Vikan - 18.05.1961, Qupperneq 22
Kristbjörg Keld.
Hún er fædd 18. júní 1935 klukkan sjö að
morgni. Sólmerki'ð er Tvíburamerkið 26°06:
Dýrahringsmerkið eða hið rísandi merki við
fæðingu er Ljónsmerkið 15°00: Máninn er
15°35. Steingeitarmerkinu í þessu korti er
mikið meira jafnvægi og samræmi með tilliti
til almennra liæfileika heldur en komið hefur
fram i hinum þrem kortum, sem ég hefi
þegar lesið úr. Persónuleiki þessarar mann-
eskju mótast fremur af nokkuð alhliða hæfi-
leikum, heldur en af einum sérstökum hæfi-
leika og má þó segja að eitt beri af öðru
hjá henni, en að því kem ég síðar. Ég vil
nú drepa á það helzta af áhrifum sólmerkisins,
mánamerkisins og hins rísandi merkis.
Sólmerkið: Eitt sinn var sagt um mann nokk-
urn, sem kunni að leika á öll hijóðfæri hljóm-
sveitar sinnar að hann hlyti að vera fæddur
Hvaó segir Þór^Baiciurs
um Kristbjörgu Keld
Þar sem Þór Baldurs ætlar að taka að sér að
gera eina ævisjá í viku fyrir einn af lesendum
blaðsins í hvert sinn, þótti rétt að kynna getu
hans með því að láta hann gera ævisjá fyrir
jiekkt fólk. Að þessu sinni varð fyrir valinu
Kristbjörg Keld, leikkona og lét hún blaðinu
góðfúslega í té fæðingarstað og stund. Lesendur
btaðsins geta sent inn nafn sitt, fæðingarstað,
dag og stund verður dregið út eitt bréf
á viku og gerð ævisjá. Það skal tekið fram, að
Þór Baldurs fær ekki að vita, hver persónan
er. Hér á eftir fer ævisjá Kristbjargar Keld.
undir Tvihuramerkinu. Þessi stutta setning
gefur að nokkru leyti glögga hugmynd um
samsetningu þessa manns, sem er undir sterk-
um áhrifum þessa merkis. Með öðrum orðum,
fjölbreytni og fjölhæfni er aðalsmerki Tví-
buramerkisins. Undan áhrifum þessa merkis
er flest það fólk, sem sagt er um að „geti allt“,
enda er nauðsynlegt í samfélagi manna að
eiga slíku fólki á að skpia,þar sem aukins
mannafla er þörf á stundum. En þetta fólk
vill helzt ekki vera lengi við það sama og
þeir Tvíburamerkismenn, sem finna að þeir
eyra illa i starfi ættu að fá sér eitthvað fri-
stundastarf, sem þeir ættu auðvelt með að
breyta til um án þess að hætta lífsafkomu
sinni og góðu starfi. í þessu korti er Tví-
buramerkið ekki sterkt, en þar er sólin í
síðustu gráðu tug þess, eða undir áhrifum
stjörnumerkisins Stóri Björn, en hann virðist
hreifast áfram umhverfis Pólstjörnuna. Þetta
er talið tákna samkvæmt fornri goðafræði
mannshugann, þegar honum er beitt í sam-
ræmi við eðlilega atburðarás. Og á að vera
tákn um hið gífurlega afl, sem mannshugurinn
er þegar honum er beitt í þágu uppbyggilegra
starfa. Lestir þessa merkis eru meðal annars,
fólk undan þvi á erfitt með að ákveða sig
og verður oft litt úr afrekum sakir þess að
það hætti i miðju kafi, En þetta fólk er mjög
gáfað.
Tunglmerkið: Tunglið í Steingeitarmerkinu er
ekki talið gott tákn i fæðingarkorti neins, því
neikvæðar hugsanir og gerðir dragast að jjeim.
Þannig verður fólk með þessa tunglstöðu oft
fyrir töfum, hindrunum og skorti. Flestir erfið-
leikar hennar eiga rót sina að rekja til skorts
á unun á heimilinu, sem er meðfædd þessari
tegund, og þrá til að lifa og hrærast í sam-
félagi hins karllega. Fólk með þessa afstöðu
leitar sér ekki maka sökum rómantíkur heldur
með tilliti til sameiginlegra þarfa og samstarfs.
Hún er trygg kona, sem hægt er að treysta
fyrir miklu leyndarmáli, miklum verkum og
hvers konar ábyrgð. Þroskaðri tegund kvenna
með þessa aðstöðu liefur háar hugsjónir og
tileinkar sér háan mælikvarða rétts og rangs.
Heilsufar þessa fólks er yfirleitt með ágætum.
Framhald á bls. 29.
22 vikan