Vikan - 08.03.1962, Qupperneq 20
10. VERÐLAU NAKROSSGATA
VIKUNNAR
Vikan veitir eins og kunnugt er
verðlaun fyrir rétta ráðningu á kross-
gátunni. Alltaf berast margar lausnir.
Sá sem vinnninginn hefur hlotið fær
verðlaunin, sem eru:
100 KRÓNUR
Veittur er þriggja vikna frestur til
að skila lausnum. Skulu lausnir send-
ar í pósthólf 149, merkt „Krossgáta".
Margar lausnir bárust á 5. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
SIGRÍÐUR LÝÐSDÓTTIR,
Snorrabraut 48, Reykjavík,
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
ViKunnar, oKÍpholti 33.
Nafn
Heimilisfang
Lausn á 5. krossgátu er hér að
neðan.
= = b r y n j a a u r = ó m = =
= = 0 = 1 0 n t a = r e k a V i
h e r s i r = V a i = i = r í n
V i £ t = p r i k = á £ i r n d
e k u r = a r k a r = i n = Þ 6
r u n i e i D = m e n
g r = t r ú = = = f = m á s k e
i = s = e r t u m i ð a r = k s
= s m e ,Y k u r ý 1 = ö œ f j í
s k á i k 0 £ i b 1 a u ð á a a
s e p d u m £ e i 1 k r i t r e
= r a u s t a a = = e i r
= = = s k a t t a f r a m t a i
= = = k a t 1 a = a n d V a r a
20 VIKAN
II
* ,
4
’biimar
Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Þú átt von á
óyenjulegum gesti í heimsókn í vikunni, og getur
þessi gestur orðið til þess að áform þín breytast
allmikið. Um helgina ferð þú i heimsókn í hús,
sem þú hefur aldrei komið i áður, og þar kynnist
þú manni, sem þú munt umgangast talsvert síðar meir.
Fimmtudagurinn er mikill heilladagur fyrir konur.
Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þér verður
komið þægilega á óvart um helgina, og verður
það til þess að skapið batnar til muna. Sannast
að segja hefur skapið ekki verið sem bezt undan-
farið, og er þetta farið að fara í taugarnar á
kunningjum þínum og fjölskyldu. Þín bíða margar freist-
ingar í vikunni.
Tmburamerkiö (22. maí—21. júní): í þessari viku
gerist eitthvað, sem þú hefur lengi átt von á.
Ekki er samt ljóst, hvort það er þér til góðs eða
______ ekki — a. m. k. verður þetta þér dýrmæt reynsla.
Vinur þinn fær óvenjulega hugmynd og hvetur
þig til þess að hjálpa sér við að hrinda henni í framkvæmd.
Hugsaðu þig vel um, áður en þú leggur í nein stórræði.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þetta verður
fremur leiðinleg vika, og átt þú sjálfur ekki sízt
sök á því, því að það er eins og þú viljir ekki
gera þér mat úr því góða, sem þér býðst. Þú ert
orðinn alltof óþolinmóður, og verður þessi óeðli-
lega óþolinmæði til þess að kveikja í þér gremju og stundum
hvimleitt athafnaleysi. Þó verður föstud. góður dagur.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Á vinnustað ger-
ist eitthvað, sem á eftir að draga dilk á eftir sér,
og átt þú mestan þátt í þessu. Endalok þessa máls
verða vafalaust góð, ef þú kemur fram af fyllstu
nærgætni gagnvart vinnufélögum þínum. Á laug-
ardag gerist eitthvað bak við tjöldin, sem á eftir að hafa
talsverð áhrif á framtíð þína, en það kemur í ljós síðar.
Meyjarmerkiö (24. ág,—-23. sept.): Ulur orðrómur
getur orðið til að koma þér i ljóta klípu i
vikunni. Ekki er Ijóst frá hverjum þessi orð-
rómur kemur, en sjálfur skaltu varast að segja
nokkuð um náungann, sem þú hefur ekki öruggar
heimildir fyrir. Miðvikudagur er dálítið varasamur, eink-
um fyrir unga fplkið.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þessi vika
verður mjög frábrugðin síðustu vikum. Það er
eins og einhver ró sé að færast yfir þig, og er það
vel, því að undanfarið hefurðu ekki haft neina
eirð í þér. Þú færð bréf i vikunni, sem á eftir að
valda þér miklum heilabrotum. Um helgina færð þú
skemmtilega heimsókn.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú stendur
frammi fyrir miklu vandamáli, og virðast tvær
leiðir til þess að leyáa þetta vandamál. Hugsaðu
þig vandlega um, áður en þú tekur nokkra á-
kvörðun. Það liggur ekkert á. Þetta er mál, sem
þarfnast mikillar yfirvegunar. Þú lærir eitthvað, sem verð-
ur til þess að auðvelda þér störf þín eftirleiðis.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Þetta
verður mikil hamingjuvika fyrir þig og þína nán-
ustu. Þótt ekki gerist ýkjamikið, verður þú á-
nægður með flest það, sem gerist og í fullri sátt
við tilveruna. Þú byrjaðir fyrir nokkru á verkefni,
sem á hug þinn allan. Vertu ekki of óþolinmóður, þótt ekki
gangi alltof vel í fyrstu. Enginn verður óbarinn biskup.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Það gerist mik-
ið í vikunni, og þú verður potturinn og pannan í
einhverju, sem þið kunningjar þínir hafið á
prjónunum. Þér verður boðið út í vikunni, en ekki
er ráðlegt að þiggja það boð, ef það rekst á eitt-
hvað annað (sem þér finnst ef til vill ómerkilegra) sem þú
þurftir að gera. Laugardagurinn er heilladagur kvenna.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú gerir þér
óþarfar áhyggjur út af einhverju, sem gerðist í
JKT'jl vikunni sem leið. Það eru allir búnir að gleyma
þessu nema þú. Taktu það ekki illa upp, þótt vin-
ur þinn ætlist til mikils af þér. Þú ætlast sjálfur
til mikils af honum. Þú ferð mikið út að skemmta þér í
þessari viku. Varastu samt allt óhóf. Heillatala 6.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þrjózka þín
verður til þess að þú missir af gullvægu tækifæri
i vikunni. Láttu þetta þér nú að kenningu verða.
Þér gefst annað svipað tækifæri á næstunni. Þú
lest eitthvað eða sérð, sem hefur mikil áhrif á
þig og þau til góðs. Þú áttir von á að eitthvað gerðist í
vikunni þér í hag en einhver bið verður á þvi. Hafðu eng-
ar áhyggjur.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hér er heimsins sterkasta úr. Samt er það svo fallegt, að hver
og einn getur notað það við öll tækifseri. Oss heíir tekizt að
framleiða - með algerlega nýrri tækni - úr, sem standast högg,
sem myndu gersamlega eyðileggja önnur úr. Ennfremur eru
CERTINA-DS sjálf-vindandi, vatns- og höggþétt (reynd undir
20 loftþyngdarþrýstingi). Og að sjálfsögðu afar nákvæmt og
reglulegt....sem sæmir CERTINA.
CERTINA-DS
Hér er úrið,
sem hefir alla þá kosti-
sem karlmaður
óskar eftir.
Qi CERTINA-QS
Selt og viðgert í rúmlega 75 löndum
CERTINA Kurth Fréres, S.A. Grenchen, Sviss