hann. sem þeir ætluðu að ná i? Var það hún, sem þeir ætluöu að ráðast á? Var hún sloppin úr einni hættu, aðeins til að mæta annarri, miklu verri? Það var eitthvað undarlega óraunverulegt yfir þessu öllu. — Brátt uppgötva ég, að þetta er illur draumur, hugsaði hún von- góð. Svo vakna ég blaut af svita, en hamingjusöm, þvi þá er þessu lok- ið. Siðan kemur Ken heim og ég mun aldrei verða ein heima framar. Því þetta var síðasta árið, sem Ken ætlaði að vinna við boranir. Honum hafði tekizt að spara saman til að geta haldið áfram verkfræði- námi sinu. Ef Lena ynni svo á slcrif- stofu, mundu þau vel geta lifað. Þegar ekki heyrðist lengur í bíln- um, heyrðist undarlegt krafs og spark fyrir utan, eins og fjöldi manns stappaði óþolinmóður niður fótunuin. — Nú missi ég bráðum vitið, kveinaði Lena og stóð eins og negld við gólfið i myrkrinu og ríghélt sér í stólbakið. Hendur hennar voru rennblautar af svita. Allt i einu var oliutununni velt um úti og það olli auðheyrilega töluverðum óróa, og þeir heyrðust krafsa og rymja fyrir utan. — Manneskjur rymja ekki, svo þetta hlutu að vera dýr! Lena vakn- aði úr mókinu og þaut út að glugg- anum og gægðist varlega út á milli gluggatjaldanna. Það var ekki skuggsýnna en svo, að hún gat séð risastóra, brúna skrokka, líklega tiu eða tólf stykki. — Vísundar! hákallaði hún og varð dauðbilt við að heyra sina eigin rödd. Þarna gengu þeir frið- samlega um og sleiktu saltið henn- ar. Það var þetta einkennilega hljóð, sem hún hafði heyrt. — Ó, þessar yndislegu skepnur! Hún varð svo fegin, að hún fór að gráta. Nú gat hún ekki skilið, að sér hefði einu sinni þótt það svo voðalegt, þegar liún heyrði um unga konu, sem hafði orðið að flýja úr húsinu sínu, i náttkjólnum einum saman, vegna þess að visundaflokk- ar hafði í ákefð sinni við að sleikja salt af tröppunum hjá henni nærri verið búinn að velta um húsinu. — En ég hefði sjálfsagt lika verið að deyja af hræðslu við þessi stóru villidýr hér alveg við húsið, ef þau hefðu ekki bjargað mér. Því ef ég ætti að velja á milli Rusty og vis- undahóps, mundi ég hiklaust velja þá síðastnefndu, hugsaði hún bros- andi og þurrkaði sér um augun. Hún stóð við gluggann og horfði með lotningu á þessi stóru dýr, sem sleiktu af ákefð hvert einasta salt- korn, meðan norðurljósin blikuðu á himninum. Þegar ekkert var eftir af saltinu, löbbuðu vísundarnir ró- lega burt, án þess að hafa hugmynd um hvaða sorgarleik þeir höfðu komið í veg fyrir, en Lenu fannst, að hefði gerzt kraftaverk. ÍiiÍÍÍiÍÍÍÍiÍÍHiiÍii.iiiiÍÍiÍiiiiÍiiÍ-ÍiÍiÍi heimilistækin hafa staðist dóm reynslunnar eru nýtízkuleg létta hússtörfin i ) j 0 . H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI t i i , ÍÍÍSkHSrU VIKAN. 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.