Vikan - 20.07.1961, Page 26
Hmlugl......
og smckklcgt:
Hvítir sloppar fyrir verzl-
unarfólk og starfslið
sjúkrahúsa.
Bómullarskyrtur fyrir
íþrótta- og ferðafólk,
mansjettskyrtur.
Vasaklútar kvenna og
karla úr maco- og bóm-
ullarefnum, auk þess
tyrknesk handklæði.
Mislit kjólaefni.
Framboð vefnaðarvara frá verksmiðjum þýzka Al-
þýðulýðveldisins er furðu fjölskrúðugt.
Þér ættuð að sjá með eigin augum hve úrval okkar
er mikið.
Útfiytjendur:
DEUTSCHEH INNEN — UND AUSSENHANDEL TEXTIL
BERLIN W 8 - BEHRENSTRASSE 46
jf OBUTS.CHE DEMOCRATjl.SICHE REPU|BUK ýf 5
Vestan yið sléttuna.
Framhald af bls. 19.
blaðamönnunum boöiö í fcröalag
vestur í Klettafjöllin til gullnámu-
bæjarins Qrippíe Creek og það var
frekar merkilegur kapítuli í þess-
ari ferö. Leiðin lá í fyrstu upp
brattar brekkur og farartækið var
liarla algengur rúlubill. Þar uppi
í fjöllunum var land mjög skógi
vaxið og vegurinn hlykkjaðist eft-
ir giljum og utan i bröttum hlíð-
um. Snjómugga var i loftinu og
eftir þvi sem ofar dró gerðist
hún áleilnari; jörð var a|hvít utan
skógarins,
Þessi gullnámuliær á sér merki-
lega sögu. Á öldinni sem leið fannst
þar allmikið gull og ævintýramenn
jjyrptust vestur í fjöllin i von um
skjóttekinn auð. Þá voru aðferðir
við gullvinnslu heldur frumstæðar,
en það bætti úr, að auðvelt var
26 UMH
að vinna gullið móti því sem nú
er. íbúatala bæjarins komst upp í
50 þúsund á þessum grózkuárum
og þá var lif í tuskunum, sagði
rauðskeggjaði leiðsögumaðurinn,
sem fylgdi okkur þangað og brá
fyrir glampa í augu hans. Nú er
Cripple Creek draugabær, skuggi
af sjálfum sér, sagði hann. eftir
þvi sem við komumst næst mundu
5 þúsund manns hafast þar við
enn, en þeim fer fækkandi með
hverju ári; gullnámurnar eru þrotn-
ar eða sandurinn svo blandinn að
mikinn vélakost þarf til að sigta
gullið úr.
Upp um fjallshliðarnar er öllu
umrótað og greiiiilegt, að leitað
liefur verið á stóru svæði, næstum
holu við lioiu. Við komum i eina
geysistóra gullnámu skammt frá
draugabænum og þótti mönnum
það heldur óskemmtilegt. Það virt-
ist vera mjög venjulegur sandur,
sem settar var í geysistór ker og
skolaður í rauðan dauðann, þar
til gullduftið sat eftir. Þetta var
raunar fremur verksmiðja en náma,
byggð utan í brattri hlíð og ger-
samlega laus við gullgrafararóman-
tík.
HLUTDEILD f FYRIR-
HEITNA LANDINU.
Lengra vestur í fjöllunum er
Utharíki, þar sem Mormónar sett-
ust að á seinni helmingi aldar-
innar sem leið. Þar fundu þeir
fyrirheitna landið og settust að
eftir ferðalag austan yfir landið,
sem okkur í dag finnst gersamlega
óskiljanlegt. Þá voru allar ár ó-
brúaðar, herskáir indíánaflokkar
réðust að þeim og siðasti áfanginn
var yfir þessi hrikalegu fjöll. Fyrir
hina fyrstu var þetta ferðalag ná-
lega út í bláinn; þeir töldu sig að
vísu hafa guðlegt fyrirheit um
dýrðlegan samastað einhversstaðar
langt í vestri Þegar fyrsti hópur-
inn stóð á brún Saltsjávardals eft-
ir óralanga hörmungaferð austan
úr landi, sagði leiðtogi þeirra,
Bringham Young: „Hér er staður-
inn.“ Þar með var málið afgreitt
á einfaldan og afgerandi máta.
Mormónar settust að í dalnum með
allar konurnar sínar, ræktuðu jörð-
ina, byggðu Saltsjávarborg og
reyndust hinir nýtustu menn.
