Vikan


Vikan - 01.02.1962, Blaðsíða 42

Vikan - 01.02.1962, Blaðsíða 42
Clark Gable, framh. í gömlum leirbrúsum. Já, það var heimilislegt og hlýlegt sviðsatriði, sem Clark leit augum, þegar við settumst öli að ianga furu- borðinu, hann fyrir öðrum enda þess og ég gegnt honum. Þegar kalkún- inn var borinn inn, feitur og mikill, var honum fagnað með aðdáunar-„ó“- um þeirra, er að borðum sátu. Mér varð litið til Clarks yfir endilangt borðið, og við brostum hvort við öðru. Þá hratt hann stól sínum aft- ur á bak um leið og hann reis á fætur, gekk meðfram borðinu þangað sem ég sat, og kyssti mig rembingskoss að öllum ásjáandi. „Kathleen," sagði hann ástúðlega. „Þakka þér fyrir allt það raunverulega tilefni til þakk- lætis, sem þú hefur veitt mér.“ Við hlökkuðum alltaf mikið til ' jólanna. Einhvers staðar hafði Clark orðið sér úti um gamlar hreindýra- bjöllur, sem við hengdum upp í rauð- um lindum báðum megin við borð- stofudyrnar, en stigagangurinn var skreyttur brezkum mistilteini. Clark hafði sínar mjög ákveðnu skoðanir varðandi alla jólaskreytingu — aðal- litirnir urðu rautt og grænt og allt í gamla stilnum. Hann hafði megn- ustu andúð á öllu gliti, öllu hvítu og fjólubláu, og hann notaði grein- arnar, eins og þær komu fyrir af trjánum, til Þess að skreyta með. Og jólatréð var venjulega svo stórt, að við urðum að höggva neðan af því, til þess að það kæmist inn i stofuna. Ég er viss um að margar eigin- konur kannast af eigin raun við þá aðferð, sem hann hafði við að skreyta jólartéð. Þegar hann hafði komið því örugglega fyrir, tók hann þátt í skreytingu þess fyrst í stað, en tók sér að þvi búnu sæti í þægilegum stól nokkuð frá — og fjarstýrði svo skreytingunni þaðan. Og að sjálf- sögðu þakkaði hann sér það svo, þeg- ar gestirnir dáðust að því hve jóla- tréð okkar væri smekklega skreytt. Clark fékk aldrei nóg af veiðiferð- um. Skömmu eftir að við vorum gengin í hjónaband, spurði hann mig hvort ég mundi ekki hafa gaman af að læra að skjóta. „Ég hefði gaman af að reyna,“ svaraði ég. Og svo hófst það nám. Kennarinn minn var sér- lega þolinmóður, og ég gerði mitt til að launa honum það með því að leggja mig alla fram. Clark kom mér fyrst af öllu í skilning um það —- og eins var það, þegar hann kenndi Bunker að skjóta nokkru síðar — að byssan væri ekki neitt leikfang, heldur vopn, sem yrði að handleika af ýtrustu varúð, og aldrei mætti nota, nema við sérstakar aðstæður. Fyrsta byssan, sem ég fékk að fara með, var Remington-riffill, sem hann lét mig bera i heilt ár óhlaðinn um akra og skóga, áður en hann var á- nægður með hvernig ég handlék hann. Því næst kenndi hann mér að skjóta, en það nám fór fram í húsakynnum skotfélagsins, sem hann var í. Það var sannkallaður merkisdagur, þegar ég skaut fugl í fyrsta sinn. Clark var ekki síður stoltur af því afreki en ég. „Líklega tekst mér að gera úr þér fyrsta flokks veiðimann," sagði hann. „Veiðikonu," leiðrétti ég. Framhald í næsta blaði. Deilt með einum Framhald af bls. 11. segja. Jæja, við skulum dansa, sagði liann svo við döinuna. Þau stóðu upp og fóru út á gólfið. Ætti hann að bjóða Lillý upp. Því ekki það. Hún neitaði þá bara. Kannske væri ekki vert að vera að því. Þeirra á milli var ekkert fram- ar. Ekkert, og þó, var kanske barnið ekkert? Barnið hans og hennar. Barnið þeirra. Skrítið það. — Viltu dansa? Hún leit snöggt upp og mætti augnaráði hans. — Já takk, og hún stóð upp. — Heyrðu