Vikan


Vikan - 01.02.1962, Qupperneq 30

Vikan - 01.02.1962, Qupperneq 30
AUTOLITE Power-Tip kallast nýjustu rafkertin frá The Electric Auto-Lite Company, þau hafa vaki heimsathygli sakir kosta sinna. EIN GERÐ FYRIR ALLAN HIÍAÐA — SÓTFÆLIN — MARGFÖLD ORKA — STÓIÍSPARA ELDSNEYTI — INNBYGGÐUR ÚTVARPSÞÉTTIR — ÓDÝRARI Reynið in nýju Auto-Lite Power-Tip í bílinn — í allar kveikjuvélar yðar. Fást í flestum bílahlutaverzlunum. Þ. Jónsion C«. Brautarholti 6. — Sími 19215. Uppgjör á sjó Framhald af bls. 7. fremri káetunni. Stýrimaðurinn, Bill Eble, átti að sofa í káetu skip- stjóra aftur á., Maier skipstjóri var í landi og lible sagði þeim bvaða störf lægju fyrir. Hann var ungur, dálítið feit- laginn, og það var auðséð að hann leið önn fyrir hve seint honum spratt grön. Hann kvaðst hafa ráð- izt til Maier skipstjóra fyrir milli- göngu manns í New York sem væri kunningi þeirra beggja; sagðist hafa komið flugleiðis þaðan til þess .að sigla skútunni heim með „karlin- um“, en þegar til New York kæmi, ætti skútan að liggja þar yfir sum- arið. Skipstjóri kom ekki um borð fyrr en kvölda tók, og enn var hann á stuttbrókunum einum klæða. Hann bar bjórdunk og hélt á digrum kað- a'spötta, eins og það væri þræla- svipa. Skipstjórinn tæmdi bjórdunkinn og kastaði honum fyrir borð. „Anna“, sagði hann, „farðu niður og brasaðu eitthvað handa manni að éta. Það er eitthvað af nauta- kjöti i kæliskápnum. Eins gott að gera sér mat út þvi áður en það skemmist". Laurenson leit upp frá kaðal- stanginu. „Við höfum ákveðið að snæða kvöldverð uppi í borginni Okkur tangar til að vita hvernig humarinn hjá Gianinni bragðast okkur“, sagði hann. Maier skipstjóri hristi höfuðið. „Ómeti, því megið þið trúa“. Hann kveikti sér i sigarettu. „Ég tek það ekki i mál að þið farið að éta þar. Og eins og ég sagði, þá eruð þið gestir mínir næsta hálfa mánuðinn." Hann dinglaði kaðal- spottanum í áttina til Eble. „Fylgdu henni Önnu niður og sýndu henni hvernig hún á að fást við eldavél- ina.“ Nokkur andartök stóðu þau öll grafkyrr, en svo hélt Eble af stað niður — og Anna á hæia honum. Eftir svo sem klukkustund kom hún aftur upp á þiljur. Hárið var allt i óreiðu og hún var sveitt í andliti. „Maturinn er til,“ mælti hún auðmjúk. „Stórkostíegt!“ hrópaði Maier skipstjóri. „Þá skulum við koma niður og fá okkur i svanginn. Þú sýnist hafa þörf fyrir eitthvað kjarn- gott, Laurenson; komdu!“ Borðið i framkáetunni var snyrti- lega dúkað, fjórir diskar með nauta- steik og baunum. Maier og Lauren- son sátu öðru megin við borðið, þau Anna og Eble gegnt þeim. Þau neyttu matarins án þess að mæla orð frá munni. Þegar máltíð- inni var lokið, sagði skipstjóri. „Við skiptumst svo á um að gera hreint hérna. í kvöld er það Laurenson háseti, sem sér um það.“ Þeir skipstjóri og stýrimaður hans héldu upp á þiljur og Lauren- son varð eftir í eldhúsinu hjá konu sinni. „Hamingjan sanna,“ varð honum að orði, „ég er ekki viss um að þetta verði eins skemmtilegt æv- intýri og ég gerði mér i hugarlund.