Vikan


Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 39

Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 39
^L'uríaíh Hinar fjölbreyttu KURLASH augnsnyrti- vörur gefa augum yðar nýja fegurð. KURLASH augnsnyrti- vörurnar fást í snyrti- vöruverzlunum og víðar. HEILDSÖLUBIRGÐIR: H. A. Tulinius fylgjast með mér. Það er allt og sumt. — Hún var sannajrlega falleg, fannst þér það ekki? sagði Rut vin- gjarnlega. Þau fóru inn í bílinn og hún sett- ist undir stýrið, eins og hún gerði oft, þegar hann var þreyttur. — Ég geri ráð fyrir því, sagði hann óákveðinn. — Það var hún, sagði Rut. Ég tek alltaf eftir fallegum konum. Hún ók bílnum fimlega fyrir krappt horn og út á þjóðveginn. — Það er víst vegna þess, að ég er sjólf svo ljót, bætti hún við. Hún sagði þetta eins og það skipti engu móli, en hann þekkti hana of vel til að taka ekki eftir sársauk- anum, sem að baki lá. — Þú ert ekki Ijót, sagði hann ástúðlega. Þú ert dásamlegasta kon- an í heiminum, og sú eina, sem ég hef nokkru sinni litið á. Hann leit á ófríðan vanga lienn- ar og ljósleitt hárið, sem byrjað var að grána. en féll mjúklega nið- ur á ennið. Hún hafði aldrei látið iiða það. Hún hafði borið ófríð- leika sinn með eins konar stolti. En nú fann hann, að þetta stolt bjó lika yfir sársauka. Henni var ekki sama hvernig hún leit út. — Þú trúir mér vonandi, þegar ég segi að ég þekki ekki þessa konu, sagði hann hvasst. — Auðvitað, Roger, svaraði liún rólega. Billinn rann mjúklega eftir veg- inum. Hún byrjaði að tala, þægi- lega og vingjarnlega eins og hún var vön. — Mér tókst að ná í eftirlætis- blómin þín í dag, sagði hún. Ég fyllti marga vasa með þeirn. Þú sérð þau, þegar við komum heim. — Ég hlakka til þess, sagði hann lágt. Rödd hennar kom honum aft- ur í jafnvægi. Eftir annir dagsins, en hann hafði þurft að taka erfiðar ákvarðanir viðvikjandi starfinu, var rödd hennar eins og hljómlist í eyrum lians og orð hennar um eft- irlætisblómin hans fylltu hann ör- yggistilfinningu. Hún tók alltaf á móti honum með einhverju skemmti- legu og upplífgandi, en talaði aldrei um áhyggjur og leiðindi. Hún gerði honum lifið þægilegt. Það var ein- kennandi fyrir hana. Þægilega Rut! Nú óku þau um hliðið og inn á götuna heim að húsinu. Þar logaði hlýlegt ljós, eins og til að bjóða hann velkominn, og stóri hundur- inn þeirra kom lilaupandi á móti honum og nuddaði sér upp við fæt- ur hans. Rut hafði fyrir löngu kennt honum að bera skjalatöskuna hans. — Allt i lagi, Trixie, sagði hann og fékk honum töskuna. Hundurinn ýtti upp dyrunum og hljóp stoltur inn með tösku húsbónda síns. Rut hló við honum. Hlátur hennar var ávallt þægilegur, lágur, hjartanleg- ur og ófalskur. Hann lokaði dyrunum að baki þeim og ferskur ilmur úr hreinum herbergjunum barst að vitum hans. — Það er svo dásamlegt að vera kominn heim, sagði hann. Ég átti erfiðan dag. Þarna eru blómin mín — þau eru yndisleg. Af hverju er þessi góða lykt úr eldhúsinu? — Ég var svo heppin að ná í bauta, sagði hún glaðlega. Hún hjálpaði honum úr frakkanum og hengdi hann í fatageymsluna. — Maturinn er tilbúinn, þegar þú óskar þess, vinur minn, sagði hún. Hann fór upp á loft og hver vöðvi og taug i líkama hans þráði hvíld. Ég gæti aldrei afkastað öllu, sem ég geri, ef ég hefði ekki Rut, hugsaði hann. Hann tók sér bað og fór í heimajakkann, og gekk síðan niður. Hann var ánægður inn að innstu hjartarótum. Hann treysti henni í öllu. Ef hann hefði nú ver- ið maður fögru konunnar — maður- inn, sem hún óttaðist, vegna þess að hún elskaði annan! Hann var hamingjusamur maður, að eiga konu, sem hann gat treyst. Hann brosti, þegar hann gekk inn í setustofuna. En þá kom hann auga á andlit Rutar í spegli á veggn- um gegnt sér, og brosið stirðnaði á vörum hans. Hún stóð þarna og liorfði á sjálfa sig með ótta og við- bjóði, eins og hún væri að horfa á einhverja ókunna ófreskju. — Rut! kallaði hann. Hann sá andlit hennar breytast aftur í það rólega brosandi andlit, sem hann hafði haldið að væri henni eiginlegt. Iín hann gat ekki sætt sig við það, sem hann hafði séð. Hann stóð kyrr og horfði alvarlega á hana. — Hvað varstu að hugsa um? sagði hann. Þau höfðu alltaf verið lireinskil- in hvort við annað og hún var það meira að segja í þetta sinn. — Um það, hve ljót ég sé. Hún sagði þetta glaðlega og tók um handlegg hans og gekk að borð- inu. — Það er ekki neitt nýtt, sagði hún um leið og þau settust. Það var snyrtilega lagt á borð, eins og alltaf, og vinnustúlkan kom inn með súpuna. Kertaljósin slógu bjarma sínum á andlit Rutar og sú þirta var ekki fegrandi. Hann hafði elskað hana svo heitt i öll þessi ár að hann hafði aldrei hugsað um út- lit liennar öðruvísi en sem hluta af konunni, sem hann elskaði. Þeg- ar hún fór að tala um að hún væri Ijót, var eins og andlit hennar öðl- aðist sjálfstætt líf og augu hans opnuðust fyrir því að hún var ekki falleg. Augu lians byrjuðu að flökta og hún varð vör við það. Hún leit niður og byrjaði að borða súpuna hratt. Höndin, sem hélt á skeiðinni skali' örlitið. Hann varð óskiljanlega æstur og byrjaði að hlæja. — Hvað er þetta, Rut? — Ég geri ráð fyrir að kona sé alltaf falleg i augum þess manns, sem hún elskar, sagði hún, án þess að líta upp. — En við höfum alltaf verið svo hamingjusöm saman, Rut . . . Munnur hennar byrjaði að titra. — Þetta er kjánalegt af mér, en í svipinn er ég víst bara að reyna með öllum ráðum að fá þig til að segja að ég sé — falleg. —Kemur það ekki í sama stað niður, þegar ég segi að ég elska andlit þitt, elska hvern drátt í því? Hún leit snöggt upp og síðan nið- ur aftur. — Ekki alveg, sagði hún. Það hafði ríkt svo algjör hrein- skilni á milli þeirra, að hann gat ekki fengið sig til að segja, sem hann þráði að segja núna — að hún væri falleg. Á einhvern undarleg- Framhald á bls. 41. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.