Vikan


Vikan - 19.04.1962, Síða 8

Vikan - 19.04.1962, Síða 8
r Kameljón í stjórnmálum, ">harðskeittur undirróðurs- maður, snjall vefari. Fallegur drengur, brúnaþungur, greindur vel, en skapbráður mjög. i ÞaS leikur ekki á tveim tungum, að stjórnmálaástandið á íslandi breyttist til muna þegar uppbótarþingsæti komu tii sögunnar. Um leið var breytt mjög gamalli og rótgróinni hefð, að sveitarhöfðingjar, menn, sem áttu mikið undir sér, höfðu annað hvort brotizt áfram af frábærri elju og ástundun, eða höfðu fengið mannaforráð með embættum sinum, annaðhvort sem prestar eða sýslumenn, voru kjörnir til Alþingis og gerð- ust þannig forsjármenn þjóðarinnar. Sagan geymir nöfn margra slíkra manna. Lífið sjálft hafði þjálfað þá til starfanna, baráltan við náttúruna, sem oftast hefur verið erfið á voru landi. Segja má, að þetta hafi farið að breytast þegar verka- lýðshreyfingin kom til sögu, en hún myndaðist ekki fyrr en atvinnuvegirnir brcyttust og fólkið fór að þjappa sér saman þar sem nýir atvinnuvegir risu upp. En verkalýðshreyfingin þjálfaði líka sina menn, þannig að enginn komst til nokkurra metorða innan hennar án þess að hafa sýnt dugnað, annað hvort sem þátttakendur í lífi fólksins í sveit og á sjó, eða í starfi fyrir liina nýju hreyfingu liins nafnlausa fjölda. Þetta varð til þess, að að minnsta kosti á fyrstu árum hreyfingarinnar, völdust að- eins úrvalsmenn i forystusveitina. En smátt og smátt breyttisl þetta. Þegar baráttan óx, tog- streytan milli flokkanna, sem deildu um völdin í þjóðfélaginu varð grimmari, óx fiokkavaldið, klíkusjónarmiðin — og þá varð annað til að mynda úrvalið, — og það er einmitt þetta sem nú setur svip á Alþingi og hefur gert hin síðari ár. Enn var fjarlægst hina gömlu hefð þegar uppbótarsætin komu til skjal- anna, þá gat kunningsskapur einber, dugnaður að vissu leyti, sem áður hafði ails ekki verið talið til dugnaðar, svo og frændafjöldi í kjördæmi, að viðbættn þægð og yes-mennsku við sjónarmið innsta kjarnans í flokknum, ráðið öllu um það, hver hreppti framboð. Og þannig er þetta enn. Vel má þó vera, að við þá breytingu, sem síðast var gerð á kjördæmaskipuninni, fari aftur að sækja í hið fyrra horf. Vottur þess sást þó alls ekki við framboð flokka í síðustu alþingiskosningum, heldur þvert á móti. Til þess að geta komizt áfram í islenzkum stjórnmálum nú til dags, er það talinn megin kosturinn að vera góður vefari, undirróðursmaður milii manna og flokka, mjúkur oftast nær, en eitilharður þegar því er að skipta. Enn hafa menn ekki uppgötvað þann sannleika, að það er jafnvel enn meiri fraina- von fyrir ungan mann að vera djarfur og hreinskilinn, heill i máli og ósérpiæginn. Það mun koma i Ijós þó að enn verði nokkur bið á því að þeir uppgötvi það. Þegar skyggnzt er um bekki meðal stjórnmálamanna, er mjög liafa komið við sögu, getur þar að líta marga skritna fugla. Einn þeirra er Finnbogi Rútur Valdimarsson, kameljónið í íslenzkum vinstri stjórnmálum, vígamaðurinn í sófanum. Hann virðisf alls ekki hafa hæfileika til mannaforráða, svo mikill einfari er hann, svo lítið við alþýðuskap, svo fjariægur þeim kostum sem alþýða manna hefur lengst af dáð mest, svo harðskeyttur í persónulegri viðkynningu. En hann hefur kosti til að bera — og það er eins og hann þekki vel kosti sina og galla. Hann virð- ist þekkja sjálfan sig — og þar mun vera skýringin á frama hans á stjórnmálasviðinu, sem hefur verið mjög óvenjulegur. Til viðbótar þessari skýringu má þó bæta við, að þróunin hefur borið hann áfram af miklum hraða. II Finnbogi Rútur Valdimarsson er valdamestur maður í yngsta kaupslað á landinu, í Kópavogi. Finnbogi er Norður-ísfirðingur að ætt og uppruna. Foreidrar hans voru fátæk bóndahjón: Valdimar Jónsson og Elín Hannibalsdóttir. Þau bjuggu vlða, en síðast i Fremri Arnardal og þar mun Finnbogi vera fæddur. Þarna er mjög fagurt og sagði séra Guðmundur í Gufudal eitt sinn að Arnardalur væri perla ísafjarðar. Þau hjón áttu mörg börn og voru fátæk, en þau voru af góðu bergi brotin og gáfuð, enda hefur það komið fram í börnum þeirra. Valdimar bóndi lézt árið 1922, en þá var Finnbogi aðeins fimmtán ára gamall. Hann var þá fallegur, brúnamikill og fremur hæglátur drengur, en gat reiðzt svo ofsaiega og snögglega að það kom leikbræðrum og öðrum á óvart. Virðist þetta og íyigja i ættinni. Er sú saga sögð um einn ættmannanna, sem var járnsmiður, að hann gat reiðzt svo harkalega við járnið, sem hann var að berja, ef ekki mótaðist rétt við hamarshöggin, að hann henti því frá sér, stökk í loft upp krossbölvaði, reif al' sér húfupottlokið og tróð það undir fótunum. Það kom mjög fljótt i ljós, að Finnbogi hafði til að bera skarp- ar gáfur. Hann var ekki flysjungur, en gjörhugull, hugsaði sig um, en sagði svo sína skoðun af liörku og varð þá ekki þokað. Menn tóku eftir þessum gáfaða og fátæka dreng, og varð um rætt meðan manna á Isafirði, sem aflögu voru færir. Einn þeirra var Sigurjón Jónsson bankastjóri og alþingismaður. Hann var góðhjarlaður maður/Og einnig kona hans, og gekkst Sigurjón fyrir því, að menn studdu drenginn til skólagöngu. Sigurjón var aðsjáii maður i íjármáium aiia ævi og setti drengn- um regiur um eyðsiu, en gætti þó hófs i því. Finnbogi fór því suður til Reykjavikur í skóla, og iauk þar námi, en þó með einhverjum erfiðleikum, ekki þó vegna skorts á námsgáfum, FINNSOQl RÚTUR VALDEM3 R S S O N I ALDARSPEGLI

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.