Vikan


Vikan - 19.04.1962, Side 31

Vikan - 19.04.1962, Side 31
Minorca, þar sem hún átti hús. Þegar ég kom, hafði hún verið dáin í 12 tíma. Hann þagnaði. Hvorugt þeirra sagði neitt langa stund. Hún fór aft- ur að teikna með nöglinni á dúk- inn. Við afgreiðsluborðið hringdi sím- inn lágt. — Gerd! Hann reyndi að taka aftur um hönd hennar, en hún fór undan. Elsku Gerd, þurfum við að sitja hér og sœra sjálf okkur? Fyrst ég hef nú loksins fundið þig, vil ég að þú vitir til hvers ég kom. Nú er fortíð- in ekki lengur til, nú erum það að- eins við tvö, sem við þurfum að hugsa um, við tvö saman. —• Skýrðu þetta nánar Rolf. Ég fylgist ekki með þéi' lengur .... Hann horfði ekki af henni og hélt ákafur áfram: — Við erum ung, Gerd, og eigum allt lífið framundan. Ég veit ekki hvað þú gerir hér í Gautaborg, hvort þú ert ennþá sýningarstúlka, eða ljósmyndafyrirsæta, en það er auka- atriði. Þú ert alltof góð fyrir slíkt líf. Ég er kominn til að taka þig burt frá því. Við erum bæði jafn ein- mana — ég er orðinn þreyttur á ferðalögum. Ég hef séð nóg og á nóg af öllu — allir staðir eru eins fyrir mér. Ég vil festa rætur einhvers stað- ar, kaupa hús og byrja nýtt líf með þér. Þú mátt ráða hvar við búum. Það er mér sama um. Við getum eignazt dásamlegt líf saman, Gerd. —- Ertu alveg viss um það? spurði Gerd. — Alveg! Ég býð þér nýtt líf, á- hyggjulausa framtíð. Ég get gefið þér öryggi, hlýju, heimili. —- Þú meinar að þú ætlir að kaupa mig. greip hún fram í fyrir honum með sömu ró og áður. Með pening- unum hennar? bætti hún við. Er það ekki það, sem þú meinar? Hann þaut upp úr stólnum og barði lófunum í borðið. — Ég beið eftir að þú segðir þetta! hrópaði hann æstur. E'n ég hélt ekki að Þú mundir núa mér þessu svona um nasir! Peningarnir hennar — já, hún er dáin og hún arfleiddi mig að öllu, sem hún átti, en get ég gert að Því, að hún ók út af veginum? Ég drap hana ekki. Reyndar vissi ég ekki að hún væri þetta rík. En góða min, hvaða Þýðingu hefur það að vera að róta upp í fortíðinni? Það ert Þú, sem ég elska, Gerd. Ég elska þig meira núna en ég gerði fyrir þremur árum. Það ert Þú, sem ég vil kvænast og gera hamingjusama. Ég hef aldrei getað gleymt þér, því verður þú að trúa. Hún fór í hanzkana og brosti næst- um afsakandi við honum. — Við verðum að fara, sagði hún. Klukkan er orðin margt. Dyravörð- urinn hlýtur að vera orðinn undr- andi á þessu. —■ Þetta kemur honurn ekki við. Ég er gestur hér á hótelinu, hef meira að segja heila herbergjasamstæðu. Ég hafði hugsað mér, að við gætum setið þar og talað samah, en þú vild- ir það ekki. — Nei, sagði hún. Það hefði ekki átt við. — Fyrir utan hótelið stanzaði hún og hikaði. Hann tók um handlegg hennar og leiddi hana að bílastæð- inu hinum megin við götuna. Þar stanzaði hann. — Þú hefur ekki sagt mér enn hvar þú vinnur núna, sagði hann. Þú hættir hjá Balmain? — Já, ég varð Ijósmyndafyrirsæta í staðinn. — Er það betur borgað? — Nei, miklu verr borgað, sagði hún og hló. En mér líkar það betur. Ég hef yndislegan húsbónda. — Er það ljósmyndastofa, spurði hann. — Nei. hann vinnur einn, á frjáls- um markaði. Hann er reyndar korn- ungur. Hann heitir Lars Johnson. Kannastu við hann? — Nei, það held ég ekki. Það get.ur verið að ég hafi heyrt, nafnið ein- hvers staðar. Iivérnig stendur á því, að þú .... — Hér er billinn, sagði hún. KannsRi að þú viljir aka mér heim? — Auðvitað, sagði hann. Húsmæðui'! hér er um al- gjöra byltingu að ræða í meðferð hverskonar fatn- aðar, sem þarf að stífa - SPRAYDEX - gefur líni nýjan, ferskan blæ - vandinn er enginn - ÚÐIÐ SPRAYDEX Á ÞVOTTINN UM LEIÐ OG ÞÉR STRAUIÐ - kaupið SPRAYDEX í handhægum, smekklegum umbúðum og þér munuð komast að raun um það að SPRAYDEX gerir þvotta daginn skemmtilegan. ÓDÝRAR ÁFYLLINGAR Heildsölub. Kristján Ó. Skagfjörð hf. KRISTJANSSON & CO HF VIKAN 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.