Vikan - 19.04.1962, Síða 3
Aiu
' Útgefándi: Hilmir h.f.
VIKAN
og twskniH
DKW - „Junior de Luxe“ -
frá Auto Union, Þýzkalandi.
DKW bílarnir frá Auto Union
munu litt kunnir hérlendis, en eru
sagðir vandaðir vel, og eins og með-
fylgjandi mynd sýnir, er ytra útlit
þeírra hið glæsilegasta. Hreyfillinn
er iram í, með framhjóladrifi, 34
hestafla, hámarkshraðinn 118 km,
meðaleyðsla 7,3 1 á 100 km. Yfir-
hyggingin úr stálþynnum, lengdin
398 sm, hreiddin 158 sm, hæðin 140
sm, þyngd 095 kg.
Þótt lireyfillinn sé ekki nema
tvcggja strokka, er fullyrt að hann
vinni eins vel og fjögurra strokka,
enda er hann talinn einhver full-
koinnásti tveggja strokka hreyfill,
sem nú cr smíðaður. Innri liúnaður
yfirbyggingar, sæti og þess háttar,
er talið vandað vel; verðið í Þýzka-
landi er 5150 mörk. -A
Að skreppa til tunglsins.
„Halló . . . Tvistirnið h.f. . . .
Nei, forstjórinn er þvi miður ekki
við . . . Get ekki sagt neitt um
það; hann skrapp til tunglsins i
gær . . . Svona viku til hálfan mán-
uð . . . Ef það er mjög áríðandi,
er hægt að ná samhandi við hann
gegnum geimsímastöðina; hann
dvelst í gistihúsinu „Tunglfylling",
herbergi nr 12907 . . . Ekkert að
þakka . . . sælir“.
Hvað skyldu það verða mörg ár
þangað lil símasamtal, eitthvað
þessu svipað, á sér stað hérna i
Reykjavík?
Aldrei, mun margur luigsa. Aldrei,
mundi og margur hafa hugsað; ef
þess hefði verið spurt um aldamót-
in, hvenær jiað mundi eiga sér stað
„Gemini“ — tveggja manna geimfar.
hér á landi að fjöldi fólks skryppi
um páskana til Rómar og Mallorca,
svona að gamni sínu og til að sleikja
þar sólina i viku. Aldrei að segja
aldrei — þegar tækniþróunin er
annars vegar. Það sýna og sanna
atburðir þeir, sem gerzt hafa á sið-
astliðnum árum og eru sem óðast að
ge-rast. Neraa maður vilji Iiaga af-
stöðu sinni eins og gömul kona í ná-
grenni Reykjavikur, sem neitaði að
hreyfa sig af rekkjustokk sínum,
þegar allir á bænum þustu fram til
að horfa á flugvél, sem sveif þar
yfir í fyrsta skipti. „Til hvers skyldi
ég fara að hlaupa út á hlað?“ varð
henni að orði. „Ég trúi þessu ekki
þó ég sjái það . . .“
Rússneskir og bandarískir geim-
farar hafa þegar farið marga hringi
á braut umhverfis jörðu og lent aft-
ur heilir á liúfi. Og nú er unnið af
kappi í báðum þessum löndum að
undirbúningi fyrstu tunglferðanna.
„AppoIo“-geimfarið, sem hleypa á
af stokkunum 1965.
Hér getur að líta myndir af tveim
bandarískum geimskipum, „Gemini“
og „Appolo“, en smiði þeirra hefur
þegar verið samþykkt og verður haf-
in innan skamms. Verður henni
hraðað svo, að gert er ráð fyrir að
tilraunaflug þeirra geti hafizt ein-
livern tíma á næsta ári. Verða geim-
skipin fyrst send mannlaus í sigl-
ingu og þá stjórnað af sjálfvirkum
og fjarvirkum tækjum, og reynist
þau eins og til er ætlazt, verða þau
siðan send i viku til hálfs mánað-
ar siglingu út í geiminn með áhöfn
um borð.
