Vikan


Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 38

Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 38
Tennur yðnr þarfnast daglegrar umhirðu. RED WHITE TANNKREM fullnægir öllum þörfum yðar á því sviði. RED WHITE er bragðgott og frískandi og inni- heldur A4 og er umfram allt mjög ódýrt. Biðjið ekki bara um tannkrem, heldur RED ’ WHITE tannkrem. Heildv. Kr. Ó. Skagfjörð h.f. Sími 2 41 20. óþörf bið á biðstofum. Framhald af bls. 7. verðmætum, sem tapast nú. Sumir telja að ódýr biðnúmer geti leyst þennan vanda, en svo er ekki. Til þess að biðnúmer komi að fullu gagni, þurfa læknar að geta skipu- lagt og samræmt störf sín, þannig að flokkaðar séu sainan afgreiðslur, sem taka álika langan tíma. Margir læknar hafa reynt biðnúmerakerfið, en hætt við það vegna þess að það orsakaði ýmis konar misskilning og jafnvel erfiðleika í afgreiðslu. Það fer sem sé eftir störfum læknisins og grundvallar skipulagningu á þeim, hvort biðstofunúmerakerfið kemur að verulegu gagni eða ekki. LÆKNASTOFUR — ÓFULLNÆGJ- ANDl HÚSNÆÐI. Þá er í grein Vikunnar nokkuð um það rætt að lnisakostur og að- búnaður á lækningastofum sé all- misjafn og sums staðar ábótavant. Sumarið 19ö0 lét borgarlæknir at- huga allar lækningastofur í Reykja- vík. Fannst þá að sjálfsögðu ýmis- legt athugavert og mun það alll hafa verið lagfært. Slík athugun þyrfti sennilega að fara fram oft- ar og e. t. v. að vera mun strang- ari en verið hefur. En hér konmm við að einu, mjög veigamiklu atriði í sambandi við læknisþjónustuna. Ef óskað er eftir því að læknar hafi almennt belri lækningastofur en nú er og eins góðar eins og vera ber, þá hefur slikt í för með sér veru- legan hækkaðan kostnað við læknis- þjónustuna. HVAÐA LÆKNAÞJÓNUSTU HEF- UR ÞJÓÐFÉLAGIÐ EFNI A AÐ BORGA. í því sambandi er rétt að benda á að lækningastofa eins læknis hér í bæ, sem uppfyllir flest Öll skil- yrði um ströngustu kröfur, kostaði í rekstri árið 1960—‘61 146 þús. kr. Þetta er ekki ágizkunartala heldur byggist hún á útreikningum skv. ströngustu skilyrðum bókhaldslög- gjafarinnar og er reiknuð út af lög- giltum endurskoðanda. Það er þvi ekki nóg að segja, hvernig læknis- þjónustan á að vera heldur þarf þjóðfélagið að hafa ráð á að greiða hana. En skv. okkar kerfi eru það stjórnmálamennirnir, sem dæma um það. Þetta er raunar mjög eðli- legt og sjálfsagt fyrirkomulag því læknisþjónustan hefur margslungin áhrif á efnahagskerfi þjóðarinnar og mun slfkt ekki hafa verið kann- að til hlítar hér á landi og því verð- ur mat á læknisþjónustu stundum furðu handahófslegt. I liessum mólum hafa stjórnmála- menn úrslitavald, en Jieir þarfnast aðhalds, ekki eingöngu frá læknum heldur einnig frá almenningi. Það aðhald þarf að byggjast á staðgóðri þekkingu og réttsýnni dómgreind. Að dómi ýmissa lækna skortir á að framvinda í heilbrigðismálum hafi verið nægilega snar þáttur i þeirri allsherjar-viðreisn, sem unnið er að i þjóðfélaginu, cn margt bendir til þess, að breyting lil batnaðar í þessu efni sé á næsta leiti. Það er brýn nauðsyn að almenningur afli sér þekkingar um þessi mál, taki af- stöðu til þeirra og láti slcoðun sina Framhald á bls. 43. MIÐÆPRENTUN Takið upp hina nýju aðferð og látið prenta alls- konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, tilkynningar, kvittanir o. fl. á rúllupappír. Höfum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiskonar afgreiðslu- box. Þeitið upplýsinga. Skipholti 33. — Sími 35320. OP •JO VlliA N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.