“ Morguninn eftir vakti skipstjóri þau áður en lýsa tók af degi. „Við skulum ganga frá öllu,“ sagði hann. „Ég vil komast út úr höfninni fyrir sólarupprás.“ Skipstjóri tilkynnti þeim vakta- skiplinguna á meðan stýrimaðurinn dró upp fokkuna. „Þið verðið saman á vakt, þú og stýrimaður,“ sagði hann við Laurenson. „Við Anna höfum svo vakt á móti ykkur. Með því móti verður alltaf einn vanur uppi á þiljum.“ Laurenson glaðvaknaði skyndi- lega. „Hvernig er þetta vaktafyrir- komulag eiginlega?“ spurði hann hraðmæltur. Maier glotti og danglaði kaðal- spottanum við lófa sér. „Ég hélt þú værir frægasti sjómaður, Laur- enson. Jæja, önnur vaktin stjórnar fleytunni og sér um allt, sem gera þarf, meðan hin sefur. Hver vakt stendur fjórar klukkustundir. Með öðrum orðum — þú vinnur í fjórar klukkustundir, sefur í fjórar.“ Hann þagnaði við eitt andartak, en mælti svo: „Og ég ráðlegg þér að nota svefntimann til að sofa, karl minn. Þú munt fljótt komast að raun um, að þér veitir ekki af.“ Sem snöggvast vissi Laurenson ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hon- um varð litið til Önnu konu sinnar, en hún horfði í allt aðra átt. Þegar sólin kom upp, var „Se- bastian“ kominn út á opið haf og stefna tekin á Bermuda. Sjór var sléttur. Þeir skipstjóri og stýrimað- maður stýrðu til skiptis, Anna var niðri og matreiddi morgunverð og Laurenson reyndi að kynnast sjó- mennskunni eftir föngum. Um hádegið tók skipstjóri sólar- hæðina með sexantinum. „Litið þangað,“ sagði hann og benti aftur um skut, þar sem St. Cyr var að hverfa við sjóndeildarhring. „Þið sjáið ekki land aftur í viku að minnsta kosti.“ Eftir hádegið kenndi stýrimaður- inn Laurenson að stýra eftir átta- vitanum. Dagurinn var lengi að liða og hann var farinn að lýjast, þegar skipstjóri tilkynnti honum það klukkan átti að kvöldi, að nú hæf- ust vaktaskiptin. „Þú verður við stýrið til miðnættis, Laurenson, en við Anna förum niður og fáum okk- ur blund.“ Laurenson stóð við stýrið, en veittist örðugt að einbeita sér. Stýr- isklefinn var beint nppi yfir káetu skipstjórans, og Laurenson lagði hlustir við hverju hljóði, er þaðan kynni að berast. Skipstjórinn kom upp á þiljur á miðnætti, stundvíslega, en Lauren- son fór niður að vekja Önnu. Hún var þegar á fótum. „Hvernig líður þér?“ spurði hann. „Ljómandi vel,“ svaraði hún. „Er ekki allt í lagi?“ Orðin sluppu af vörum hans áð- ur en hann gerði sér grein fyrir þeim. „Láttu hann ekki valda þér neinum óþægindum,“ livfslaði hann. „Kallaðu á mig, ef þú þarft nokkurs við.“ Hún brosti og kyssti hann létt á vangann. „Það kemur áreiðanlega ekki til þess, hafðu ekki neinar á- hyggjur þess vegna,“ sagði hún og hljóp léttilega upp stigann. Næsta dag hélzt stöðugur byr og skipsljóri dró upp stórseglið til að auka skriðinn. „Svo drögum við upp framseglið," sagði hann. „Um að gera að nota leiðið eins og unnt er.“ Um hádegisleytið sendi hann Laurenson fram á bugspjótið til að draga inn fokkuna. Þegar honum 30 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.