„Gemini" verður tveggja manna
far, eins að lögun og Merkury geim-
hylkið, sem Glenn ofursti ferðaðist
í forðum, en allt að því þrefalt
þyngra, og stjórnklefinn þeim mun
stærri að tveir geimfarar geti setið
þar hlið við hlið. Appoloskipið verð-
ur af annarri gerð og lögun og mun
stærra, þriggja manna far búið
Ritstjóri:
Gísli SigurðsBon (ábm.)
Auglýsingaatjóri:
Jóhanaes Jörundsson.
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A- Kristjánsson.
hreyflum og fjölbreyttum tækjum,
og er ekki gert ráð fyrir að það geti
hlaupið af stokkunum fyrr en árið
1965.
Rússar bafa að venju þann hátt-
inn á að þegja sem fastast um undir-
búning sinn, en eftir þvi sem áður
hefur gerzt, má gera ráð fyrir að
þeir séu að minnsta kosti ekki
skemmra á veg komnir en Banda-
ríkjamenn. Það kæmi meira að segja
fáúm á óvart, þótt þeir tilkynntu
einhvern tíma á næstunni að fyrsti
tunglfari þeirra væri þegar lagður
af stað.
Engan, sem þóttist geta státað af
raunsærri hugsun, mun hafa rennt
grun í það þegar fregnir bárust af
fyrsta flugi þeirra Wrighthræðra, að
fiugvélarnar yrðu orðnar helzti far-
kostur manna, landa og heimsúlfa á
milli, að fimmtíu árum liðnum. Það
voru einungis skáld og skýjaglóp-
ar, sem sáu þá þróun fyrir. Nú er
svo komið þróuninni, að jafnvel
þeir, sém teljast vilja raunsæjastir í
þessum málum, þora ekki að aftalca
neitt. Það er ef til viil ekki nema
tímaspursmál livenær forstjórinn
verður fjarverandi . . . hefur skropp-
ið til tunglsins, Marz eða Venusar,
sér til hvíldar og hressingar i
nokkra daga; kannske með frúna
með sér . .. eða ...
Hitstjórn og auglýsingar: Skipholti
33. Síinar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreíðsla og dreifing:
Blaðadreifing, I.augavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri: óskar Karls-
son. Verð i lausasölu kr. 15. Áskrift-
arverð er 200 kr. ársþriðjungsiega,
greiðist fyrirfram. Prentun: Hilmir
h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
Gervimaður
í raun og sannleika.
Það var tékkneski rithöfundurinn
Carel Kapek, sem á sinum tima
samdi leikrit um vélmennina; það
var sýnt í öllum helztu leikliúsum
heims og um leið komst nýtt orð
inn 1 tungur flestra menningarþjóða,
orðið „robot“, sem Kapek hafði
fundið upp yfir þessa „inanngerð“,
Framhald á bls. 28.
/ næsfa blaði verður m.a.:
• VIKAN hefur þá ánægju að tilkynna, að í næsta blaði birtist
smásaga eftir skáldið þjóðkunna, sr. Sigurð Einarsson í Holti.
Þetta er eina smásagan, sem nokkru sinni hefur birzt eftir
sr. Sigurð. Hún gerist í Reykjavík og hann skrifaði hana nú í
vor. Sagan heitir: Maður með barn í fangi.
• Til tunglsins um páskana eða í sumarleyfinu. Nú þarf ekki
framar neinar ágizkanir um tunglferðina; menn vita nokkurn
veginn í smáatriðum, hvernig hún verður og nú birtir Vikan
ferðasögu til tunglsins, sem ætti að geta verið mjög nærri veru-
leikanum, eins og hann verður eftir nokkur ár.
• Ungt fólk á uppleið: Fanney Sigurjónsdóttir og Ólafur Magnús-
son, sem á örfáum árum hafa gert Carabella að merki sem
kvenþjóðin dáir.
• Draugurinn í Malypensehöllinni. Hann hefði líka getað losnað
við jarðvistina eftir atburðinn í hölinni, en hann skemmti
sér svo prýðilega, að hann sá enga ástæðu til þess.
• Örlagadraumurinn. Grein um sálkreppur og sálgreiningu eftir
dr. Matthías Jónasson.
• Fegurðarsamkeppnin 1962. Þá birtist sú tíunda og síðasta í
undanúrslitum, en í blaðinu þar á eftir munu birtast myndir
af þátttakendum öllunt saman.
VIKAN 3