Vikan - 08.03.1962, Qupperneq 5
i
að ég hafi ekki bragöaö afengi, sem um mynt, sem samsvarar svo sem
var sannleikanum samkvœmt, og lagt tíu núgildandi krónum.
þar að veði bæði timanlega og ei-
líflega sáluheill mína. Vikan.
Bifreiðastjórinn áhyggjufulli. Það var gaman að fá sakramentið
hjá þér Og ekki sízt að sjá, hvað
— — — Það er ekki lítið, sem þetta ágæta fólk sagði. Mér finnst,
þú leggur að veði — og líklega að það mætti gera eitthvað svona
hefurðu ærna ástæðu til að vera oftar. Lesandi.
svona áhyggjufullur — því að
þessi pilsner er nú einu sinni Kæri Póstur.
áfengi (Nú hlær eflaust einhver), Ég ætla að byrja á því að óska
hvort sem okkur líkar betur eða Vikunni til hamingju með það að
verr. Það er meira að segja svo hafa stækkað um 1000%. Það var
mikið áfengismagn í honum, að
þú getur farið illa út úr blóð-
rannsókn eftir daglangt þamb —
þótt ég öfundi ekki neinn af því
að innbyrða þau býsn, sem þurfa
til. Einn pilsner á klukkutíma
fresti er líklega fullmikið —
láttu þér nægja einn annan hvorn
klukkutíma. Það er nú einu sinni
til annað þorstastillandi en
pilsner og blávatn úr ársprænum.
Sjálfsalar ...
Kæri Póstur.
Hvernig ætli standi á þvi, að
hvergi í stórborginni finnast sjálf-
salar, þar sem hægt er að kaupa
tóbak, sælgæti og annan smávarn-
ing? Viltu ekki benda einhverjum
auðkýfingnum okkar á þetta. Það
má stórgræða á þessu. Þessir sjálf-
salar eru á öllum götum erlendis
og til mikilla þæginda. Doddi.
-------Satt er það, þessir sjálf-
salar eru til mikilla þæginda —
erlendis, þar sem blessuð krónan
er ekki gjaldmiðill. Myntin okk-
ar er bara orðin svo lítils virði,
að menn yrðu að ganga með vas-
ana fulla af krónupeningum og
tveggja krónu peningum, til þess
að geta nýtt sér þessi þægindi.
Hver ætli myndi nenna að stinga
tíu tveggja krónu peningum í
slíkan sjálfsala fyrir einn sígar-
ettupakka? Og hver hefur tíu
tveggja krónu peninga í vasan-
um? Auk þess er mikill kostnaður
við að breyta þessum sjálfsölum,
ef krónan okkar skyldi enn
falla. Við skulum ekki hugsa
meira um þetta að sinni — en
benda einhverjum auðkýfingnum
á þetta, þegar það er orðið tryggt
að krónan fellur ekki og við eig-
— Nei, nei. Bréfið á ekki að brjóta
svona, þó það fari í flug ...
fróðlegt að sjá eitthvað um fyrir-
tækið á bak við þetta ágæta blað.
H. S. K.
Kæra Vika.
Ég er kona ekki afskaplega
hneykslunargjörn, en nú gekk al-
veg fram af mér um daginn. Ég
fór á skemmtistað og sá þennan
nýja dans sem kallaður er Twist.
(í fyrsta lagi mótmæli ég því að
kalla það dans). Þetta er klúrt og
ógeðslegt og ég var miður mín að
horfa á það. Það var þar til dæmis
kona, sem ég kannast við og er gift
virðulegum manni. Hún hefur víst
eitthvað verið búin að smakka vín
og fór að dansa þennan svokallaða
dans við einhvern kunningja
mannsins hennar. Þau klóruðu sér
á bakinu og skóku sig og hristu
og það var svo klámfengið að ég
sneri mér undan og skammaðist
mín fyrir kynsystur mína. Nú vil
ég biðja Vikuna, sem er víðlesið
og áhrifamikið blað, að beita sér
fyrir því, að þetta verði lagt niður.
Með kærri kveðju.
Ein af gamla skólanum.
Ég átti tal um twistinn við einn
af danskennurum bæjarins og
hann hélt því fram að ekki væri
hægt að kalla twistinn dans.
Þetta væri dægurfluga, sem yrði
úr sögunni bráðlega. Enda þótt
við vildum beita okkur fyrir því
að „dansinn“ yrði lagður niður,
þá yrði þaS erfiður róður og þar
að auki ástæðulaus. Ég held að
þú horfir full ströngum og siða-
vöndum augum á þetta.
Kæra Vika.
Það var einu sinni minnst á það
i póstinum, að óheppliegt sé að byrja
sýningar í Þjóðleikhúsinu kl. 8. Nú
vil ég segja mitt álit á því: Þá
sjaldan við hjónin förum í Þjóðleik-
húsið, er það þvllíkt kapphlaup að
borða, koma krökkunum í rúmið
og klæða sig að ég dauðkviði alltaf
fyrir því og fér miklu sjaldnar í
leikhús fyrir bragðið en ég annars
mundi gera. Svona er það líka hjá
öllu mínu kunningjafólki. Þessir
háu herrar, sem ráða fyrir leik-
húinu eru líklega orðnir gamlaðir,
eiga að minnsta kosti ekki smá-
börn lengur og eru búnir að gleyma
þvi, hvernig það var. Það er auðvelt
fyrir þá að mæta kl. 8, en fyrir allt
venjulegt fólk er það mjög erfitt
og ég sé enga ástæðu til þess að
byrja kl. 8. Af hverju má ekki eins
byrja kl. 9, flest leikrit taka hvort
eð er aðeins tvo til þrjá tima.
Húsmóðir.
SÓLÓ-settið fegrar hibýli yðar, notið yður alla mögu-
leika eldhússins, fáið yður stílfalleg SÓLÓ-eldhússett. —
SÓLÓ-settin eru smiðuð úr völdum stálrörum húðuðum
slitsterkri chromehúð. Borðplatan er úr hinu kunna
ARBORITE harðplasti en stólarnir fást ýmist með
teakbaki og bólstruðu sæti eða albólstruð með hinu
eftirsótta nýja „LYSTADUN". — SÓLÓ-settin fást í
ELEtTROLUX-UHBOÞIHU
Laugavegi 176. — Sími 36-200.
VIKAN 5