góði, hvern djöfulinn, sagði sá Ijóshærði og stóð líka upp, en settist aftur, kannske af því að hann náði Hafsteini aðeins í öxl. En hann horfðí hatursaugum á eftir þeim. — Ég er vonandi ekki að trufla, spurði Hafsteinn þegar þau voru komin út á gólfið. — Nei, ekki að ráði. — Ég hélt kannske að hann væri einhver sérstakur. — Jæja, sagði hún tómlega, eins og henni kæmi þetta ekkert við. Síðan bara tilkynning um að borga meðlagið. Og nú voru þau hér allt i einu saman. — Lillý, sagði hann lágt, — ég þarf að tala við þig. Þorirðu að stinga snöggvast af með mér? Hún svaraði ekki strax en leit framan í hann, alvarlega, brosti svo allt i einu og leit undan. Allt í lagi, sagði hún svo. Þau gengu út. Tveir fullir náungar seni skakklöppuðust úti fyrir, viku sér að þeim og annar reyndi að taka utan um Lillý, en hún sneri sig af honum. — Láttu ekki eins og þú þekkir mig ekki, drafaði í þeim drukkna. — Passaðu þig nú að fá ekki aft- ur í magann, kallaði hinn á eftir þeim. Bílar voru að koma og fara, alls konar hljóð bárust frá þeim. Hlátr- ar og háværir skrækir, blandaðir danslögum í útvarpi. Músikkin inn- an úr húsinu eins og fjarlægur niður. — Keyrðu eitthvert, sagði Lillý, þegar þau voru setzt inn í bílinn. Hafsteinn setti bílinn í gang og keyrði út á veginn. Nú birtum við snjalla smásögu eftir Guðnýju Sigurðardóttur í næsta blaði og hún heitir: GRUNAÐI EKKIGVEND. — Hún hafði breytzt dálítið, var grennri en áður og svipurinn festu- legri. Þau þögðu, skrýtið hvað erfitt var að finna umræðuefni. Áður var þó ekki erfitt að tala við Lillý. Venjulega talaði hún, já reyndar, og hann hlustaði. Hann sá að Kiddi horfði stöðugt á þau, það ergði hann. Hvað kom honum þetta við. Hann þurfti ekki að vera að passa litla bróður. Nei, þetta dugði ekki. — Hvernig hefirðu haft það? spurði hann loks og fann um leið að spurningin var asnaleg. — Gott, svaraði hún aðeins. Aftur þögn. Ætti hann að spyrja eftir barninu. Já, auðvitað ætti hann að gera það, en hvernig, það var ekki gott að byrja á því. Alltof vel mundi hann síðasta samtal þeirra. Hún hafði komið inn til hans og sagzt vera á förum heim til sín. Hann spurði einskis. Hún hafði stað- ið þegjandi og vandræðaleg aldrei þessu vant og loks — Hafsteinn, ég á von á barni. Nú, og hver á það? Þetta hafði hrokkið út úr honum i hugsunar- leysi án þess hann tæki eftir því. Vissi eiginlega ekki hvað hann átti að segja. Hún eins og hálf hrökk við, stóð svo snöggvast þegjandi og allt í einu reiddi hún upp aðra höndina og sló hann fast utan undir, gekk síðan þegjandi út úr herberginu, síðan höfðu þau ekki sézt. Hann hafði oft ætlað að skrifa henni, eða heim- sækja hana, en ekkert úr því orðið. Hvers vcgna? Hann vissi jiað eigin- lega aldrei. Svo var Kiddi alltaf með spurning- ar og rex, sem fór i taugarnar á honum. — Er langt héðan heim til þin, spurði hann. — Já. — Hvað langt? — Iílukkutima ferð. Hann reyndi að s-já framan i hana i daufu miðsumarsrökkrinu, en hún sneri andlitinu alltaf frá honum, hann sá bara rautt hárið sem glóði í ljósunum frá mælaborðinu. Áftur þögðu þau. Allt í einu sneri hún sér að honum og sagði: — Þú ert eitthvað þungt þenkj- andi. Hvað er svona sorglegt? — Bíddu við, ég er nú að sækja i mig veðrið. — Góði hafðu það ekki mjög hvasst, þegar það loksins kemur, sagði hún og hló. Ilonuin létti. Nú var hún aftur sjálfri sér lík, og örsnöggt blossaði girndin til hennar, upp í honum, en — nei, hann