Vikan


Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 3

Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 3
 VIKAN 0(j tSBknÍU //jSlcipiíir tu«»g(ci . . treður fcrapa . . . " dæmis fjarstýrð, þaÖ er að segja, að þau geta runnið mannlaus allar götur á tunglinu, þótt knapinn sitji á jörðu niðri; hann hagar stjórn sinni á stóðinu svipað og tamninga- meistarinn, sem stendur á miðju hringsviði fjölleikahússins og stjórnar sýningarhestunum, sem renna brautina umhverfis sviðið, með bendingum og merkjum einum saman. Sá verður þó munurinn, að þarna verður um lengra bil að ræða, en kemur ,þó ekki að sök, því að Framhald á bls. 31. Útgefandi: Hilmir Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.) Auglýsingastjóri: Jóhannes Jörundsson. Framkvæmdastjóri: Iiilmar A- Kristjánsson. Ritstjórn og augiýsingar:. Skipholti 33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifíng: Blaðadreifing, Laugavegi 133, simi 30720. Dreifingarstjóri: Óskar Karls- son. Verð i lausasölu kr. 15. Áskrift- arvt-rð er 200 kr. ársþriðjungslega, greiðíst fyrirfram. Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. í næsta blaði verður m. a.: Bandarískir tæknifræðingar eru um þessar mundir að smíða hin furðulegustu farartæki — eins konar vóljálka með fjórar, fimm og allt að þvi átta lappir, en sogblöðkur eða gripklær í hófa stað. Er fullyrt að þeir muni fara yfir hvað sem er, en ekki er þó gangsins getið; eftir útlitinu að dæma gæti maður þó haldið að ekki muni þeir íiggja vel ó skeiði, en væru frekar brokkgeng- ir. Mundi þá verða nokkur munur á þeim og Sleipni, hinum áttfætta jó Óðins, sem Gríinur Thomsen lýsir í kvæði sínu, en þó eiga þeir fleira sameiginlegt með honum en fóta- fjöldann — þeir eru líka ætlaðir til ferðalaga úti í geimnum. Þetta verður með öðrum orðum hið svonefnda „tunglhrossakyn“, og þótt það verði ekki rakið til Nasa á Skarði, og erfi því ekki eigin- leilca hans, hefur það ýmsa aðra eiginleika, sem kyn Nasa getur ekki státað af. Tunglhryssin verða til 2. Sexfætt tunglhryssi með klær á löppum. Ber sjónvarpsmyndavél í haus á reistum makka og geisla- skjöld á baki. • Stóra bomban — en nú er bezt að hún springi að óvörum og þess vegna höldum við því leyndu þar til í næsta blaði. • Fjörulallar. — Smásaga eftir Jónas Guðmundsson, stýrimann. • Milljónaerfingi? — en sópar gólf f Keflavík. Hann gifti sig af ást og vissi það ekki fyrr en mörgum árum síðar, að konan hans var náskyld einum ríkasta manni heimsins, danska skipaeigandanum A. P. Möller. En honum var alveg sama. Og hann þiggur ekki boðin, þótt fjölskyldan bjóði honum til Danmerkur. Hann vinnur bara í Keflavík og sópar gólf á næturnar og er ánægður með tilveruna. • „Árás táknar alltaf styrk“. Annar hluti ævisögu Joseph Goebbels, hin.s kunna áróðursmeistara Hitlers. Hér segir frá því, hvernig Goebbels jók styrk flokksins, hleypti upp fund- urn andstæðinganna, sviðsetti jarðarfarir fallinna samherja og komst áfram í krafti ofbeldis á öllum sviðum. • Grjót — utanhúss og innan. Þátturinn um hús og húsbúnað tekur fyrir þetta íslenzka og skemmtilega byggingarefni, sem allsstaðar má fá til þess að gefa húsinu svip hið ytra og auka á yndi íbúðarinnar hið innra. • Þögn er gulls ígildi. Smásaga. Hún talaði og talaði og loks varð hún þegjandi hás. Þá komst hann loksins að — og hún sá, að það var harla gott. Stóra bomban Bara sjö dagar - og svo springur hún. Hvell- urinn verður geysilegur, að minnsta kosti hefur aldrei orðið hærri hvellur í VIKUNNI. Einasta ráðið til þess að missa ekki af neinu í sambandi við bombuna, er að tryggja sér eintak fljótt, því VIKAN rennur út eins og heitar lummur. sprmgur i næslu viku f

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.