Vikan


Vikan - 19.04.1962, Side 4

Vikan - 19.04.1962, Side 4
AE. vegghúsgögn njóta æ meiri vinsælda enda vönduð og smekkleg. Vínskápur 80 br. 40 h. 35 d. Tekk Kr. 2086,00. Glasaskápur 80 br. 40 h. 35 d. Tekk Kr. 1760,00. Skápur 80 br. 40 h. 35 d. Tekk Kr. 1760,00 Skápur 80 br. 35 h. 30 d. Tekk Kr. 1976,00 KommóÖa 80 br. 40 h. 35 d. Tekk Kr. 1859,00 Skrifborð 80 br. 72 h. 120 1. Tekk Kr. 2870. HÚSGAGNAVERZLUN AXELS EYJÓLFSSONAR SKIPHOLTI 7, REYKJAVÍK Vínlaust land . . . Nú er búið að ræða og rita mikið um öl og vín. Allir eru á sama máli að vín sé bölvaldur hinn mesti, sem herjar á þjóð vora. Þó eru menn ekki á einu og sama -máli um leiðir til úrbóta. Halda sumir því fram, að öl myndi draga úr vín- drykkju, en fleiri eru, sem telja það blekkingu eina, og er ég i þeirra hópi. Þar sem ég hefi um- gengizt vín og vínmenn svo þús- undum skiptir í tugi ára, hefi ég enga trú á þvi að hægt sé að kenna okkur að umgangast vín, án þess að það skaði okkur. Eina ráðið, sem að gagni kemur, er að gera vínið útrækt úr landinu. Ég ætla að bregða upp dæmum: Þegar Aíþingishátíðin 1930 var haldin, mátti segja að væri bann i landinu. Jónas Jónsson, sem þá var dómsmálaráðherra, lét loka vín- verz.luninni fyrirvaralaust viku fyr- ir hátíðina, enda sást • varia maður undir áhrifum vins á hátiðinni, og þótti það til mikils sóma. Kvennaskólinn hélt árshátíð sína í Sjálfstæðishúsinu. Þar mætti prúð- búið fólk, ungt og fallegt. En það, sem eftir'tekt vakti að dansleiknum loknum var það, að ekki sást vín á . þessu unga fólki, þarna var æska íslands, falleg og frjáls. En hverju var þetta að þakka? Bakkus var bannaður. Það var haldið mót á Þingvöll um. Þangað streymdi ungt fóik, alls staðar að af landinu. Þetta unga fólk var ungt og fallegt. Það tjaldaði á völlunum og merkti tjöld- in hvert sínu héraði. Þegar líða tók á nóltina, og sólin hellti geisl- um sínum á þennan helga stað, þá mátti sjá einhverjar verur, sem ruddust um staðinn öskrandi, bölv- andi, grýtandi og skríðandi. Hvað hafði komið fyrir þetta unga og fallega fólk. Jú, það var Bakkus, sem hafði tekið stjórnina. Því scgi ég ykkur, æskumenn íslands: Látið aidrei Bakkus ráða gerðum ykkar. Þangað sækið þið aldrei sanna gleði. Það er allt blekking, sem Bakkus býður ykkur. Fylkið ykkur saman undir kjörorðinu: Vínlaust land. Nú 1 skuium við, sem höfum talið okkur 1 trú um, að það væri ekki hægt að I skemmta sér, nema vín væri með, breyta til og hugsa málið vel og fara að dansa ófullir, syngja ófull- ir, vinna ófullir og hugsa ófullir. Ég skora á alla þá, sem hafa gert sér Ijóst hver skaðvaldur Bakkus er, að fylkja sér saman undir kjör- orðinu: Vínlaust land. Takmarkið er: Vínlaust land. Ilverju töpum við, ef við missum vínið? Missum við álit annarra þjóða? Missum við eitthvað á and- lega sviðinu? Missum við líkams- orku? Verðum við aflcastaminni til almennra starfa? Verður skemmt- analífið Iciðinlegt? Missir selskabs- lífið sjarma? Missir æskan gleði sína? Missir heimilislífið samheldn- ina? Missir ríkissjóður tekjur? Missir þjóðin í heild af einhverju, sem hún getur ekki verið án? Lát- um þjóðina skera úr um það, hvort hún vill vín eða ekki. Kjörorðið er: Vínlaust land. Takmarkið: Vínlaust land. — Þorleifur Gislason. --------Orðið er laust. Það þurfa vafalaust margir vínsins velunn- arar að svara fyrir sig. Háværar maddömur . . . Kæri Póstur! Vegna þess að allt mannlegt er þér viðkomandi og i þeirri von að grannkonur minar lesi Vikuna, lang- ar mig til að hvolfa úr skálum minn- ar heilögu vandlætingar og réttlátu reiði, sem er mögnuð af svefnlaus- um nóttum — í þennan indæla póst- kassa þinn. Það hagar svo til að ég bý í ná- býli við tvær fráskildar konur, sem eru á léttasta skeiði — þær eru svo vinsælar og eiga svo stórkostlegan hóp af háværum kunningjum, sem heimsælcja þær á öllum tímum sól- arhringsins og þessir kunningjar eru alltaf í svo góðu skapi, að hlát- urinn í þeim og bílaliljóðin ásamt hurðaskellum og húrrahrópum held- ur fyrir mér vöku nótt eftir nótt. Segðu mér nú eitt — get ég beðið um að þessar vinsælu kynsystur mínar setji sér einhver takmörk — reyni að hljóðdeyfa þessa vini sína. Á ég að klaga þær? — og þá fyrir hverjum? Á ég að taka inn svefn- pillur? Á ég að flytja í annan bæjar- hluta? Á ég að fá mér næturvakta- vinnu? — eða ég veit bara ekki hvað — HVAÐ Á ÉG AÐ GERA???? Eru allar fráskildar konur skemmt- anasjúkar — ég er farin að halda það. Það vernda menn engin lög fyrir þessu, er það? — og svo má maður ekki einu sinni eiga hund, vegna þess að hann gæti hrætt börn. Sú SVEFNLAUSA. — — — „If you can‘t beat‘em, join‘em“ segir Enskurinn, og lík- lega enda þessi ósköp með því að þú verður að slást í hópinn. Ann- ars virðist mér þú kunna alls kyns ráð við þessu. Þú skalt samt sleppa svefnpillunuin. Talaðu heldur við þessar fjörugu jónkur í góðu. Annars — það sem ég mundi gera, væri að fá mér stóran, stór- an, stóran hund, sem væri vaxinn upp úr því að hræða börn og hefði einungis gaman af því að hræða skemmtanasjúkar mad- dömur. Svo, næst, þegar maddöm- urnar færu að halda fyrir mér vöku, myndi ég bara segja urrd- ann, og þá . . . Þeim, sem vildu minnast hans .. . Kæri Pótur! Ég hef kvartað yfir þessu við marga, og allir virðast vera mér sammála, þess vegna finnst mér ástæða til að þetta birtist á prenti. Það er farið að tíðkast í dánaraug- lýsingum, að fólki sé bent á alls kýns stofnanir og félög til þess að minnast hins látna: Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á þetta og þetta. Ég verð að segja fyrir mig, að ég sætti mig engan veginn við 4 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.