ætlaði ekki að gera neina vitleysu, bara að tala við hana, svo þau gætu orðið góðir vin- ir aftur. — Er ekki klárt að stoppa hér einhvers staðar, spurði hann. — Jú, jú, það er afleggjari hérna rétt hjá og þú getur snúið við þar uppi á sléttum mel, þarna rétt. Hann snéri við eins og hún hafði sagt, slökkti ljósin og drap á biln- um. — Jæja, sagði hún, hér kemur okkur enginn að óvörum. — Ertu kannske hrædd um að ráðizt verði á þig? sagði hann og liló. — Uss, heldurðu að ég óttist það, þegar ég hef stóran og sterkan mann til að passa mig. — Ennþá ertu sjálfri þér lík, Lillý, sagði hann, og tók utan um hana. — Hélztu að ég hefði skánað eitt- hvað, svaraði hún hlæjandi, og kom til móts við hann, ljúf og heit, eins og fyrrum. Varir þeirra mættust i löngum kossi, kossi sem kveikti eld í blóðinu og kæfði alla löngun til að vera góða barnið. í vaxandi æs- ingu urðu faðmlög þeirra heitari og fastari, hendur þeirra losuðu titrandi fingrum um fötin, og i sam- einingu leituðust þau við að not- færa sér hið takmarkaða pláss, sem bílsætið leyfði. Og hann fann að hún hafði ekk- ert breytzt, hún var jafn áköf og áður, og á eftir var hún enn sú sama. Lillý var aldrei með neitt röfl og eftirsjá, ekki einu sinni í fyrsta sinn. Þau settust upp og löguðu föt sín. Hafsteinn kveikti i sígarettu og leit á klukkuna. Djöfullinn, varð honum að orði, ballið er að verða búið. — Gef mér smók, bað hún. Hann rétti henni sígarettuna og setti bil- inn í gang, kveikti, og keyrði út á veginn. Þau þögðu. Lillý saug að sér nokkra reyki, skrúfaði svo niður rúðuna, og henti stubbnum út. — Hafsteinn, sagði hún allt í einu. — Hvað er eiginlega á milli okkar? Honum brá, nú myndi það koma. — Hvað áttu við? — Ég á við, hvernig við erum. Erum við kunningjar, elskendur, eða bara bölvaðir bjánar? — Ég veit það ekki Lillý, fjand- inn hafi það. Kannske erum við allt þetta. — Hefirðu nokkurn tíma verið skotinn í mér að ráði? hélt hún áfram. — Nei, eiginlega ekki. — Ekki ég heldur i þér, kannske svolítið hrifin stundum, en heldur ekkert meira, ég skil þetta ekki. — Kannske við ættum að gifta okkur, varð honum að orði, en sá undir eins eftir þvi. Hún þagði. — Nei, sagði hún svo. — Það er ekki til neins. Það yrði engan útkoma úr því. — Nei, líklega ekki. Þetta er eins og reikningsdæmi, sem ekki gengur upp. — Já, sagði hún. — Það er alveg rétt. Það er eins og að deila með einum, það verður alltaf sama út- koman. Þau voru komin að húsinu. Fólkið var að hópast út. Lögregluþjónn leiddi ungan mann, sem bölvaði mikið og reyndi að losa sig, og kvaðst þurfa að jafna um einhvern. Ballið var búið. — Mér fannst ég þurfa að tala svo mikið við þig. Nú man ég ekki eftir neinu, sagði Lillý, og liann sá að hún brosti I rökkrinu. — Jæja, sagði hann aðeins, því hann vildi að hún færi áður en strákarnir kæinu, en hann kunni ekki við að segja henni það. — Jæ-ja, ég er farin, sagði Lillý, og opnaði hurðina. — Blessaður, og þakka þér fyrir biltúrinn. — Takk, sömuleiðis. Blessuð. Hún sté út og skellti aftur hurð- inni. Hann sá hvar hún gekk eftir bílas’tæðinu, og hvarf inn í einn bílinn. Ilann sat og hallaði sér aftur. Skyldu strákarnir ekki fara að koma. Þetta yrðu rífandi tekjur hjá þeim. Vonandi yrðu þeir ánægðir. Ekki veitti af á leiðinni í bæinn. Verst þegar Kiddi færi að yfir- heyra hann, því hann hafði gleymt að spyrja hana eftir barninu. 42 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.