Vikan - 19.04.1962, Qupperneq 5
svona ordrur. Svona nokkuð hljóm-
ar eins og skipun, enda er þetta
beinlínis skipun. Manni er bent á
félög og stofnanir í stað þess að
senda blóm eða kransa. Það á hverj-
um manni að vera í sjáifsvald sett,
hvernig hann vill minnast látins vin-
ar. Segjum svo að blóm væru ekki
afbeðin, en mönnum samt bent á að
senda lielzt páskaliljur eða kaktus.
Ég veit að ineiningin er góð, en
fóik gerir sér almennt ekki grein
fyrir þvi hvað þetta er hjákátlegt og
beinlínis óforskammað. — F.G.
—--------Ég er bréfi þínu fylli-
lega sammála — þetta er hvimleið
venja. Kannski myndi einhver
vilja afsaka þetta með því að
hinn látni hafi verið mikill vel-
unnari þeirrar stofnunar eða fé-
lags, sem aðstandendur vilja láta
styrkja með því fé, sem ellegar
hefði farið í blóm eða kransa.
Satt er það — nokkuð er til í
þessu — en ef við hugsum nú öll
vendilega um þetta —• er þetta
þá ekki dálítið kjánalegt. Á ekki
hver og einn að fá að minnast
látinna vina á þann hátt, sem
honum lízt beztur?
Þyrstir í blóð . . .
Kæri Póstur!
Ég hef skrifað þér utn þetta efni
áður, en nú langar, mig aðeins til
þess að spyrja þig um eitt: Hvað
myndi ske, ef ég æki á alla fáráð-
lingana, sem ganga yfir götuna á
rauðu ljósi?
— — — Hvað myndi ske? Þú
rnyndir hafa nokkur beinbrot,
jafnvel mannslíf á samvizkunni.
Þótt þú sért í fullum rétti, verður
þú að reyna að forðast beinbrot
og mannslát eftir fyllsta megni.
Líltlega væri þetta samt eina leið-
in til þess að kenna vegfarend-
um að ganga rétt yfir götuna —
þótt ég mæli engan veginn með
þessari aðferð. Hún gæti orðið til
þess að fækka íbúum höfuðstað-
arins um a. m. k. helming.
Skákþáttur enn . . .
Kæra Vika!
Þú lofaðir því um daginn að í
þessum nýja þætti hans Jóns Páls-
sonar myndi verða svo til vikulegur
skákþáttur. Ég hcf ekki séð það enn-
þá — hann er búinn að birta eitl
skitið skákdæmi. Þið hafið fastan
bridgeþátt í Vikunni, og ég hélt að
skákin væri öllu vinsælli íþrótt á
íslandi en Bridge. Hvað á svona þá
að þýða? — e4.
—-------Við viljum, eins og þú
veizt, allt fyrir lesendur okkar
gera, og ef okkur berast fleiri
slík bréf, rnáttu reiða þig á, að
innan skamms verður fastur
skákþáttur í blaðinu. Þangað ti!
verðum við að láta Jón sjá um
skákina, en auðvitað er ekki mik-
ið rými fyrir langlokur um skák
í þessum þætti hans.
una.
Kæra Vika.
Ég fæ ekki lengur orða bundizt.
Ég er farinn að halda að heims-
menningin liafi algjörlega farið
framhjá flestum islenzkum stúlkum.
Ég fer gjarnan út með stúlkum og
reyni þá að vera eins kurteis og
bezt ég kann. Venjulega tekst mér
að opna fyrir þeim bílhurðina, þegar.
farið er inn í bílinn en venjulega
hafa þær engan tíma til að bíða eft-
ir því að maður komist út og aftur
fyrir bílinn, til að opna fyrir þeim
hurðina. Snarast þær út, inn í hús
og úr kápunni, áður en tekst að
koma bílnum i handbremsu. Ætli
maður að hjálpa þeim í kápuna þrífa
flestar þeirra hana af manni og
sveifla henni yfir höfuðið af mikilli
list, þá varla geti sú list talizt kven-
leg. Spurningin er því hvort dagar
herramennskunnar eru liðnir og ég
því gamaldags, eða hvort stúlkurnar
kunna sig eklci.
Þórarinn.
Það er ekki hin sterka hlið
okkar fslendinga að iðka fágaða
niannasiði og’ það er því miður
hætt við því að fólk verði bara
langt í andlitinu og góni á þig,
ef þú tekur upp á þeirn fjára að
sýna af þér herramennsku. Dagar
herramennskunnar hafa aldrei
verið til á íslandi, Þórarinn
minn, og þessvegna er það ofur
eðlilegt, að kvenfólk viti lítið,
hvernig það á að bregðast við,
þegar þú villt fara að umgangast '
það eins og hefðarmeyjar. Þetta
er sjálfsagt báðum kynjum að
kenna; kvenfólkið hefur ekki
gert kröfur til fágaðrar um- i
gengni og karlmenn hafa ekki F
haft aðstöðu til þess að læra
sanna herramennsku.
Iværa Vika.
Að gefnu tilefni langar mig til að
vita, hvort sömu reglur um umferð
gilda ú Miklatorgi og á liinu hring-
lorginu, þ. e. vestur við íþróttavöll.
Ég hef verið að spyrja leigubil-
stjóra og ökukennara og marga
fleiri, en það ber engum saman.
Jón Ó. Tjón.
. .Eftir því sem við bezt vitum,
þá gilda þarna allt aðrar reglur
heldur en á Miklatorgi og það er
vægast sagt dálítið undarlegt. Á
Miklatorgi eru tvær akgreinar
umhverfis hringinn, og margir
standa í þeirri meiningu, að svo
sé einnig vestur frá og skapar
þetta hinn mesta glundroða.