Nokkrir íslendingar lögðu leið
sína í fótspor þessara frumherja
til að öðlast hlutdeild í fyrirheitna
landinu og blanda geði við trú-
bræður. Nú lifir aðeins minningin
um þessa gengnu landa og mest er
það fyrir verk Eiríks frá Brúnum.
Mér- kemur í hug, að þeim hefði
þótt gott að fara malbikaðan veg-
inn sem við þræðum ofan úr
bröttum fjöllunum á leiðinni til
Colorado Springs.
Svo er þessi fallegi blettur vestan
við sléttuna að baki. Þegar vélin
klifrar í austurátt verður borgin
eins og örsmár ljós blettur undir
vegg fjallanna. Framundan er slétt-
an með þráðbeinum vegum, sem
leysast sundur og hverfa í musk-
una. Þá um leið er allt óraunveru-
legt nema augnablikið sjálft, vélin
sem ber okkur áfram, ganghljóð-
ið í hreiflunum og sólskinið, sem
flæðir inn um gluggana. Ferða-
mannabærinn, bjarti og hreini, við
rætur fjallanna er ekki lengur á-
þreifanleg staðreynd, heldur ein-
ungis mynd i huganura, sem til-
he^yrir liðinni tíð. GS.
Dulrænn lækningamáttur.
Framhald af bls. 11.
þær ekki. Ég fór nefnilega til R. —
ég vona, að þér séuð ekki á móti
slíku, — og hún gaf mér góðar von-
ir og lofaði að reyna að fá sinn
lækni til þess að koma til drengsins,
lækninn sko, sem hún hefur sam-
band við.“
LÆKNINGAMIÐSTÖÐ TVEGGJA
HEIMA.
Töfralæknir nútímans á i vök að
verjast fyrir rannsærri þekkingu og
vaxandi gagnrýni. Hann ber lifandi
vott um það misgengi menningar-
þróunarinnar, að háþróuð vísindi
og frumstæð kynjatrú vaxa i sama
þjóðfélagi, svo að sjúklingur leitar
töfralæknis samtímis þvi sem sjúk-
dómur hans er greindur með rönt-
genmyndum og hjartalinuritum.
Á hinn bóginn hefur töfralæknirinn
þægilega aðstöðu. Hann situr á
mörkum tveggja heima. Sjúkling-
arnir eru sýnilegar jarðarverur, en
læknarnir, sem leggja undramátt-
inn til, eiga að koma frá ósýnileg-
um dularheimi. Kannski eru það
huldulæknar úr nálægum hólum og
klettum, kannski eru það andar af
öðrum tilverustigum. Þeir eru yfir-
náttúrulegir í öllu atferli sinu: hafn-
ir yfir rúm og tima, ganga um læst-
ar dyr og heila veggi sem opið væri,
vitja hinna sjúku oftast i skjóli næt-
urinnar og framkvæma lækningarn-
ar viðstöðulaust i einum svip með
snertingu eða handaálagningu.
Sjúklingurinn fær sjaldnast greint,
hvort fyrirbærið var raunverulegt,
draumur eða skynvilla.
Bein viðskipti við dulheimslæknir-
inn eiga sér ekki stað. Allt gengur
yfir lækningamiðstöðina, þar sem
töfralæknirinn situr og gefur sam-
band. Einstöku sinnum geislar hinn
læknandi máttur þó beint i gegnum
hann sjálfan. Á sama hátt ráðfærir
hann sig við dulheimsverur sínar,
ef ættingjar ákærðs manns biðja
hann að skera úr um sök og sak-
leysi. Ég veit dæmi þess, að sak-
leysið hefur legið opið fyrir öndun-
uta, þó að það væri hulið manna
sjónum.
,a Þessi lykilaðstaða töfralæknisins
styrkir mjög þá hjátrú, sem honum
er nauðsynleg, svo að starf hans
beri ávöxt. Sjálfur er hann aðeins
áð hálfu leyti jarðneskur. Helftin af
eðli hans telst til hins dulræna
héims, sem hann er lykill að. Þess
vegna beinir hann að sér hinni
frúmstæðu töfratrú, sem er sam-
þætt vitrænni menningu allra tíma.
Það er eins og maðurinn þreytist á
hínni köldu, greinandi og reiknandi
skynsemi og finni fróun í því að
treysta á dulræna töfra og lækning-
armátt ókunnra afla.
Lubitil
Sputnik
770.00 Kr. Búðarverð
Heildsölubirgðir
Eiríhor Ketilsson
Garðarstræti 2.
i /