Vikan


Vikan - 20.07.1961, Síða 35

Vikan - 20.07.1961, Síða 35
Flótti í hlekkjum. Framhald af bls. 13. pilturinn byssunni og skaut. Jackson greip um öxlina, og hönd hans varð blóðug. En hann hljóp út í mýrina — sömu leið og svertinginn hafði far- ið. Einni stundu síðar kom Muller lögreglustjóri að þessum afskekkta bóndabæ. Hann horfði tor- trygginn á ljóshærðu konuna. Blóðhundarnir kiór- uðu í hliðið. „Jæja,“ sagði hann, „mennirnir hafa þá ekki tekið neitt með sér.“ Konan horfði fram hjá honum. Það var eins og hún horfði á eitthvað i fjarlægð. „Ekkert, sem varðar fangelsi,“ sagði hún. ,,C-u-l-l-e-n“ kallaði Jackson og dróst eftir mýr- inni. Ekkert svar. Þegar Jackson leit upp, stóð negrinn allt í einu við hlið hans. Hann var að reykja sígarettu og horfði kulda- lega á hann. „Jæja, hvað er nú, Joker?“ „Ef þú ferð þessa leið, Cullen, nærð þú aldrei lestinni. Þessi skepna sendi þig út í mýrina.“ Cullen horfði vantrúaður á Jackson. Jackson benti örmagna í áttina, sem Cullen átti að fara, en hné síðan stynjandi niður. . . Svertinginn beygði sig niður að honum. „Gerðu eina tilraun enn, drengur. Sárið er varla svona slæmt. Við náum í lestina og komumst norður.“ „Farðu einn,“ veinaði Jackson. Kvalirnar náðu tökum á honum. „Nei, Jackson, ég fer aldrei framar án þín,“ sagði negrinn. Jackson brosti. Nú tengdu þá engir skröltandi hlekkir. En allt i einu bundu þá önn- ur bönd. . . Cullen studdi Jackson eftir getu. Þeir voru næst- um komnir að brautargarðinum, þegar þeir heyrðu i hundunum í fyrsta sinn. Þeir gátu ekki verið lengra en nokkur hundruð metra i burtu. Þá glumdi lestarflautan yfir mýrina. Með síðustu kröftum herti Jackson sig upp. Þeir hlupu báðir síðustu metrana að brúnni, sem lestin fór yfir. Þeir klifruðu upp brekkuna og hlupu meðfram vögnunum. Culien stökk fyrstur. Hann fleygði sér flötum á vagninn á fleygiferð. Jackson hljóp stynjandi samsiðis. Hann var að missa allan mátt, það fann hann. „Áfram," kall- aði svertinginn, „hér er hönd mín.“ Hann teygði sig niður og rétti Jackson höndina. Jackson hljóp alltaf hægar og hægar. Brátt fór lestin hraðar en hann gat hlaupið. Enn þá snerti Jackson fingur- góma Cullens. Angistarsviti rann niður andlit hans. „Hertu þig, drengur," öskraði Cullen. „Taktu i mig, drengur." En Jackson hafði ekki mátt til þess. Þá greip Cullen báðum höndum um Jaokson og dró hann áfram. En hann féll niður eins og hann væri skotinn. 1 fallinu dró hann Cullen niður af þjót- andi lestinni, — eins og hlekkir tengdu þá . . . . 1 faðmlögum runnu þeir niður brekkuna. Þarna lágu þeir á rykugum akrinum. Negrinn lagði höf- uð Jackson í hné sér. Hann kveikti í sígarettu og stakk henni upp í Jackson. Hundgáin var rétt hjá þeim. Þessir hundar. . . . Út úr runnunum kom Muller lögreglustjóri. Byssan við mjöðmina benti eins og skítugur fingur á hjarta svertingjans. 1 fjarska glumdi lestarflautan. Hægt nálgaðist lögreglustjórinn. . . Þá byrjaði Cullen að syngja. Hann söng blues, — sama dapurlega sönginn og hann söng í bílnum, þar sem allt byrjaði, — þar sem Jackson hafði setið við hlið negranum, — bundinn við Cullen og sorglegan söng hans með hlekkjum. . . Endir. Saga þessi liefur veriö kvikmynduö, og í aöal- lilutverkum eru: Sidney Poitier leikur Cullen, Tony Curtis Jackson, Theodore Bickel Muller lögreglustjóra, og Cara Williams leikur bónda- konuna. Skin og skúrir. Framhald af bls. 29. egar þau konni til King’s Langley, stóS bíll Wegghjónanna þegar fyrir utan veit- ingahúsið, sem þau höfðu ákveðið að liittast i. Þau fengu sér öll eitthvað að drekka og óku svo áfram til Chilterns. Bíll Wegghjónanna nam staðar við rjóður í skóginum, þar sem skjól var fyrir vindinum. Jim og Tessa fóru út og lituðust um i ná- grenninu, þangað til Gerda hrópaði, að þau ættu að koma og hjálpa til við matinn. Þau borðuðu, en sátu svo lengi og töluðu saman á eftir og hlustuðu á hljómplötur. Á eftir fengu þau sér langa gönguferð í skóg- inum. Tessa naut þcssa alls eins og barn. Gerda var að búa íil te, þegar þau komu aftur. Gerald rétti Tessu bolla og sagði: Viljið þið tvö koma með heim i kvöidmat, eða ætiið ])ið frekar að fara út að skemmta ykluir? Jim leit á Tcssu. Eg var að vona, að þér vilduð borða kvöldverð einhvers staðar með mér. — Það væri indælt, sagði hún, en hætti svo við. Nú ætla ég að dansa fyrir ykkur í þakk- lætisskyni fyrir góðan dag. Hún setti Chopin- plötu á grammófóninn, sparkaði af sér skónum og byrjaði að dansa. Þ.egar þessum yndislega dansi var lokið, hvarf hún hlæjandi inn milli bláklukknanna. Cimsm^rið 6etur GEGM HITA OG KULDA Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár- um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyTÍr yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota- legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). Lœkjargötu . Hafnarfiröi . Sími 50975. vikan. 35

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.