Vikan


Vikan - 01.02.1962, Qupperneq 17

Vikan - 01.02.1962, Qupperneq 17
María Guðmundsdóttir, Ungfrú íslands 1961. Hún hefur að undanförnu starf- að við tízkusýningar í Suður-Ameríku á vegum fyrirtækis í París. — Að neðan: Það hefur verið. venja, að keppendur á Langasandi hafa haft með sér sjó í flösku, hver heiman frá sér. Síðan hella þær úr öllum flöskunum í þessa tjörn. Undirbúningur hafinn fyrir es •* jjjjM Jrar fjjj W wr ■■■ w ó v mm / Ji§ *J§ i ••• W w | 1 ■fV W Já . J ■ 'W ^ -1 mlm w ••••■ ■ i w ¥ W J i ■ iB f: ;■ 'tW L r A m L.,, wgi F:- ;pr, • L «J| jj : Æjjjjjj£ ‘ jm fík m St' Wa\ m 'M Æs ■ &&fiicí« 'V. “V rQ'--, • £ Hjfc flB 1 m H 1 mm fflg <1 FEGUR DARSAMKEPPN11962 Það er keppt um góð verðlaun og mikil tækifæri. 1. verðlaun Sigurvegarinn f keppninni — Ungfrú ísland 1962 — fær mikil verðlaun fyrir utan drottn- ingartitilinn. Skal þar fyrst nefna ferð til Langasands í Kaliforníu til þátttöku í keppn- inni „Miss International 1963“. Þá verður flogið frá Reykjavík til New York og þaðan yfir Bandaríkin til Langasands. Innifalið í verðlaununum er hálfsmánaðar uppihald á Ilótel Lafayette á Langasandi, bíll og bíl- stíóri allan tímann og 100 Bandaríkjadalir í skotsilfur. Þá fylgir einnig kvöldkjóll og undirfatnaður. Sökum þess hve þátttakendur fslands hafa vakið mikla athygli að undanförnu, hafa for- ráðamenn keppninnar farið fram á það, að Ungfrú ísland mæti hálfum mánuði á undan öðrum þátttakendum í keppninni og á hún að koma fram við ýmis konar hátíðahöld áður en keppnin hefst. 2. verðlaun Ferð til Beirut I Libanon til þátttöku í keppninni „Ungfrú Evrópa“ 1963. Þá verð- ur flogið héðan til Kaupmannahafnar, dvalið þar í 2 daga, flogið til Frankfurt í Vestur- Þýzkalandi og dvalið þar einn dag, flogið til Vínarborgar, þaðan til Aþenu, Istambul og síðan til Beirut. Þar verður dvalið í 12 daga og þátttakendur í keppninni verða gestir Iibönsku ríkisstjórnarinnar og búa á Riviera Hótel. 3. verðlaun Ferð til Miami Beach í Florida, Bandaríkj- unum, til þátttöku í keppninni Miss Uni- verse 1962. Flogið verður frá Reykjavík til Parísar og staðið þar við í 4—6 daga og búið á Hótel Napoleon. Flogið frá París til New York og dvalið þar í 5 daga og síðan til Miami Beach. Þar verður búið á einu af hinum; dýru lúxushótelum á ströndinni frægu og skotsilfur er hundrað Bandaríkja- dalir. 4. verðlaun Að öllum líkindum verða þessi verðlaun fólgin í ferðum á „Miss World“-keppnina í London og „Miss Istambul“-keppnina í Tyrk- landi. Það er þó ekki fyllilega ákveðið, en ákveðið er, að þessir verðlaunahafar fái vandað armbandsúr frá Magnúsi Baldvins- syni og módelkápu frá Kápunni h.f. Það hefur orðið að samkomulagi, að Vikan taki að sér að sjá um fyrri hluta fegurðarsam- keppninnar eins og í fyrra. Það var almannarómur, að fegurðarsamkeppnin hefði á sér mun meira menningarsnið í fyrra en áður hefur tíðkazt og stúlkunum fannst fyrirkomulagið einkar þægilegt. Nú erum við reynslunni ríkari og getum komið í veg fyrir agnúa og mistök, sem óhjá- kvæmilega fylgja nýjungum. Keppnin verður færð fram um einn mánuð frá því sem áður hefur verið: Orslitin fara nú fram um miðjan maí í stað júni. UNGFRÚ ÍSLAND 1962 Ábendingar um fallegar stúlkur eru þakksamlega þegnar og eru lesendur blaðsins beðnir að stuðla að því að góður árangur náist og Ungfrú Island verðskuldi þá upphefð og þau tækifæri, sem hún fær að launum. Forráðamenn keppninnar og ritstjóri Vikunnar munu síðan velja 10 af þeim stúlkum, sem bent verður á eða gefa sig fram. Þær eru þar með komnar í undanúrslit og myndir af þeim birtast í Vikunni. Fram fyrir áhorfendur í úrslitakeppni munu einungis koma fimm stúlkur og þær fá allar verðlaun. Fegurðarsamkeppnin býður uppá ferðalög, sem stúlk- urnar munu minnast alla sína ævi, því þar skortir ekki á glæsileik og þeir staðir, sem sóttir eru heim, eru meir en bæjarleið frá íslandi. Fæstir eiga þess kost að komast þangað einu sinni, hvað þá oftar. Ein verðlaunin í keppn- inni hljóða uppá ferðalag til Beirut í Libanon, með við- komu í mörgum frægum borgum í E’vrópu. Sigrún Ragn- ars, ungfrú íslands 1960, fór þessa ferð í fyrra og kvað hana verða sér ógleymanlega. Sigrún varð sem kunnugt er fimmta á Langasandi og nú hefur hún meira en tíföld mánaðárlaun skrifstofustúlku við tízkusýningar víða um heim;,hefur til dæmis nýlega verið á ferðalagi um Japan, Kína, Hawai og Filippseyjar. HJALPIÐ OKKUR AÐ FINNA \ 16 VIIÍAN VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.